fordæmd árás?

Enn eina ferðina bera fjölmiðlar okkur frétt af ótrúlegri grimmd og skipulögðum manndrápum á kristnum, útlendingum og hótelgestum. Nú er það á SriLanka. Forseti þeirrar eyju tengdi þessi hryðjuverk við drápin í moskunum á Nýja Sjálandi. Líklega hefndaraðgerð?

Flest ríki, kirkjur og samfélög fordæmdu manndrápin í Christchurch sem er auðvitað nauðsynlegt. Við eigum ekki að drepa fólk hverrar trúar sem það er. Það eru kristin gildi að varðveita lífið. Boðorðin 10 segja okkur einnig að við skulum ekki mann deyða! 

En böndin berast að Múslimum sem framkvæmdu þessi illvirki. Auðvitað fordæmum við kristnir þessi verk og notum jafnvel sterk orð um þau.

En það er eitt sem óróar mig og það er þögnin sem berst frá hinum múslimska heimi. Enginn múslimi hefur látið hafa eftir sér á samfélagsmiðlum fordæmingu á þessum hryðjuverkum. Engin ríkisstjórn né þjóðhöfðingi múslimsks ríkis hefur fordæmt hryðjuverkin á SriLanka!

Er það kannski vegna þess að í Islam eru ekki boðorðin 10? Jafnvel að þar er ekki boðskapur um að varðveita lífið? 

Er það ekki nokkuð ljóst að af þögninni má ráða mismun á kristni, gyðingdómi og Islam? Í kristni og gyðingdómi er sjötta boðorðið: ,,Þú skalt ekki morð fremja"! 

Meðan Islam virðir ekki boðorðin 10 verður aldrei til góð sambúð mismunandi trúarbragða. Sorglegt!

En sjá Íslendingar þetta? Eða verður þessi færsla bara sett undir hatursorðræðu?

Það er alveg kominn tími til að menn líti yfir sviðið og spyrji hvenær verður látið til skarar skríða hér á landi? Við gætum verið í skotlínunni áður en varir, nákvæmlega eins og 1627.

Stöndum gegn manndrápum! Varðveitum Kristnina sem sjáaldur augnanna!

Snorri í Betel


mbl.is Tveggja Dana saknað
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

Er það ennþá á stefnu (s) borgarstjórnarinnar í reykjavík

að blása til sóknar með múslimskri hugmyndafræði

með því að leyfa byggingu nýrrar bækistöðvar undir kóraninn

í Skógarhlíðinni?

Jón Þórhallsson, 24.4.2019 kl. 11:46

2 Smámynd: Haukur Árnason

Þarfur pistill. Já, þögnin er undarleg, en segit sitt.

Haukur Árnason, 24.4.2019 kl. 13:25

3 Smámynd: Þorsteinn Siglaugsson

Það er reyndar alls ekki rétt að leiðtogar í hinum múslimska heimi hafi ekki fordæmt þessi hryðjuverk. Fáein dæmi hér: https://gulfnews.com/world/asia/world-leaders-condemn-easter-sunday-bombings-in-sri-lanka-1.1555836923442.

Og boðorð um helgi lífsins er að finna í Kóraninum, ekkert síður en í biblíunni.

Samt sem áður eru manndráp, fjöldamorð, þjóðarmorð framin jafnt af múslimum sem kristnum mönnum.

Þorsteinn Siglaugsson, 24.4.2019 kl. 17:01

4 Smámynd: Snorri Óskarsson

Jón, það bendir allt til þess að vinstri flokkarnir styðja múslimavæðingu landsins og vilja gjarnan taka við múslimskum flóttamönnum og sniðganga kristna menn í verri stöðu þó svo að þeir myndu falla betur inní okkar samfélag. Vil einnig minna á að Hjálpræðisherinn er krafinn um fulla greiðslu fyrir lóð og byggingargjöld meðan múslimum er boðið hið sama án endurgjalds.

Snorri Óskarsson, 24.4.2019 kl. 17:11

5 Smámynd: Þorsteinn Sch Thorsteinsson

Sæll Snorri, 

Alltaf kemur hún Rita Katz hjá SITE (eða hjá Mossad front) við sögu, rétt eins og með öll lygilegu myndböndin er Pentagon lét framleiða fyrir meira en 500 milljónir USD, og sem að hún Rita birti á síðunni og fullyrti jafnframt að hefðu komið beint frá ISIS. 

US government spent over $500m on fake Al-Qaeda propaganda videos that tracked location of viewers  


"Israeli Agent Provides Photos of ISIS Bombers in Sri Lanka

The photos of the alleged bombers of Catholic churches and hotels in Sri Lanka are coming from a ISIS-related entity called Amaq News Agency and are provided to the media by Rita Katz, an Israeli agent working out of Bethesda, Maryland. Why is it that Amaq News Agency has no website and has to rely on the Israeli agent Rita Katz of Site Intelligence Group to distribute its material to the media? " https://www.facebook.com/photo.php?fbid=1094047370775636&set=pcb.1094049280775445&type=3&theater&ifg=1

Hvernig stendur á því að allar þessar svonefndu fréttir frá ISIS koma alltaf frá hinum eina og samastað henni hérna Ritu Katz og/eða SITE (Mossad front)?  ER það vegna þess að ISIS er leynileg skammstöfun fyrir 
Israeli Secret Intelligence Service 
??? 


KV.   

Þorsteinn Sch Thorsteinsson, 25.4.2019 kl. 01:04

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.3.): 5
  • Sl. sólarhring: 18
  • Sl. viku: 90
  • Frá upphafi: 240812

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 81
  • Gestir í dag: 3
  • IP-tölur í dag: 3

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband