Þöggunarglíman á Akureyri!

Fyrir 10 árum greip ,,rétttrúnaðargrýlan" bæjarstjórn Akureyrar kverkataki. Ég var látinn finna fyrir ,,mínu afturhaldi og hatursorðræðu". Mér var vísað úr skóla fyrir þá sök að kalla samkynhneigðina synd og að,,laun syndarinnar væru dauði." Meira þurfti ekki þá. Leiðin var lögð til dómsstóla landsins því þöggunartilburðirnir áttu lagalegan rétt til kúgunar.

Enn í dag glímir bæjarstjórn Akureyrar við vandræða orðræðu sem er sögð hafa komið frá fulltrúa Flokks Fólksins. Hann á sæti í Bæjarstjórninni.

Eftir áratuga baráttu bæjaryfirvalda gegn málfari og tjáningarfrelsi starfsmanna bæjarins er bardaginn kominn til fulltrúanna sjálfra. 

Hvernig þeir taka á málum í dag og hvaða ,,hausar verða látnir fjúka" núna verður forvitnilegt að sjá því alltaf er tjáningarfrelsið ,,vígvöllurinn"!

Það hefur ekki endilega verið flokkað sem hatursorðræða þó læknir gefur út sjúkdómsgreiningu. En konurnar í Flokki Fólksins eru kannski reiðar af því að þær voru ekki að leita sér lækninga á geðsviðinu. Ekki voru þær að biðja um sagnfræðilegar tengingar við flokksstarfið og ekki var óskað eftir áliti Hjörleifs fyrrum kaupmanns á þeim. Svo allur Flokkur fólksins um land allt er í uppnámi. Hvað má ekki segja, verður næsta mál á dagskrá!

Nú reis upp annað mál upp í prestastétt þar sem konur afsögðu formann prestafélagsins vegna útvarpsviðtals á Sögu. Konur hafa greinilega verið að hasla sér völl bæði í pólitík og prestskap. Nú skulu bændur láta af karlmennskunni og ,,feðraveldið" skal lúta rétttrúnaði samtímans.

Það sem byrjaði sem mál til varnar samkynhneygðum fyrir áratug er farið að skekja grundvöll karlmennskunnar hjá fólki og prestum. 

Íþróttahreyfingin hefur einnig gengið í gegnum hreinsunareld í samskiptum kynjanna svo þjóðin ætti að vera orðin nokkuð fær að taka rétt á málum þó svo að karlar tjái sig með öðrum hætti en konur gera.

Auðvitað er dólgsháttur ekki tilhlýðilegur. Auðvitað þurfa menn að gæta tungu sinnar en það á líka við um konur hvort sem þær eru í sama flokki eða í prestastétt. Það er bara mjög aðkallandi að fulltrúar á opinberum vettvangi varðveiti mannréttindin til ,,tjáningarfrelsisins"!

Hvar lendir stjórnmálaflokkur sem vegur að eigin fulltrúum vegna tjáninga? Hvar endar ,,presturinn" sem missir tjáningarfrelsið? Ég fæ ekki betur séð en að sú vegferð sem Akureyrarbær hóf á að svipta mig tjáningarfrelsinu er nú farin að brjóta allt og bramla í ranni bæjarstjórnar.

Má ekki fara fram á það að fólk hækki þröskulda sína og auki þol sitt við óþægilegum orðum? Sumt er sagt án þess að illska liggi undir annað er sagt sem betur hefði verið sleppt en lækningin fyrir hvorttveggja er fyrirgefningin. Bæði prestar, sagnfræðingar og geðlæknar eiga að kunna á þetta tæki. Meistarinn sagði:,,Faðir, fyrir gef þeim því þeir vita ekki hvað þeir gera"!

Orð í tíma töluð sérstaklega fyrir fólkið!

 

Snorri í Betel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 0
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 60
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband