Okurlandið augljósa

Allt frá dögum einokunarverslunarinnar, eða frá 1560, hafa Íslendingar kunnað þessa aðferð og haldið henni við. Einokun er samfélagsgerðin hér á landi.

Flugfélögin kvarta núna, heimilin í landinu hafa talað svona áratugum saman, Olíufélögin lifa á þessu, Útgerðin er komin í þessa stöðu, bankarnir búa í þessu kerfi, Líferyrissjóðirnir geta ekki borgað meira og stjórnmálin hafa flokka sem berjast fyrir því að varðveita einokunina það heitir láglaunastefnan. Verslunin er sögð standa höllum fæti þó að frjáls álagning hafi verið hennar líf frá dögum Danaveldis.

Þessi óskapnaður gegnum sýrir heilbrigðiskerfið nema tannlæknana, þeir fara sínu fram og halda sér við háu gjaldskrárnar. Þær er hægt að lækka eins og Ungverjarnir hafa sýnt framá.

Þessi okur vernja er hugarfar. Mjög slæmt hugarfar. Þegar erlendir aðilar eru farnir að kvarta yfir verðlagningu á Íslandi þá er kominn tími til að leggja við hlustir því þetta þjóðarmein er að vinna í gegn okkur öllum bæði bændum og búaliði.

Okrið safnar peningunum á fárra manna hendur og þjóðin missir bæði sjálfstæði sitt og siðferði í svona kringumstæðum.

Hvað ætli kosti að losna undan okrinu sem varðveitir lánin bæði verðtryggð og í hæstu vöxtum? 

Menn þurfa ekki endilega að lifa á Íslandi því okrarinn mikli hirðir bæði laun og eignir okkar að lokum.

Munum samt að þegar Palli var einn í heiminum og átti allt, þá var hann ekkert ánægðari en þegar hann var í veröldinni sem miðlaði löndum og gæðum á réttlátan hátt.

Þurfum við ekki nýja ríkisstjórn?

Þurfum við ekki nýtt fólk á Alþingi sem vill ekki stuðla að okri?

Hvað með nýja flokka eða nýja stefnu sem opnar fólkinu dyr til velsældar og sanngirni?

Okrið er synd, syndin er þjóðanna skömm (Orðskv.14:34) Okrið er nefnilega kúgun og ,,sá sem kúgar snauðan mann óvirðir þann er skóp hann, en sá heiðrar hann, er miskunnar sig yfir fátækan.(Orðskv. 14:31)

Biðjum um sanngjarnt samfélag.

Snorri í Betel


mbl.is Ísland sagt misnota einokunarstöðu sína
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Sæll Snorri, vel mælt.

Orkið er sprottið upp úr græðgi og fégirndin er rót alls ills, eins og Páll segir. Ég tek undir bæn þínu um sanngjarnt samfélag og þar sem réttlæti ríkir.

Við horfum uppá hina ofurríku milljarðamæringa í heiminum sem sópa að sér enn meiri auði á sama tíma og fátækt hinna snauðu sverfir enn frekar að. Mikið held ég að kvöl þeirra verði mikil þegar þeir munu standa frammi fyrir Drottni Guði allsherjar á dómsdegi.

Tómas Ibsen Halldórsson, 30.11.2022 kl. 15:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.4.): 4
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 64
  • Frá upphafi: 240986

Annað

  • Innlit í dag: 4
  • Innlit sl. viku: 59
  • Gestir í dag: 4
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband