Nútíma ,,kristni"?

Kristin trú samanstendur af boðskap Jesú frá Nazaret, spámönnum Gamla-testamenntisins og Postulum, sendiboðum Jesú. 

Þar er að finna afar merkilega heimsmynd og kenningar sem eiga í vök að verjast og jafnvel hafa örfáa fylgjendur í dag. Þó Íslendingar eigi sína ríkisreknu þjóðkirkju og all flestir hafi gengið til spurninga og látið fermast, þar sem þeir lofuðu að ,,leitast við af fremsta megni að gera Jesú Krist að leiðtoga lífsins", þá hafa menn það ekki alveg á hreinu hvað slíkt innifelur.

Jesús talaði um Guð sem ,,Föður"! Hann kenndi okkur bænina ,,Faðir vor" og lagði áherslu á að hafa Guð í fyrsta sæti. ,,Helgist þitt nafn, tilkomi þitt ríki og verði þinn vilji" eru fyrstu bæna orðin í þessari áhrifa miklu bæn. Hvað er gert til að ,,helga nafn Guðs"? Hvað viljum við með ákallið ,,Faðir vor"?

Þegar 100 000 íslenskar konur fylltu Arnarhól með slagorðinu ,,fokk feðraveldið" þá var þetta allavega hörð andstaða við  Guð, föður, skapara himins og jarðar og okkar mannanna. Við erum jú sköpuð í hans mynd. !00 000 konur af 380 000 manna þjóð er all stórt hlutfalla. Er ekki eitthvað sem á vantar í trúfræðin?

Jesús fræddi lærisveina sína um Guð föður,skaparann! Hann sagði: ,,hafið þér eigi lesið að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu...? Í dag er frekar gert ráð fyrir ,,þróun" mannsins og litið svo á að einhversstaðar eigum við ,,sameiginlegan forföður" með apanum. Apinn telst vera hluti náttúrunnar en ekki við. Helstu náttúruverndarsjónarmið eru í því fólgin  að vernda,kletta,vötn, fljót og búsvæði dýra. Þar er maðurinn útilokaður og jafnvel sagt að maðurinn eyðileggi náttúruna. En hvað með skaparann? Hvað með kenningu Krists um skaparann? Er kirkjan þar?

Hvað með ,,karl og konu"? Nú tala menn um miklu fleiri kyn! Það telst ekki mikið stórmál að breyta karli í konu. Sá aðili sem er. gerður frá karli í konu verður þó aldrei á blæðingum og getur aldrei fætt af sér barn. Þessi breyting útilokar ,,karl-konuna" frá föður- og móðurhlutverkinu. Jafnvel þó að við setjum inní íslenska tungu mikið af nýjum orðum til að  svara kalli samtímans um Transréttindin þá breytum við ekki eðli líkamans. Karllíkami getur aldrei orðið móðir og kvenlíkami verður aldrei faðir! En hvað með ,,Skaparann" fær hann sína stöðu í heimsmyndinni?

Jesús háði heilmikla glímu við Djöfulinn. Sú glíma tók 40 daga. Hann sagði okkur líka frá góða sæðinu sem ,,Mannssonurinn sáir" og af því koma ,,börn ríkisins" og svo ,,illgresið, börn hins vonda. Óvinurinn sem sáði því er Djöfullinn!"

Fer ég afturfyrir miðaldirnar ef ég tefli þessu fram? Hvenær heyðir þú síðast talað um Djöfulinn í stólræðunni í kirkjunni?

Óttar geðlæknir hafði orð á þessu í skoðun sinni um daginn er hann segir: ,,Söfnuðurinn afneitar honum (Djöflinum) eins og hverri annarri bábilju." 

En hvað segir postuli heiðingjanna? Sánkti Pétur hefur orð á þessu í pistli sínum: ,,Verið algáðir, vakið. Óvinur yðar, djöfullinn gengur um sem öskrandi ljón, leitandi að þeim sem hann geti gleypt. Standið gegn honum, stöðugir í trúnni...!

Verð ég ,,nútíma kristinn" ef ég hafna kenningunni um Djöfulinn?

Hvort þarf ég að sveiga kristnu trúnna mína að nútímanum eða nútíma hugsun mína að Orðum Jesú Krists? Má Jesús hafa og njóta höfundarréttar á trúarkenningum kristninnar?

Páll postuli rær á sömu mið. Skoðum boðskap hans til Korintumanna. Þar talar hann um að meðhöndla skoðanir okkar með þessum orðum: ,,Vér brjótum niður hugsmíðar og allt sem hreykir sér gegn þekkingunni á Guði og hertökum hverja hugsun til hlýðni við Krist.

Hvernig líst mönnum á? Er ég með miðaldahugsun og guðfræði ef ég læt boðskap höfunda og boðbera kristninnar njóta vafans?

Já, vel á minnst, hið illa í heiminum! Hvaðan kemur það? Óttar nefnir tvo aðila sem haga sér eins og Djöfullinn. Fyrri var ,,afi" hans er hann er látinn segja: ,,verstur er sá djöfull sem býr hið innra með manni sjálfum"! Hinn er læknirinn sem ,,talar eins og Djöfullinn" við skjólstæðing sinn með þessum orðum:,, Við erum samherjar"!

Það er agn sett á öngulinn fyrir þig, lesandi minn. Það er kallað vinsældir og velvilji. Að vera eins og nútíma kristinn og samþykktur er fólgið í því að nota ekki Biblíuna nema ,,jákvæðu orðin" til að ,,uppörva" alla. Orðin sem stinga, fræða, leiðrétta og jafnvel meiða vilja menn helst sneiða hjá. Hver vill vera ,,umdeildur"?

Það er gjarnan notað gegn mér :,,Snorri, þú ert svo umdeildur"! Var Jesús Kristur ,,umdeildur"? En Páll postuli? Af hverju ættum við að sleppa?

Takir þú þeirra orð sem opinberun á heiminum eins og hann er þá verður þú líka umdeildur. Það er alls ekki neikvætt í þessari mjög svo rugluðu veröld og illu veröld sem við lifum í!

Já, hið illa í heiminum? Hvort kemur það innan frá, úr hjarta mannsins eða frá óvininum, djöflinum sem sáði vilja sínum í syndum spilltu hjörtu manna?

Ef þú vilt láta ,,hjartað leiða þig" vertu þá viss um að jesús hafi fengið að sá sínu orði og sinni heimsmynd inn í sálu þína og hug! Maður með hjartabilun fær ekki skírteini!

Snorri í Betel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Dominus Sanctus.

Þetta er allt saman satt og rétt hjá þér;

Það eru bara tvö kyn og óþarfi að flækja málin með einhverkonar samkynhneigðum tranz-flækjum.

Þess vegna ert þú efstur í blogginu hjá mér.

= "Að Þeir síðustu MUNU VERÐA FYRSTIR". (Stendur það ekki einhversstaðar?):

Dominus Sanctus., 28.11.2023 kl. 09:38

2 Smámynd: Snorri Óskarsson

Sæll

Matt.20: 16

kær kveðja

Snorri

Snorri Óskarsson, 28.11.2023 kl. 10:28

3 Smámynd: Dominus Sanctus.

Kristnar kirkjur þurfa samt að vera opnar fyrir því hvað megi gera betur

 en  þær eru að gera í dag til að trekkja fólk meira að.

Það sem að vantar t.d .í kirkjuna á Sauðárkróki er að lögð sé meiri áhersla á

FRÆÐIMANNAPLANIÐ með sama hætti eins og Guðbrandsstofnun eða allskyns Guðspekifélög starfa.

Þ.e. að fullorðið fólk sé að koma saman til að hlusta á FRÆÐSLUERINDI

og síðan er boðið upp á að spurningar og svör gangi á milli fólks í ró og næði yfir kaffibolla.

Það fólk sem að t.d. sækir í Guðbrandsstofnun á Hólum er ekki að afneita sinni Kristnu trú 

þó svo að einhverjum SPURNINGUM sé velt upp á þeirra fundum sem að gætu leitt til lausnar á lífsgátunni.

Eins eru margir KRISTNIR prestar sem að sækja í GUÐSPEKIFÉLÖG sem viðbót við sína kristnu trú

alveg án þess að hafna þeim venjulegu kristnu siðum sem að þeire eru vanir í sínum venjulegu krikjum

Dominus Sanctus., 28.11.2023 kl. 10:56

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (27.4.): 1
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 36
  • Frá upphafi: 241032

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 35
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband