Skerðingar - andlit spillingar?

Við höfum tekið eftir þessum ótrúlega vexti lífeyrissjóða undanfarin ár. Eitt sinn kom frétt um að tekjur þeirra námu nánast um einum milljarði á dag núna 2,8 milljarða á dag eða þreföldun tekna!

Hvað höfum við að gera með 6410 milljarða í eigu almennings sem ekki má nýta til að bæta hag lífeyrisþega? Þarf ekki að upphugsa þessa stöðu að nýju?

Ég var opinber starfsmaður frá því 1973. Lét mér lynda kjör kennarans og sá að ég gat bjargað fjárhagnum með því að vinna á sumrum til að framfleyta fjölskyldunni. Margir skólastjórar bættu kennaralaunin með því að ráða okkur í aukasporslur, sjá um bókasafn, taka að okkur viðvik og jafnvel sérkennslu til aukatekna. Allt var samþykkt til hagsbóta.

Svo komu kjarasamningarnir sem veittu ekki mikla krónutöluhækkun en við fengum ,,félagsmálapakka" og aukin lífeyrisréttindi að starfstíma loknum. Framtíðin átti að verða björt en...! Svo komu aðrir kjarsamningar þar sem KÍ seldi eitt og annað til að fjölga krónunum á kostnað réttindanna sem kæmu upp í hendur okkar seinna! Að starfstíma loknum voru engir félagsmálapakkar eftir og engar hagsbætur sem voru samykktar til að lifa við lág kennaralaun og fá svo góðan lífeyrissjóð sem hvað? Bara vex og vex án þess að bæta okkar hag!

Nú sitjum við með lífeyriseignina bundna. Ráðherra og ríkisstjórn eru með tök valdsins á auðnum og heimta að ekki verði um of mikið fjárstreymi í hendur lífeyrisþega svo bátnum verði ekki ruggað. Þetta er í mínum augum ,,eignaupptaka"!

Við sem eigum lífeyrissjóðina ættum ekki að þurfa að líða skort eða ná ekki saman endum þegar eign okkar, lífeyrissjóðurinn, stendur svona vel. Það hlýtur að vera krafa okkar í þessu árferði að næsta ríkisstjórn virði eignarréttinn og láti af þessum óheilbrigðu skerðingum á greiðslu lífeyris. Það hlýtur að vera hagur ríkissjóðs að meira renni í buddu okkar því þá er hægt að greiða hærri skatta til ríkis og bæjar og auka neyslu sem eykur hagvöxt.

Auknar lífeyrisgreiðslur munu aðeins bæta hag og ástand þúsunda sem hafa samviskusamlega greitt í sjóðina skv. lögum og ættu því að fá virðingu löggjafans að njóta ávaxtarins sem lögboðinn sparnaður hefur skapað í landinu.

Skerðingarnar sem ríkisstjórn og Alþingi hafa samþykkt er angi spillingar því það kemur aðeins niður á sumum en alls ekki öllum. Þannig veldur spillingin að tveir hópar búa í landinu og standa ekki jafnfætis annar verður fyrir skerðingum en hinn lifir í vellystingum. Komu vellystingarnar bara vegna þess að hann komst á þing, gat sett lög um laun sín og girðingar gegn skerðingum þeirra?

Snorri í Betel


mbl.is Lífeyrissjóðirnir bólgna út sem aldrei fyrr
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

spilling (frh. nr 3)

Mannréttindin eru tekin við nema þau sem segja þér satt! Við spyrjum ekki um sannleikann heldur bara hvað ,,vísindin segja"! Bóluefnin gegn Covid eiga að vera í lagi af því að ,,vísindin segja" þau góð!

Við höfum alist upp í umhverfi þar sem sumt var talið rétt og annað rangt. Hegðun okkar og gerðir hafa verið flokkaðar í þá flokka. Lögreglan er með það vald að skipta sér af þegar við gerum eitthvað rangt, keyrum of hratt, hnuplum í búðum og annað verra en þetta. Okkur finnst rétt að góð hegðun fái að njóta sín en refsing komi yfir þann sem sýnir slæma hegðun.

Starfsmenn kaþólsku kirkjunnar sem hafa notað aðstöðu sína undanfarna áratugi og svalað kynhvöt sinni á börnum er ljóður á kirkjustarfinu. Ennþá virðast allir sammála um að svona hegðun er röng og enganvegin ásættanleg.

Við höfðum samskonar mælikvarða áður fyrr á samlíf karla eingöngu og kvenna eingöngu svo að samkynhneigðin þótti enganvegin ásættanleg hegðun. Með samstilltu átaki er búið að kollvarpa því áliti að þetta sé rangur lífsmáti og nú þarf að gera bragarbót á og gera Reykjavík að ,,regnbogaborg" þar sem kynvillan er sett í ljóma góðrar og jákvæðrar hegðunar. Munu kaþólikkarnir eygja bjarta framtíð með breyttu viðhorfi þjóðfélaga til kynlífs við unga æsku? Hverju er ekki hægt að breyta?

Viðhorfsbreyting getur nefnilega orðið þannig að það sem áður var synd og ótilhlýðilegt verður sjálfsagt og jákvætt af því að við urðum ,,víðsýn" og ,,umburðarlynd"! En opnum við þá á spillt hugarfar? Hverju er ekki hægt að breyta?

Í útvarpsviðtali við Ásmund Stefánsson þann 06.10.'21 var hann að lýsa bók sinni um Lúter. Hann tengdi saman Lúter og orðræðu hans fyrir 500 árum um gyðingana. Seinna var gyðingahatur og ofsóknir á hendur þeim rakið til þeirrar orðræðu. Vegna hennar misstu þeir mannréttindin og voru taldir ,,þjóðfélagsmein" í Evrópu. Ásmundur, fyrrum ASÍ forseti, klikkti út með því að tengja Lútersku kirkjuna sem stefnulausa af því að almenningur tók við breytingum og viðurkenndi ný viðhorf sem kirkjan hafði frá dögum Lúters flokkað sem synd og óásættanlega hegðun en í dag er farin að gefa saman tvo karlmenn í ,,hjónaband" og tvær konur í ,,hjónaband"! Og Ásmundur sagði annað hvort hafa menn mannréttindi eða ekki!

Ég taldi mig hafa stjórnarskrár varin ,,mannréttindi" til trúar- og tjáningarfrelsis samkvæmt íslenskru Stjórnarskránni og benti lögfærðingi Akureyrarbæjar og fulltrúm ráðandi afla á þessa augljósu staðreynd. Hún skipti ekki meira máli en svo að mannréttindi mín voru fyrir borð borin af því að þau lutu ekki að hinum nýja skilningi þeirra á því sem kallað er:,,réttur og frelsandi lífsmáti"! Hvernig var ekki hægt að fara með mín mannréttindi? 

En þetta viðtal við Ásmund rifjaði upp fyrir mér orð Jeremía spámanns sem sá fyrir hrun gyðingaríkisins vegna spillingarinnar sem hafði hreiðrað um sig sem ,,breytt og frjálslynd viðhorf" á þeim tíma. Jeremía segir: ,, Ég hugsaði:,,Það eru aðeins hinir lítilmótlegu sem breyta heimskulega, af því að þeir þekkja ekki veg Drottins, réttindi Guðs síns. Ég ætla að fara til stórmennanna og tala við þá , því að þeir þekkja veg Drottins, réttindi Guðs síns. En einmitt þeir höfðu allir saman sundur brotið okið og slitið af sér böndin." (Jer.5:4-5) Er þetta ekki sama lýsing og Ásmundur fjallar um í sinni bók og bendir á að mannréttindin eru líka að brjótast undan reglum og slíta af sér bönd og virða ekki rétt Guðs til að hafa áhrif á mína og þína hegðun?

Jeremía bendir á ,,aukaverkanirnar" á óhlýðninni. Í landinu risu upp hættur sem hann lýsir svo:,, Fyrir því drepur þá ljón í skóginum, fyrir því eyðir þeim úlfurinn, sem hefst við á heiðunum. Pardusdýrið situr um borgir þeirra svo að hver sá er út úr þeim fer verður rifinn sundur, því að afbrot þeirra eru mörg, fráharfssyndir þeirra miklar."(Jer.5:6 ) Með öðrum orðum, varnirnar hurfu í samfélaginu og náttúran fór að vinna gegn þeim sem afleiðing ,,fráhvarfssyndanna"! Gæti slíkt gerst í dag þegar frelsið okkar ætti að vera fegurðin ein, eins og skáldið sagði;

,,Frelsið er sem svana söngur,

sólarbjörtu heiði frá,

eða hvíld á blómstur bökkum,

blárra vatna spegli hjá!"

        Á.E.

,,Pardusdýrin í borgunum" réðust á mannréttindin sem ég hafði stjórnarskrár varin!!! 

Hvað eru úlfarnir og ljónin í okkar náttúru? Hafi gyðingarnir fengið þessa lexíu á dögum Jeremía ættum við að halda að við sleppum?

Siðferðið okkar er himneskur fjársjóður gefinn til varðveislu en ekki niðurbrots!

Snorri í Betel


af hverju er spilling?

Stundum er erfitt að skilja einfaldleikann. Við erum í svo flóknu samfélagi. Þegar ég heyri talað um vandamál barna og unglinga þá er yfirleitt verið að vísa til ,,flókinnar tilveru" þeirra. Þetta var fundið upp fyrir áratugum svo sem, en ég hef upplifað að hinar sjálfsögðu reglur um heiðarleika, sannsögli og hið varanlega virðist ekki eiga upp á pallborðið hjá okkur í dag.

Í kristinni trú er talið sjálfsagt og eðlilegt að hjónaband sé ævilöng tenging. ,,Ekkert skilji okkur að nema dauðinn" hefur stórlega laskast undanfarna áratugi. ,,Það er svo erfitt að vera unglingur" gæti verið ,,skýringin" á því hve gildin eru sterklega á undanhaldi af því að við gerum ekki lengur kröfu um að hjónin standi saman og séu hvoru öðru trú. Við virðumst svo auðveldlega smitast af nútíma viðhorfum. Hvað er svona erfitt við að tileinka sér viðhorf til að hlúa að maka sínum og varðveita heimili sitt en að velja sína eigin leið af því að .....(bara)? Svo rammt kveður að þessu breytingum að biblía nýrrar aldar hefur ekki lengur þessi orð Guðs: ,,Því að ég hata hjónaskilnað" (Malakí 2:16) Ætli Guð eigi einnig erfitt með að fóta sig í flóknum heimi, líkt og unglingarnir, fyrst Biblían greinir frá breyttu viðhorfi hans til hjónaskilnaðar?

Ég var á spjalli um dauðann við mér yngri og bar upp hina kristnu sýn á málefnið. Ég greindi frá því að dauðinn væri ekki eilífur, hann á sinn afmarkaða tíma í tilverunni. Þetta var þeim nokkuð framandi og enn þá meiri varð undrunin þegar ég greindi þeim frá því að innan skamms tíma kæmi rynni upp dagur þegar kirkjugarðarnir á Íslandi myndu missa frá sér alla þá sem áttu trú á Jesú við andlátið. Þeir myndu lifna við og verða með samskonar upprisulíkama og Jesús hafði við sína upprisu. Hann gekk, borðaði með þeim, notaði hendurnar talaði, sá og heyrði. Tómas fékk að koma við hann og fann vel fyrir efnislegum líkama. Þetta er hin kristna trú að við verðum honum lík.

Það sló þögn á viðmælendurna uns sagt var..,,ég lít nú ekki alveg svona á málin"! Ég sá þá að Hallgrímur hafði upplifað hið sama í sinni tíð og segir þess vegna:

,,Sú von er bæði völt og myrk

að voga freklega á holdsins styrk

án guðs náðar er allt vort traust

óstöðugt, veikt og hjálparlaust."

 

Erum við sem samfélag ekki frávillingar frá hinni kristnu kenningu bæði um hjónabandið og upprisuna?

Ég sé það í hendi mér að kirkjan þarf að fara að bretta upp ermar og boða að nýju kristnina, kristna lífssýn og hvað kristnin segir okkur um framtíðina.

frh.

 

kveðja

Snorri í Betel


spilling þjóðar?

„Við erum ger­spillt sam­fé­lag. Það er ekki bara ég. ÉG hef verið að benda þér á það að 66% þjóðar­inn­ar sem eru á því að spill­ing sé stórt vanda­mál í ís­lensku sam­fé­lagi.“ Þetta sagði Gunnar Smári, Sócíalisti í viðtali. Hann er ekki einn um þessa skoðun. Nokkrir frambjóðendur í kosningabaráttunni (sept.2021) hafa haft orð á þessu sama.

Hvernig er spillingin?

Oftast er bent á tengingarnar við valdaflokkana og stéttir manna sem hafa aðgang að miklum fjármunum. Sjálfstæðisflokkur og dómarastöður, Sjálfstæðisflokkur og útgerðirnar stóru, Sjálfstæðisflokkur og ....? Hvað vilja menn nefna?

Trúlega er hægt að nefna mjög margar tengingar milli stjórnmála og ráðningar í ,,valdastöður"! En hvernig fer þá með úthlutun á kvóta ef ,,spilltir" stjórnendur ríkis og ráðuneyta fá þetta verkefni í hendur? Og Samfylking ásamt Viðreisn vilja efla skatta og gjöld til að fá sannvirði kvótans í ríkissjóð. Er verið að leiða ,,freistnivanda" inní ráðuneytin og ríkisstofnanir? Er ekki auðvelt að borga ,,kommissaranum" undir borðið til að fá úthlutunina? Má þá hæstbjóðandi í kvótann veiða í íslenskri lögsögu? Ef hæstbjóðandi er þýsk, spönsk, eða ensk útgerð, fær hún þá frjálsan aðgang að fiskimiðunum? Þá gæti orðið þröngt um íslenska útgerð og farið eins fyrir henni og smábátaútgerðinni. Saga okkar til veiða og aflabragða gæti orðið lífleg bankaviðskipti milli landa ef ,,spillingin" tekur völdin.

,,Spilling" er yfirleitt tilvísun í rangt og ósanngjarnt hugarfar. Spilltir menn fara illa með auð, völd, hjónabönd og náungann jafnvel sjálfa sig! Mafían er dæmi um spillta menn. En Tryggingastofnun ríkisins sem hjólar í þá fátæku og endurkrefur þá um ,,ofgreiddar" bætur spillt? Eða starfsmenn þar sem segja að ,,endurhæfing er ekki fullreynd" þó svo að læknisvottorð segi annað, spilltir?  Er það ekki dæmi um spillt samfélag sem þarf aðgæslu Umboðsmanns Alþingis til að fá frá ráðuneytinu skírari svör um þær reglur sem TR eigi að vinna eftir.

Er það ekki dæmi um spillingu að hlýða á kosningabaráttu þar sem hver flokkur kemur með lausnir, svör og fyrirheit um betra samfélag verði þeir kosnir en undanfarin ár hafa þeir stungið stefnumálum sínum undir stól og haft þau að engu, aðeins til að þóknast ,,hinum í stjórnarsamstarfinu"? 

Hvað með löggjöf um kynin öll, breytingu á íslenskri tungu til að þóknast fámennum hóp sem glímir við hugaróra og afbrigðilega kynhegðun? Er það dæmi um spillt hugarfar? Hvers virði er Blóðbankinn, má fórna öryggi sjúklinga í blóðgjöf bara til að þóknast Samtökum 78? Er einhver spilling fólgin í þeirri fórn?

Ég er alveg viss um að grunnur hins spillta þjóðfélags liggur í því að við höfum hafnað Guði. Kirkjan klæðskerasaumar kristna kenningu eftir tíðarandanum og er því hvorki salt né ljós fyrir þjóðina.

Pétur postuli segir:,,...til þess að þér skuluð víðfrægja dáðir hans sem kallaði yður frá myrkrinu til síns undursamlega ljóss"!(1.Pét.2:9)

Flokkar sem vilja ekki kenna grunnskólabörnum þessi kristnu fræði eru dæmdir til að leiða spillinguna inn í stjórnkerfi Íslands af því að þeir hafna ljósinu en velja ,,Myrkrið"!

Svarið okkar gegn spillingunni er að kjósa þá aðila sem leggja til kristinfræðina sem námsgrein í grunnskólum landsins og kveikja ljós óspilltrar hugsunar meðal barna okkar. Göngum á vegi ljóssins þar sem allt má vera sýnilegt!!!

Snorri í Betel


Neyðar - Óp aldraðra?

Sigmundur Ernir ritar í dag leiðara fréttablaðsins og fer yfir lífshlaup 68-kynslóðarinnar. Þar hrósar hann kynslóðinni fyrir uppreisnarandann sem einkenndi okkur og lagði sitt að mörkum til að breyta öllu því sem breyta mátti og vill núna fá að vinna af því að við eru ekki svo gömul.

En það ýtti við mér tölurnar sem nefndar eru í forystugreininni hve stórt hlutfall við erum af þjóðinni. Hann segir:,,Á fyrstu árum nýrrar aldar hefur fjölgað um 58% í hópi 70 ára og eldri á meðan landsmönnm hefur fjölgað um 30%."

Þessi kynslóð leiddi fram ,,frjálsar ástir", við öll munum eftir villtum tónleikum (Woodstock) og svo börðumst við fyrir því að leysa ,,þungunarvandann"vegna frjálsra ásta með fóstureyðingum. Frá 1975 hefur meðaltal fóstureyðinga á ári verið nærri 1000. Frá 1975 til 2021 =46000 fóstureyðingar. Það þýðir að börnin mættu aldrei í skóla eða til vinnu.

Getur ástand okkar 68 kynslóðar verið ávöxtur af okkar eigin gjörðum? Okkur fannst það mannréttindi að fá að eyða fóstrum og þau sem fengu að lifa eru mannfærri kynslóðir en okkar. Þeim finnst kannski þau ekki bera svo brýna skyldu til að sjá okkur farborða? Ellilífeyrisþegarnir sitja því uppi með vonda sáningu og fá því lélega uppskeru.

Núna eru kynslóðirnar ráðandi sem  ólust upp undir skoðunum 68kynslóðarinnar og meðtóku uppeldið frá þeim frjálslyndu sem vildu ekki axla ábyrgð á getnaðinum heldur leystu vandann með tæknivæddum hætti. 

Svar nútíma ráðamanna er svar afkomenda 68 kynslóðarinnar. Þegar uppskeran hjá okkur er rýr eftirlaun þá er það okkar eigin ávöxtur sem hefur völdin og skammtar það sem þeim finnst rétt. Af hverju ættu litlar kynslóðir þurfa að vinna og sjá stóran hlut af þeirra tekjum fara í uppihald okkar?

Mikið væri gott að geta sagt þeirri kynslóð sem eru umsjónaraðilar þjóðfélagsins að geta af sér afkomendur, frekar fleirri en færri og svo varðveitum við samböndin með ást, kærleika og réttinum til lífsins.

Og HP segir:,,Og rættist þeim þannig óskin köld að enn í dag bera þeir hennar gjöld"! Er ,,neyðar" Óp aldraðra svar þeirra kynslóða sem okkur þótti sjálfsagt að eyða?

 

Snorri í Betel


Gagnslaus vettvangur!

,,Katrín lagði áherslu á mik­il­vægi þess að leysa deil­una á vett­vangi Sam­einuðu þjóðanna og að vopna­hléi þyrfti að koma á taf­ar­laust".

Stoppum vitleysuna á Gaza?

Allir vilja bjarga börnum og stöðva dráp á ,,saklausum borgurum"! Má bara drepa seka borgara, hermenn og/eða gyðinga?

Sameinuðu þjóðirnar hafa haft yfirumsjón með málefnum Palestínu all lengi. Hver er árangurinn? Ekkert lýðfrjálst land eða demokratískt ríki hefur fengið jafn margar yfirlýsingar samþykktar gegn sér og Ísrael.

1. Ísrael var gert að yfirgefa Gaza árið 2005, að undirlagi SÞ.

3000 elflaugum var skotið frá Gaza á Ísrael undir vökulu auga . Engar yfirlýsingar birtust gyðingum í vil.

2. Kosningar voru haldnar hjá Palestínumönnum fyrir 15 árum. Undir vökulu augum hafa ekki verið kosningar hjá Palestínumönnum síðan. Hafa SÞ sagt eitthvað?

3. Milljarðar hafa streymt frá Evrópu og Ameríku til uppbyggingar á Palestínskum svæðum og líka á Gaza. Mest af því fé hefur farið í gerð jarðganga og undirbúnings stríðsátaka við Ísrael. Hafa komið með einhverjar ályktanir um stríðsuppbygginguna og illa meðferð á fé frá alþjóðastofnunum til uppbyggingar á Gaza?

4. Stjórnendur á Gaza, Hamas eru hryðjuverkasamtök. Þau hafa lagt allan sitt metnað í að hervæðast og efna til ófriðar við Ísrael. Skotið hundruðum eldflauga og sent ótal eld loftbelgi til að brenna gróður og akra í Ísrael. Hafa ályktað eitthvað um þessar aðgerðir. Ætlar Katrín Jakobsdóttir talað um þessar ,,eldsendingar" frá Gaza?

5. Hvað þurfa gyðingar að fá yfir sig til að við á Íslandi sjáum og viðurkennum að hart er sótt að tilverurétti gyðinga og Ísraelsríkis. Af hverju gladdist þjóðin þegar Hatari flaggaði fána hryðjuverkamanna við þátttöku sína í Sönglagakeppni Evrópu sem haldin var í Tel-Aviv? Sagði Katrín eitthvað þá? Síðan hefur Ísland barist fyrir tilverurétti sínum í sönglagakeppninni?

Við höfum frekar lagst á sveif með hryðjuverkasamtökum og gegn Ísrael undanfarna áratugi. Allan þann tíma hafa átök staðið milli Hamas og gyðinga. Allan þann tíma hafa SÞ ekki borið klæði á vopnin eða náð neinum árangri í að beina samskiptum Palestínumanna og gyðnga inná braut friðar og uppbyggingar. Við virðumst heillum horfin og viljum ekki skilja að þegar Trump dró fjárhagslegan stuðning til baka ásamt Evrópu vegna illrar meðferðar Palestínumanna á fjárveitingunum þá höfum við ekki lagt til að taki málin í sínar hendur. Nú sjá menn að þegar Biden hóf greiðslur á  fjárhagsstuðningi til Hamas fengu þeir á Gaza pening til að hefja stríðsrekstur og það gerðu þeir með stæl. Af hverju stoppa Ísrael núna? Mega þeir ekki koma skikk á málin til að lifa í friði?

Nú vill Katrín Jakobsdóttir ræða málin við utanríkisráðherra Bandaríkjanna og Rússa. Mun hún fá þá með sér í lið til að komi inní málin með vitrænum hætti?
Mikið er ég hræddur um að dómgreind forsætisráðherra gagnist lítið í þessum viðræðum. Til að leysa svona mál eins og átök milli Ísraels og Palestínumanna þarf valdameiri aðila en íslenskan ráðherra.

Snorri í Betel


Samansafn heimskingja?

Þegar afkomendur Alþýðubandalagsins, gæslumenn Sovétskra hugmyndafræði tjáir sig um utanríkismál og deilurnar fyrir botni Miðjarðarhafs finnst manni að eitthvað vitrænt ætti að geta komið frá fólki með þennan bakgrunn innihaldslausrar hugmynafræði.

Stóra myndin er þessi að gyðingum var gefið landið Ísrael og Jórdanía með Balfour yfirlýsingunni, þá kallaðist landið Trans-Jordanía. Þar áttu báðir að búa saman gyðingar og Arabar. Eitthvað stirðnaði sambúðin og því til dæmis er frásaga Magnúsar Guðmundssonar og Ásmundar biskups, vinar hans til Landsins Helga um 1936 athyglisverð. Þá var ekkert Ísrael til og Bretar sáu um stjórn landsins. Bæði Arabar og gyðingar áttu í skærum við Bretana og svo innbyrðis áttu Arabar í skærum við gyðinga. í einni ferð þeirra félaga frá Tíberías til Jerúsalem fóru þeir í almennigsvagn. Fyrir öllum gluggum var búið að koma fyrir hænsnaneti. Þeir spurðu um ástæður og var svarað að þetta væri til að verjast handsprengjum sem Arabar gjarnan henda í glugga almenningsvagna til að drepa þá (mest gyðinga) sem ferðast með vögnunum milli staða. Hver var ástæðan? Ekki voru gyðigarnir farnir að ,,stela löndum" þá. En mikið höfðu þeir keypt lönd og svæði af Tyrkjum.

Tólf árum síðar stofna gyðingar Ísraelsríki að tillögu Íslendinga og samþykkt SÞ! Það kom til vegna ófriðar milli Araba og gyðinga. Hverjir ætli hafi stofnað til ófriðarins? Á þeim árum fyrir og eftir seinni heimsstyrjöldina stofnuðu Arabar her í samvinnu við Hitler. Stefnan var að hreinsa löndin fyrir botni Miðjarðarhafs af gyðingum. Múftinn af Jerúsalem, afabróðir Yassírs Arafats var stjórnandi þeirrar haturshreyfingar.

Stríðin komu, útrýming á gyðingum mistókst og hingað erum við komin. Í síðustu átökum sendi Ísland Hamas samtökunum 300 milljónir til styrktar Hamas á Gasa. Fyrrum ritsjóri Þjóðviljans, Alþýðubandalags maðurinn og ráðherran Össur fór um Egyptaland yfir landamærin við miklar tafir og erfiðleika. Egyptar áttu einnig í miklu brambolti með Gazamenn. Þetta var sama árið og við misstum brúnna yfir Múlakvísl.

Nú hafa íslensk stjórnvöld staðið með þeirri hugsun að Palestínskt ríki verði stofnað við hlið Ísraels. Reyndar hafa Ísraelar stutt það einnig en það er eins og allur krafturinn fari í innbyrðis átök og að eyða Ísrael. Hafa Palestínu menn engan áhuga á eigin ríki? Milljarða styrkir frá erlendum ríkjum eru teknir og geymdir inná reikningum hernaðarsamtakann Hamas eða á reikningum Súu Arafats. Palestínu maðurinn fær lítið sem ekkert.

Hverjum er svo um að kenna að börnin farast, sjúkrahúsin eru ekki í stakk búin til að taka við þeim særðu og enginn er sprautaður gegn Covit-19? Ekki hafa Ísraaelsmenn komið að þeim ákvörðum.

Vandinn í stöðunni er hugarfar manna sem vilja ófrið og leggja alla Palestínumenn á fórnaraltarið í stríðskostnaðinum til að eyða Ísrael. Hvergi líður Aröbum betur en í landi,,óvinarins" því þeir Arabar sem búa við ,,kúgun og landþjófnað" fara ekki eða flýja frá Ísrael! Það finnast landflótta Arabar víða í Evrópu frá öllum löndum Araba en í Ísrael vilja þeir greinilega vera.

Yfirlýsing þingflokks VG sannar að ekkert samhengi er í þekkingu á framvindu mála og fordæmingunni á Ísrael. Utanríkismál eru í sama skötulíki og trú Sócíalista á Sovétinu meðan það var og hét.

Biblían segir:,,Sá sem sekan sýknar og sá sem saklausan sakfellir þeir eru báðir Drottni andstyggð."(Orðskv. 17:15) Það er slæmt veganesti inní kosningarnar í haust.

Þingflokkur VG fær falleinkunn fyrir óvönduð vinnubrögð. Kjósum þá ekki!

Snorri í Betel 


mbl.is Þingflokkur VG fordæmir „valdníðslu“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Baráttan um Musterishæðina.

Musterið

Saga hæðarinnar er löng og teygir sig líklega allt til daga Abrahams eða til 2000 f.kr. 4000 ár er langur tími og merkilegt að við eigum sögu þessa staðar í lifandi frásögn og boðskap Biblíunnar. Musterishæðin er líklega staðurinn þar sem Abraham ætlaði að fórna Ísak syni sínum. Hann var stöðvaður við verkið og var bent á hrút sem var álengdar og sá fór á fórnaraltarið en Ísak fékk að lifa langa ævi. Frá þeim tíma er talað um Guðs Abrahams, Ísaks og Jakobs.

Svo líða þúsund ár, til daga Davíðs konungs að hann kaupir Þreskivöll Ornans Jebúsíta. Drepsótt geisaði í landinu og Davíð stöðvaði sóttina með því að kaupa land Ornans bónda, þreskisleðann og nautin sem drógu hann. Nautunum var fórnað, sleðinn brenndur á fórnaraltarinu, drepsóttin stöðvaðist og Davíð orðinn eigandi landsspildunnar, Musterishæðarinnar.

Svo tók Salómon við konungsdæminu og byggði Musterið, eitt hið glæsilegasta hús fornaldar.Það var vígt 480 árum eftir burtför Ísraelsmanna úr Egyptalandi.  Vitað er að tilhöggið grjót úr grjótnámu í norðurhluta Jerúsalem borgar var notað í Musterið en þær uppgötvuðust um 1830 og teljast hinn helgasti staður Frímúrara. Biblían greinir einnig frá því að gull magnið sem búið var að draga að til Musterisins voru 3000 talentur (180 tonn )!

Musterin urðu 3 kölluð Musteri Salómons, sem Babyloníumenn brenndu, Musteri Serúbabels það sem reist var eftir að gyðingar komu heim úr herleiðingunni og svo síðasta Musterið kallað Musteri Heródesar sem var í smíðum einmitt á dögum Jesú Krist. Árið sem það musteri var fullbúið, 70 e.kr.var það svo rifið til grunna. Eftir það hafa menn aðeins haft aðgang að hæðinni.

Þegar Múslimar taka Jerúsalem virðast þeir hafa frá upphafi takmarkað aðgang annarra að hæðinni. Enn í dag er það birtingarmyndin í fréttinni að gyðingar og kristnir mega ekki koma uppá hæðina nema með ströngum skilyrðum. Ekki má lesa í Biblíunni eða fara með bænir. Múslimir ráða og ætla að ráða.

Vegna afstöðu Múslima til þessa málaflokks má setja deiluna í þennan búning. Fyrst stóð deilan um yfirráðin á landinu. Tyrkir höfðu haft yfirráðin frá 1517 og byggðu múrana í kringum gömlu Jerúsalem í upphafi sinnar ráðstjórnar. Þeir fóru að selja gyðingum lönd og staði uppúr 1870 þangað til þeir missa landið þega Allenby hersöfðingi Breta tók það í fyrri heimstyrjöldinni. 1917 gefa Bretar gyðingum landið með Balfour yfirlýsingunni og kalla landið Trans-Jórdaníu. Ekki reyndist sambýlið auðvelt við Araba og Bedúína svo þegar gyðingar stofna ríkið sitt 1948 ráðast Arabar með miklu offorsi á hið nýstofnaða ríki og ætla að útrýma gyðingum í því stríði. Eins og flestir vita þá tóku Arabar lönd frá gyðingum í stríðinu 1948. Gyðingar unnu aftur löndin í 6 daga stríðinu og síðan hafa menn kallað þessa skika ,,herteknu svæðin"! Þessi svæði voru hertekin fyrir 1948 af Jórdönum og þar áður af Tyrkjum 1517. Svo ekkert er nýtt undir sólinni.

Barátta milli þessara hópa hefur því færst nær Musterishæðinni og stendur nánast eingöngu um þann blett í dag. Svo mikill hiti er í málinu að ferðafrelsi Araba var afnumið til Musterishæðarinnar því hvaðanæfa úr Ísrael vildu ungmennin halda í ólætin uppá Musterishæðina, hlaðin bensínsprengjum og grjóti.

En er það virkilega svona mikill glæpur í augum Múslima að gyðingar og kristnir fari uppá Musterishæðina til að biðja? 

Ég held að í dag megi það vera öllum augljóst að krafan er sú að gyðingar fái yfirráðin samþykkt og viðurkenndur verði byggingarréttur á nýju Musteri. Það er ,,bleiki fíllinn" að Musterið verði byggt. Ég læt fylgja mynd af peningum sem gyðingar hafa gefið út til að fjármagna Musterisbygginguna. Á peningnum er áskorun til Trumps að hann gangi inní smurningu Kyrusar Persakonungs. Hann gaf út byggingarleyfi til að reisa Musteri Serúbabels. Þessi kafli að endurreisa Musteri hefur ekki verið gerlegur í sögu gyðinga, fyrr en nú. Frá 70 e.kr til dagsins í dag hefur þetta ekki verið möguleiki.

Út úr þessum átökum verður aðeins ein útkoma. Arabarnir verða að sætta sig við að Musteri gyðinga verður að fá að rísa. Sagan heldur áfram.

Framtíðarsýn Biblíunnar er nefnilega sú að í Musterið muni setjast sá sem kallaður er Anti-Kristur og ætlar að gera sjálfan sig að Guði. Páll postuli greinir frá þessari sviðsmynd í 2.Þessalónikubréfi og kafla 2. Það er að koma að þessu atriði Biblíunnar og spádómar hennar hafa allir ræst framundir þetta. Örfáir eru eftir sem tengjast komu Andikrists, hörmungartíð hans og stjórn,  með Harmagedon og svo endurkomu Jesú, þegar hann kemur á skýjum himins og reisir upp frá dauðum þúsundir látinna kristinna einstaklinga. Þetta er allt í ljósi sögunnar og spádómanna.

Það sem blasir við augum okkar er staðfesting á orðum Biblíunnar.

Snorri í Betel


mbl.is Mörg hundruð særðust í Jerúsalem
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Heimilislæknir falsar sjúkra skýrslu?

Sveinn Rúnar Hauksson fer mikinn á síðum Mbl í dag. Þar fjallar hann um Von Palestínu. Það er aðeins eitt sem hrjáir Palestínu og það er Ísrael. (þetta segja þeir í Theran, kalla Ísrael sár á líkama Islam)! Þeir, Ísraelar (sem virða yfirráð Hamas á Gaza) láta Hamas ekki fá bóluefni fyrir Covid 19 og gera fólkinu á Gaza allt til bölvunar. Kosningar sem haldnar voru undir eftirliti Jimmy Carters stofnunarinnar fyrir meira en 15 árum voru ekki virtar af: ísrael, Bandaríkjunum og Evrópusambandinu! 

Milli Hamas og Fata hófst blóðugt uppgjör. Hvar komu Ísraelar þar að málum? Að viðurkenna yfirráð Hamas hefur verið krafa SRH og samtökunum Ísland Palestína frá árinu 2009. Krafan er að virða samtök sem virða ekki rétt Palestínumanna til kosninga og lýðræðis. Hvorki í sjálfstjórnarhéruðunum á Vesturbakkanum eða á Gaza hefur verið efnt til kosninga í 15 ár. Hver skyldi ástæðan vera? Örugglega Ísrael? Hvað fengu Hamas og Fata langt umboð til stjórnunar? Var það meira en 4 ára kjörtímabil? Þegar Palestínumenn fá tækifæri til að sýna ábyrgð eigin mála þá geta þeir ekki einu sinni fengið bóluefni fyrir arabiskan almenning gegn Covit-19. Þeir eru svo uppteknir af Ísrael að skjóta eldflaugum þangað.

Von Palestínu? Hún er hin sama og Líbanons. Þar stjórna Hesbolla samtökin og hafa komið málum svo fyrir að Líbanon er hrunið ríki með höfuðborgina í rústum því landið var ,,hertekið" af Hesbolla til að berjast gegn Ísrael. Hvað er að gerast á Gaza? Alveg hið sama og í Líbanon. Fólkið er í herkví og kúgað af Hamas. Fær ekki að kjósa eða lifa friðsömu lífi því sem þeim var lofað ef Ísrael yfirgæfi Gaza 2006. Eftir að Ísraelar fóru frá Gaza 2006, hafa Gazabúar ekki séð glaðan dag. Vont þegar sjúkraskýrsla læknisins lýgur öllu um góða heilsu sjúklingsins í höndum Ismael Haniýa.

Hamas leggja sig fram um lýðræðislega ,,ímynd" segir læknirinn. Það gerðu nazistar líka. Í þeirra stjórnartíð urðu aldrei kosningar í Þýskalandi. Var útrýming á gyðingum samkvæmt niðurstöðum lýðræðislegra kosninga?

Var það skv lýðræðislegri niðurstöðu kosninga að Reykjavíkurborg samþykkt viðskiptabann á Ísrael? Það birtist ótrúleg vitleysa í ritum læknisins og gerðum konu hans gegn Ísrael. Þau geta ekki dulið gyðingahatrið sem býr í þeirra sjúka huga.

Gyðingarnir í Ísrael eru með innan sinna landamæra rúmlega eina og hálfa milljón Araba. Enginn þeirra vill flýja þaðan. Spyrjiði bara leigubílstjórana ef þið eigið kost á að heimsækja Ísrael og taka leigubíl.

Af hverju halda gyðingarnir hinum ,,herteknu svæðum"? Stríð eru alvarleg og breyta yfirráðum og landamærum. Arabar sögðu gyðingum stríð á hendur, töpuðu löndum, yfirráðum og ákvörðunarrétti. Þess vegna sitja þeir uppi með góða stöðu á þeim svæðum þar sem gyðingarnir ráða og eru með eignarréttinn í lagi. Ég hef komið til Jeríkó og séð stóra rauða skiltið með skilaboðunum um að gyðingar eru óvelkomnir inná yfirráðasvæði Palestínumanna. Enginn leiðsögumaður af gyðingaættum fer því þangað með ferðamannahóp sem hann er að leiðsegja um sögu landsins.

Minni á að ekki eru gyðingar að skjóta eldflaugum í tíma og ótíma á íbúa á Gaza, á Vesturbakkanum, á Líbanon eða Sýrland. Það er ekki hægt að segja um hina, því miður!

Snorri í Betel


Siðsöm þjóð eða vondir menn?

Siðsemi manna skapar samfélag. Þjóð er auðvitað fjöldi einstaklinga og þeir þurfa allir að búa við einhverskonar ,,allsherjar reglu"! Athugasemd var gerð vegna orða og aðfinnslna á austur-Evrópuþjóðir sem hafa smitað aðra á Íslandi. Þessar þjóðir bjuggu í ,,Sovétinu" draumalandi sócíalista. Ekki ber á öðru en að fólkið frá ,,fyrirmyndar" samfélaginu sé nauðalíkt okkar samborgurum. Fólk með hæfileika sem leitar sér lífsviðurværis en kannski teygir reglurnar út að ystu mörkum, líkt og Samherji eða einhver annar íslendingur, jafnvel líkt og Blaðamannafélagið, kvenréttindakonurnar og jafnréttisfulltrúarnir?

Ég var þakklátur RÚV fyrir viðtalið við Kjartan Ólafsson, fyrrum ritsjóra Þjóðviljans og Sócíalista. Hann játaði að hafa tekið þátt í blekkingunni á fyrirmyndarríkinu Sovétríkjunum. Taldi hann að margt óþægilegt myndi snerta núlifandi Íslendinga, afkomendur þeirra sem trúðu á, börðust fyrir og þráðu að Ísland yrði hluti af Sovétskipulaginu ,,sæla".

Í dag er Kjartan þakklátur fyrir að Sócíalisminn náði ekki sterkari tökum en þeim sem nú þegar eru. Hann komst að því að mennirnir eru vondir og Sovétið gat ekki lagað illsku mannanna!

Afi konu minnar, var einn af stofnendum Sócíalista flokks Íslands, Sameiningarflokk alþýðu. Hann sagði mér að eftir þann stofnfund fór hann alsæll heim og yljaði sér við drauminn um fyrirmyndarríkið þar sem enginn skortur væri og engin grimmd af því að allir hefðu það gott. Skipting auðæfannna myndi útrýma illskunni í mannfélaginu.

Daginn eftir stofnfundinn var annar haldinn í hinum nýja flokki til að setja saman framboðslista Sócíalistanna. Menn náðu einhverskonar samkomulagi, fundi var slitið og minn maður fór heim, hryggur og niðurbrotinn. Hann varð vitni að því þegar hugsjónarmennirnir nýttu hvert tækifæri til að koma sér á framfæri á kostnað skoðanabræðra sinna. Þá afhjúpaðist eðli mannsins um sérhagsmuni, eiginn frama og sjálfumgleði. Fögur hugsjón hvarf fyrir snúnu og illu eðli mannsins.

Jesús segir:,,Ef þér sem vondir eruð hafið vit á að gefa börnum yðar góðar gjafir" og ,,Þér nöðrukyn, hvernig getið þér sem eruð vondir talað gott"? Þessi orð eiga einnig við sócíalistana bæði þá gömlu og nýju.

Kjartan Ólafsson,ritsjóri og Jesús Kristur lýsa manninum eins. Eðli okkar er ,,illska alla daga"! Sama niðurstaða og Guð sagði um kynslóðina frá sköpuninni til Nóa. Þeir voru staddir í draumaveröld og fyrirmyndarríki en leiddu yfir tilveruna vald syndar og dauða sem dæmd var með Nóaflóðinu!

Hverju skyldum við eiga von á? Hafi Guð dæmt fyrri kynslóðir vegna synda þeirra við hverju megum við búast? Eða af hverju ættum við að sleppa?

Í dag stendur okkur jafnt Sócíalistum sem og viðhengjum annarra ,,isma", aðeins ein lausn okkar mála. Lausnin er að láta Jesú og kenningar hans móta lífsmáta og hugarfar okkar. Það er eina vonin til að hægt verði að búa til réttlátt þjóðfélag með öllum þeimm réttindum og skyldum sem þarf að virða.

Guð fer ekki í manngreinarálit og veit að ,,án hans getum við alls ekkert gjört"!

Snorri í Betel.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (16.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 59
  • Frá upphafi: 241201

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 53
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband