30.10.2023 | 14:35
Vættir eða Guð?
Hvort er öflugra Guð vors lands eða vættir fornaldar. Við kristnitöku voru átök og ,,við sjálft lá að Alþingi berðist"! Mönnum var ekki sama um trú á hin fornu goð eða trú á Jesú Krist, sem sigraði dauðann og djöfulinn. Hann var dæmdur saklaus af Pílatusi og fór fyrir þig og mig til að ná vopnum dauðans og Satans svo þeim tækist ekki að tortíma öllu lífi í mannheimum. Mér finnst eðlilegt að minna á að heiðnir menn eru sagðir hafa varpað 4 mönnum ofan af brún Almannagjár til að efla goðin í andstöðu við hina nýju trú, kristnina. Trúarjátningin sem menn fara iðulega með á tyllidögum segir reyndar:,,Ég trúi á Guð, föður,almáttugan, skapara himins og jarðar..."! Það er því nokkuð tákn tímanna að eftir að hundraðþúsund konur hrópuðu á Arnarhóli. ,,Fokk feðraveldinu" og gjörðu sig að andstæðingum Guðs Föður, þá skuli koma tilboð um að fólk kynni sér galdra og fordæðuskap.
Kristin trú hefur mjög sterkar skoðanir á þessu og segir eftirfarandi: ,,Nei, heldur það sem heiðingjarnir blóta, það blóta þeir illum öndum, en ekki Guði. En ég vil ekki að þér hafið samfélag við illa anda. Ekki getið þér drukkið bikar Drottins og bikar illra anda. Ekki getum vér tekið þátt í borðhaldi Drottins og borðhaldi illra anda? Eða eigum vér að reita Drottin til reiði?" (1.Kor. 10: 20 - 22)
Þessi tillaga Höllu Signýjar er því tillaga um að við vekjum upp reiði Guðs gagnvart landi og þjóð. Við höfum ekki efni á því að fá andstöðu hans yfir okkur. Við getum ekki einu sinni lagað peningamál launþega og ofurgræðgi peningstofnanna hvað þá sjávarútveg eða landbúnað!
Þetta er líka opinberun á því sjúka hugarfari sem við höfum alist upp við með því að blanda saman þjóðkirkju, sem á að vera Kristin og svo okkar eigin trú og áliti sem býr til grautinn úr afgöngum trúarbragða. Hér á landi tengja menn saman, bæn, Yoga, núvitund og innhverfa íhugun. Margt komið frá framandi menningarheimi þar sem enginn Heilagur Andi er hluti af trúnni. Þetta minnir á trúarviðhorf Samverjanna sem Biblían greinir frá og segir: ,,Samverjar gjörðu sér sína guði, hver þjóðflokkur út af fyrir sig og settu þá í hæðarhofin er þeir höfðu reist, hver þjóðflokkur út af fyrir sig, í sínum borgum þeim er þeir bjuggu í. Babylóníumenn gjörðu líkneski af Súkkót Benót, Kútmenn gjörðu líkneski af Nergal, Hamatmenn gjörðu líkneski af Asíma, Avítar gjörðu líkneski af Nibkas og Tartak, en Sefarvaítar brenndu börn sín til handa Adrammelek og Anameæel, Sefarvaím-guðum......Þannig dýrkuðu þá þessar þjóðir Drottin, en þjónuðu þó um leið skurðgoðum sínum. Börn þeirra og barnabörn breyta og enn í dag eins og feður þeirra breytu. (2.Kon. 18. 19 - 32 og v. 41)
Átrúnaður er nefnilega enginn leikur. Kristnum mönnum er hollast að halda sér við hinn upprisna, sigurvegarann sem hfur allt vald, bæði á himni og jörðu. Því eins og atburðir fyrir botni Miðjarðarhafs sýna okkur glöggt að þá er afar stutt í endurkomu Jesú Krist. Hann er sá eini sem getur stöðvað útrýmingu manna og gjöreyðingarstríð það sem nú er í gangi. Nær væri að þingheimur legði bæn þessa fram fyrir Guð: ,,Kom þú Drottinn Jesús"! Það er mikil þörf á að Þingheimur biðji um frið og Guðs vilja!
Snorri í Betel
![]() |
Góðar vættir hjálpi á Alþingi |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:39 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
27.10.2023 | 14:10
Maður kom fram, sendur af Guði??
Sr. Friðrik Friðriksson var ekki allur þar sem hann var séður. Frá því að ég kynntist Reyjavík hefur stytta hans verið við Lækjargötu. Mektarmenn hafa talið sig í hópi,,drengja Friðriks". Bæði íþróttafélög og kapellur bera nafn hans og hróður. Við útför hans var honum líkt við Guðs gjöf til þjóðarinnar og fram kom í líkræðu að honum var líkt við Jóhannes Skírara: ,,Maður kom fram sendur af Guði! Við Háls í Svarfaðardal, fæðingarheimili Friðriks stendur líka minnisvarði um Sr. Friðrik. En....
Svo er kveikt á ljósi og skuggahlið mannsins lýst upp. Þá brá mönnum og allir sendir í uppgjör. KFUM er kallað á neyðarfund því helgimynd Friðriks laskaðist verulega.
Það ætti svo sem ekki að raska stöðu hans á Íslandi því ef hann er eins og DV greindi frá, að hann hafi verið hommi þá ætti hann að geta fallið vel inní íslenska samtíðarmynd. Við höldum samtökum homma uppi með framlögum borgarsjóðs og fyrirtækja. Kippum okkur ekki upp við presta, trúbadora eða listamenn sem stunda samkynhneigðina. Umburðarlyndið okkar ætti ekki að verða til þess að stytta Friðriks sé tekin af stalli bara setja regnbogafánann við og taka manninn í sátt. Hann var jú, ,,sendur af Guði"! Og hvað með það þó svo að ,,homminn" hafi haft áhuga á drengjum? Samfélagið hefur sýnt mikinn áhuga á umburðarlyndi gagnvart samkynhneigðum og vikið frekar kennurum frá sem vara við þessari kennd eða benda á hættur sem fylgja því að afhenda Samtökunum 78 kennslu barna um Trans-lifnað eða samkynhneigð?
Er styttu KFUM af leiðtoga sínum ekki alveg eins gott að bera umburðarlyndi samtímans vitni og láta Friðrik vera kjurran með drenginn sinn?
Eða er þjóðin núna vakin enn eina ferðina til meðvitundar um að samkynhneigð er ekki í lagi, hvort sem hún er stunduð af lærðum eða leikum, prestum eða öðrum.
Vonandi vekur þetta þjóðina til að hún endurskoði afstöðu sína og umburðarlyndi gagnvart syndinni og taki þá afstöðu að það er best að vera sammála Guði um þennan málaflokk. Þeir fá ekki að erfa Guðs ríkið og því er eðlilegt að við höfum sömu afstöðu. Þess vegna eiga hvorki fyrirtæki eða borgarsjóður að stuðla að útbreiðslu þessa lífsmáta samkynhneigðra eða kennarar að fræða um þessar kenndir sem sjálfsagðar og eðlilegar. Þess vegna ætti þjóðkirkjan að taka sig saman í andlitinu og vera sammála postulanum og Jesú Kristi em báðir töluðu gegn lífsmáta Sr.Friðriks Friðrikssonar frá Hálsi í Svarfaðardal.
,,Maður kom fram, sendur af Guði og sagði: ,,Öxin er þegar lögð að rótum trjánna og hvert það tré sem ber ekki góðan ávöxt verður upp höggvið og í eld kastað"!
Mannfjöldinn spurði Jóhannes, ,,Hvað eigum vér að gjöra"??
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:41 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
trukona
-
hvala
-
zeriaph
-
hognihilm64
-
kiddikef
-
sigurjonn
-
baddinn
-
gudni-is
-
baenamaer
-
birkire
-
valgerdurhalldorsdottir
-
pkristbjornsson
-
ruth777
-
jullibrjans
-
goodster
-
sirrycoach
-
daystar
-
ellasprella
-
flower
-
valdis-82
-
valdivest
-
thormar
-
sigvardur
-
levi
-
malacai
-
hafsteinnvidar
-
davidorn
-
heringi
-
helgigunnars
-
icekeiko
-
kjartanvido
-
gretaro
-
stingi
-
jenni-1001
-
kafteinninn
-
eyjann
-
svala-svala
-
predikarinn
-
exilim
-
sax
-
truryni
-
morgunstjarna
-
coke
-
siggith
-
kristleifur
-
antonia
-
vor
-
valur-arnarson
-
deepjazz
-
bjarkitryggva
-
harhar33
-
thjodarskutan
-
balduro
-
gudspekifelagid
-
study
-
h2o
-
frettaauki
-
nyja-testamentid
-
nkosi
-
gudnim
-
genesis
-
ea
-
gullilitli
- gladius
-
bryndiseva
-
dunni
-
arnihjortur
-
arncarol
-
gun
-
gummih
-
gattin
-
johann
-
olijoe
-
vilhjalmurarnason
-
nytthugarfar
-
postdoc
-
eyglohjaltalin
-
hebron
-
muggi69
-
krist
-
trumal
-
pall
-
talrasin
-
angel77
-
gessi
-
ghordur
-
baldher
-
ragnarbjarkarson
-
adalbjornleifsson
-
bassinn
-
skari
-
kje
-
benediktae
-
nonnibiz
-
bjargvaetturmanna
-
doralara
-
nafar
-
contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (4.3.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 13
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar