útrásin á Rúv!

Bænin má aldrei bresta þig

búin er freisting ýmislig.

Þá líf og sál er lúð og þjáð

lykill er hún að Drottins náð.

H.P

 

Nú er búið að bjarga morgunbæninni á Rúv - að sinni! En Orð kvöldsins er enn í rásinni út úr Rúv. Fara Passíusálmarnir út eða verða þeir settir á við dagmál?

 

Biblían segir okkur að einkenni síðustu tíma verði svona:

"Vita skaltu þetta að á síðustu dögum munu koma örðugar tíðir. Mennirnir verða sérgóðir, fégjarnir, raupsamir, hrokafullir, lastmælendur, foreldrum óhlýðnir, vanþakklátir, vanheilagir, kærleikslausir, ósáttfúsir, rógberandi, taumlausir, grimmir, ekki elskandi það sem gott er, sviksamir, framhleypnir, ofmetnaðarfullir, elskandi munaðarlíf meira en Guð. Þeir hafa á sér yfirskin guðhræslunnar en afneita krafti hennar. Snú þér burt frá slíkum! 2. Tím. 3: 1 - 5

Nú þurfa menn áreiðanlega að biðja fyrir sér og sínum! Til hvers?

"Fyrst af öllu áminni ég um að bera fram ákall,, bænir, fyrirbænir og þakkargjörðir fyrir öllum mönnum, fyrir konungum og öllum þeim sem hátt eru settir til þess að vér fáum lifað friðsamlegu og rólegu lífi í allri guðhræðslu og siðprýði. Þetta er gott og þóknanlegt fyrir Frelsara vorum Guði sem vill að allir menn verði hólpnir og komist til þekkingar á sannleikanum.

Einn er Guð. Einn er meðalgangarinn milli Guðs og manna, maðurinn Kristur Jesús, sem gaf sjálfan sig til lausnargjalds fyrir alla. Það var vitnisburður hans á settum tíma. 1.   Tím. 2: 1 - 6

Gott veganesti kvölds og morgna. Góð tíðindi í útvarpi.

Drottinn Jesús Kristur láti ásjónu sína lýsa yfir þig og gefi þér frið, Amen.

 

k.kv.

Snorri í Betel 


Sannleikurinn sveigjanlegi.

Er sannleikurinn afstæður?

Þessu er nokkuð oft haldið fram og bent gjarnan á það að sigurvegararnir segja aðra sögu en þeir sem urðu undir eða töpuðu og sjónarhorn þessara eru því mismunandi. Mönnum ber þó saman um það að Bandaríkjamenn vörpuðu kjarnorkusprengjum á Japan. Þeir sem töpuðu stríðinu, Japanir, segja það sama og þeir sem unnu stríðið, kjarnorkusprengjum var varpað á Japan. Þetta er dæmi um það sem er ekki "afstæður" sannleikur hvort sem sigurvegarinn eða taparinn segir frá.

Samtími okkar hefur orðið vitni að mjög merkilegum "fréttaflutningi". Fréttir hafa verið sagðar um stríð á Gaza. Viðbrögð við þeim fréttum hafa verið Gazabúum til styrktar og stuðnings. Gjarnan hafa fréttirnar verið um það hve mörg börn létust í sprengjuregni Ísraelsmanna á þétta íbúabyggð á Gaza. Síðan fylgja myndir af fólki hlaupandi með lítil börn í fanginu og svo þar sem börn vafin líkklæðum. Enginn sættir sig við að slíkt sé gert gagnvart litlum saklausum börnum og menn mótmæla. Bæði hér og í Ísrael.

En börnin okkar á Íslandi? Stöndum við upp og mótmælum fyrir utan ráðuneyti, sjúkrahús og á torgum þeim til varnar? Við eyðum 900 börnum á ári. Næstum því 3 á dag. Það er meira "mannfall" í barnaskaranum á Íslandi, hjá 330.000 manna þjóð en á Gaza með 1,8 milljónir búa og í stríði. Af mótmælum okkar að ráða erum við meira friðelskandi en Ísraelar. En hver er sannleikurinn?

Fréttir eru farnar að berast okkur um "fjölmiðlafrelsið" á Gaza. Satt er að sumar myndir af barnslíkum séu frá Sýrlandi og allt að tveggja ára gamlar. Fjölmiðlamenn hafa verið reknir frá Gaza af því að þeir "skildu ekki stöðuma" og fluttu "óhagstæðar" fréttir. Hafa þær sést í íslenskum fjölmiðlum? Fjölmiðlarnir okkar á Íslandi eru ekki þeir einu sem við hlustum á því hægt er að sjá ABC; CNN,BBC, CBN, Fox, Sky, þýskar sem franskar svo eitthvað sé nefnt.  Við neytendur frétta höfum meiri samanburð á flutningi þeirra en áður var og því heyrum við og sjáum að "sannleikurinn" í fréttum er litaður af pólitískri afstöðu flytjandans.

Swartskopf hersöfðingi Bandaríkjamanna í Persaflóastíðinu 1991 viðurkenndi fúslega að fyrsta fórnarlamb striðsátaka er sannleikurinn. Hann er lagfærður fyrir almenning til að skapa velvilja við stríð og andstöðu við andstæðinginn. Það sama gerist hér á okkar landi þó friðsamt sé kallað!

Í Biblíunni er Heilagur Andi kallaður Andi Sannleikans. Hann breytist ekki, förlast ekki, varir og er ævinlega hinn sami. Sá sannleikur er ekki afstæður! En sá Andi getur komið eða farið.

Vita menn ekki að áður en til útrýmingaherferðar Nazista á gyðingum hófst var mikið áróðursstríð gegn þeim? Þeir voru útmálaðir sem pestarberar, rottur og ómennskir aurapúkar. Þessi áróður er enn til staðar og sérstaklega í Arabaríkjunum.

Hitler sá sína sæng útbreydda að breyta Biblíunni til að komast upp með allt það sem hann ætlaði að gera. Hann útrýmdi ekki Biblíunni heldur lét þýða hana skv. "tíðarandanum". Hann lét fjarlægja orðin gyðingur, Jehova, Hosianna, Zion og Jerúsalem. Boðorðin:"Þú skalt ekki morð fremja" og "Þú skalt ekki stela" voru fjarlægð ásamt því að tveim var bætt við "Heiðra skaltu foringjann" og "Haltu kynstofninum hreinum"! Hann setti á laggirnar "prestaskóla" árið 1939 til að koma hinni nazisku guðfræði inní kirkjuna og lét 50 manns umrita Biblíuna honum að skapi. Þannig réttlætti hann gjörðir Nazista og Þýsku þjóðarinnar gagnvart gyðingum(Alt om Historie, nr 11/2006). En samt fóru verk þeirra í þann farveg að skapa "veraldlegt" eða heiðið þjóðskipulag!

Ástæðan fyrir því að gyðingar fengu þessar ofsóknir áttu nokkuð djúpar rætur í evrópskum samfélögum. Þessi mynd með gyðinginn og réttleysið kemur fram í söngleiknum "Kaupmaðurinn í Feneyjum" sem er miðaldarsaga. Rússneskum viðbrögðum þar sem miklar ofsóknir hafa verið eins og "Fiðlarinn á þakinu" svo eitthvað sé nefnt. Þá má minna á að mörg Evrópsk ríki höfðu í lögum að bannað væri að selja gyðingum jarðnæði en þeir máttu lána fé og taka vexti svo reyndist verslun og listmunaframleiðsla eins og demantavinnsla þeim hagstæð. Þess vegna örvuðust þessi viðskipti meðal gyðinga. En réttleysið var fylgifiskur þeirra. Muna menn ekki eftir "Kristalsnótt" þegar ráðist var á verslanir gyðinga og þær merktar. Skömmu áður var að hver sem fór þar inn til að versla var kallaður fyrir lögreglu og látinn "gera grein fyrir athæfi sínu" fyrir það eitt að versla við þá en ekki þýska kaupmanninn á horninu. Það var opinbert viðskiptabann hvatt til af nazistum.

Dreyfus málið svokallaða ( fyrir 120 árum í Frakklandi) reyndist sumum gyðingum opinberun um það að þeir fengju aldrei notið sanngirni meðal annarra þjóðfélaga. Reyndist þetta rétt því bæði Evrópa sem og Arabaríki hafa ofsótt gyðinga í gegnum þeirra sögu. Meira að segja í Postulasögunni er greint frá því að Kládíus keisari hafi gert þá útlæga frá Róm (Post.18). En af hvaða ástæðu?

Það blasir við að hinn trúarlegi þáttur á sterk tök í þessari sögu. Gyðingar voru "sértrúar" og því minnihlutahópur. Kirkjan taldi sig vera hinn sanna fulltrúa Guðs og að gyðingum hafi verið hafnað af Guði vegna þess að þeir höfnuðu Jesú Kristi, þeim Messíasi sem var gefinn inn í samfélag gyðinga á fyrstu öld. Svo kemur hitt að samfélögin sem þeir bjugu í reyndust mjög fjandsamleg gyðingunum vegna afkristnunar sem fólst í því að Biblían missti vægi og myndugleika meðal nafnkristinna sem tilheyrðu að vísu kirkjunni en trúðu samt engu af því sem kirkjan stóð fyrir. Þeir stofnuðu t.d. nazismann og börðust í nafni Guðs með krossinn í fánanum.

Erum við ekki sjálf nokkuð nálægt þessum atriðum?

1. Ríkisstjórn Hermanns Jónassonar neitaði að veita gyðingum skjól hér á landi, fyrir ofsóknum og útrýmingarherferð nazismans. Jafnvel þó að krossinn sé í fánanum og við teljum okkur kristin, umburðarlynd og miskunnöm.

2. Við álítum engin rök gilda um landareign gyðinga í Ísrael þó svo Biblían styðji þá kröfu því hún sé of gömul bók og trúarleg rök eiga ekki við í veraldlegri pólitík eða utanríkisstefnu.

3. Við kærum okkur kollótt um hæfileika gyðinga eða orð þeirra. Fréttir frá þeim eru aðeins áróður og þeir eru þjófar, landaræningjar, aðskilnaðarsinnar og barnamorðingjar. Félagið Ísland-Palestína er ávallt kallað til viðtals ef eitthvað gerist tengt átökum við Ísraela. Þeir sendu frá sér stuðningyfirlýsingu 20. maí 2009 þar sem farið var fram að Ísland styddi Hamas, hryðjuverkasamtökin á Gaza af því að þau hafi verið lýðræðislega kosin af þjóðinni. Gazabúar hafa ekki aftur fengið að kjósa.

4. Yfir eittþúsund manns hafa ritað sig inná "Fésbókarsíðu" sem stuðlar að viðskiptabanni á Ísrael. Ættu vörur þaðan að vera merktar "Jude"?

5. Þegar þeir eru bornir sökum í fréttum og mótmælt er við Ameríska sendiráðið þá eru þeir í nákvæmlega sömu stöðu og "Dreyfus" fyrir 120 árum! En munurinn er sá að Ísland vantar okkar "Emil Sola"! 

6. Siðferðisreglur úr gyðingdómi og kristni hafa verið á undanhaldi í okkar samfélagi og veraldarhyggjan hefur verið leidd fram til vegs og virðingar bæði hjá Reykjavíkurborg, Skólum og Ríkisútvarpinu. Meira að segja nýjasta þýðing Biblíunnar, Biblía 21.aldar átti að vera "gerilsneydd" af hatursáróðri gegn samkynhneigð. Fjölbreytni okkar yfirbragð, nema gagnvart gyðingum og Biblíu-kristnum. Þeir skulu burt úr skólum.

Þetta er okkar samfélag í dag og hvað verður um þá sannleikann?

Fáum við að heyra núna fréttirnar um það hvers vegna börnin dóu á Gaza? Af hverju voru engin loftvarnarbyrgi fyrir þau? Hvers vegna eitthundraðmilljónir frá Íslandi til Gazabúa fóru í að smíða jarðgöng en ekki skjól fyrir börnin? Af hverju krefjast menn viðskiptabanns við þjóð sem hefur alla tíð þurft að berjast fyrir lífi sínu og hvað eftir annað staðið frammi fyrir útrýmingu og við styðjum þá kröfu enn einu sinni líkt og ríkisstjórnin gerði fyrir seinni heimstyrjöld?

Má vera að grunnurinn að "Fjölbreytninni" sé einmitt sú trú að "Sannleikurinn sé afstæður"? Þá verða viðhorf, gerðir og skoðanir okkar rétt i samanburði við "tíðaranann"! Mannréttindin verða þeirra sem eiga ekki hlutdeild eða tengingu viðboðskap Biblíunnar?

Og Pílatus stóð frammi fyrir Sannleikanum og spurði, "Hvað er sannleikur"! Pílatus sá hann en var blindaður af blekkingunni. Hann var eins og fréttastjóri "PalestínuPésa". Var honum mannréttindi einhver helgidómur? 

 

Snorri í Betel 


Þriðja heimstryrjöldin ?

Menn standa á öndinni, bæði reiðir og hneikslaðir yfir þróun mála á Gaza og í Úkraínu. Allir hafa skoðun á málinu og í flestum tilfellum er eitt sjónarmið yfirgnæfandi og það er að stöðva manndrápin.

Það er all merkilegt hve sterkur vilji er meðal Íslendinga að stöðva vopnaskakið og mannvígin. Þetta er einmitt hið kristna viðhorf. Sumum stjórnmálamönnum hefur yfirsést þetta sterka viðhorf hjá Íslendingum og hvernig því var sáð inní þjóðarsálina.

Auðvita eru til fleirri sjónarmið og öfgakenndar skoðanir sem jafnvel hafa verið leidd í lög á Íslandi. Hér má nefna að í nafni kvenréttinda er löglegt og ókeypis að eyða fóstrum hér á landi. Er ekki verið að eyða mannslífi þar?

Við sjáum líka að sumir aðilar hljóta meiri náð í augum landans en aðrir. Arabarnir á Gaza eru í sérstakri náð meðal okkar, bæði í stjórnkerfinu og fréttatímum fjölmiðlanna. Er líf Arabans dýrmætara en líf gyðingsins?

Hið kristna sjónarmið er einmitt það að allir menn eiga rétt til lífsins og framfærslu. En þetta virðist ekki vega þungt hjá þeim sem kjósa heldur að fjarlægja kristin trúargildi frá börnum og unglingum á skólaaldri á Íslandi. Öll svona viðhorfsbreyting þarf "jarðveg" og "næringu" til að dafna og bera ávöxt. Sömu aðilar tilla sér upp með stéttarfélögunum og hræpa gyðinga og styðja Hamash en ná ekki burðugum kjarasamningum fyrir sína félagsmenn. Þau stéttarfélög eru ekki tilbúinn að leggja út í lögfræðikostnað hjá félagsmönnum þegar að þeim er sótt; en Hamas fær opinberan stuðning!

Eftir því sem Jón Hnefill Aðalsteinsson greinir frá í bók sinni "Kristnitakan" þá tengir hann saman mjög athyglisvert sjónarmið sem má lesa úr atburðum kristnitökunnar. Sjónarmiðið er einmitt það að hinn kristni goði Síðu-Hallur hafi verið talsmaður kristna armsins sem sótti á að gera landið kristið. Andstæðingar kristninnar hafi einnig haft sína höfðingja og þar mættust stálin stinn milli kristinna og heiðingja. "Við sj´álft lá að þingheimur berðist"! En Síðu-Hallur þekkti Þorgeir Ljósvetningagoða ásamt öðrum og átti með honum sömu hugsunina að leiða landið til friðar og sátta. Þessum mönnum tókst að leiða til lykta þá deilu sem gat leitt til þess að skylmingar og manndráp lituðu Ísland með blóði fórnarlamba átaka og stríðs. 

Trú og siðferðileg viðhorf eru nefnilega engin "léttavara" heldur þungamiðja í löggjöf og menningu þjóða. Sumir hafa það sjónarmið að mannsllíf ber að vernda og stuðla að viðgangi þess með öllum kostnaði og ráðum. Aðrir flokka mannslífið mis verðmætt eftir trú, menningu auði o.s.frv. Þegar þessi sjónarmið mætast þá verður mönnum ljóst að þau geta ekki "búið saman" í sátt og samlyndi! Annað verður að víkja fyrir hinu.  

Þriðja hópinn má nefna og vil ég kalla hann "þokuhausa". Það eru einmitt þeir sem taka öllu því sem snýst gegn staðreyndum mála en láta tilfinningar stjórna viðhorfum sínum. Sá hópur tók á sínum tíma afstöðu með Hitlersnazismanum þangað til hann gerði innrás í Sovétríkin. Við það breyttust skoðanir "þokuhausanna"! Þeir gerðu allt tortryggið sem tengdist NATO eða USA og voru alveg klárir á "Moggalyginni"- allt sem Mbl. sagði um kommúnismann var lygi. Sannleikur málsins var ævinlega flokkaður eftir flokksskírteininu ekki málavöxtum.

Nú hafa vesturlönd staðið frammi fyrir samviskuspurningunni um Ísrael, Palestínu og Hamas. Reynt hefur verið að semja og hvert sinn sem samið hefur verið hafa loforðin um frið fylgt samningunum. "Land fyrir frið" - land var afhent en enginn friður! Burt frá Líbanon - en enginn friður. Sleppið Gaza - og enn, enginn friður! Stríðin 1948, 1967, 1973, 1982,.....interfata... 2007, 2014 og enn enginn friður!

Það er vegna þess að þarna mætast ósættanleg viðhorf og sjónarmið. Þau keppast að því að ná stuðningi og eyrum almennings. Þar kemur ábyrgð fjölmiðla og fréttaflutningur þeirra.

Í dag situr Íslensk þjóð uppi með áróðurstæki sem afflytja fréttir um gyðinga eins og glöggt má sjá. Það eru nokkrar þúsundir sem auglýsa sitt skerta siðferðisviðmið þegar hópast er niður á torg og þess krafist að börnin deyji ekki á Gaza- þeim er fórnað í stríðinu af því að með dauða þeirra sýna fjölmiðlar "grimmd gyðinga" - og fréttir berast án þess að skoða viðhorf gyðinganna.

Fyrir skömmu birtist frétt í tímariti frá Ísrael um unga konu sem var flutt dauðvona frá Gaza á sjúkrahús í Ísrael. Meðferðin tókst vel, hún fór heim og þurfti að koma í eftirskoðun nokkrum dögum seinna. Dagurinn rann upp og hún mætti við landamærahliðið á leið til Jerúsalem. Hún var send í gegnum leitarhliðin og þá fannst sprengibelti um hana miðja sem hún ætlaði að tendra þegar á sjúkrahúsið var komið.

Hvernig er hægt að semja frið við menn með svona viðhorf? Væri ekki best að hjálpa Gazabúum að breyta viðhorfum sínum til að velja lífið, byggja börnum bjarta framtíð í friði og öryggi? Þau viðhorf ættum við að leggja áherslu á að Hamasliðar tileinkuðu sér og Gazabúar fengju að njóta. Slík viðhorf hleypa ekki af stað þriðju heimsstyrjöldinni! 


Moska, menning og mannréttindi!

Það er mjög merkilegt að taka eftir og fylgjast með umræðum í fjölmiðlum. Nú er hitamál í gangi um það hvort leyfa eigi moskubyggingu í Reykjavík. Helstu rökin eru "mannréttindi," "trúfrelsi", "kvenhatur" og "rasismi"! Svo ræður fimi hvers og eins því í hvaða farvegi umræðan þróast.

Það er engu líkara en að sá sem lýsir yfir andstöðu við moskubyggingu megi kallast  illum nöfnum. Flokksforystan er innt álits og skoðanafrelsi þess sem er í andstöðu við bygginguna á að kosta hann atkvæði eða sætið á listanum. Við á Íslandi drögum ekkert af.

Nú er það svo að trúmálin hafa verið sett í ákveðinn farveg allt frá því er Þorgeir Ljósvetningagoði kvað upp úrskurð sinn árið 1000. Hann sá að ein trú skyldi ráða og ríkja því það myndi tengja saman lögin og friðinn. Þetta hefur ræst hjá okkur í þessi 1000 ár sem kristin gildi hafa verið höfð að leiðarljósi í íslensku samfélagi. Hinir sem voru ekki sammála máttu alveg vera ósammála og dýrka sína guði á laun. Þannig voru þeir ekki "samviskufangar" vegna eigin sannfæringar heldur skyldu þeir búa við frið hinna kristnu gilda án þess að fá að gera sig megandi.

Islam hefur svipaða ásýnd í þeim löndum þar sem hún hefur komist á að þar gilda sharía lög og önnur trúar- eða siðferðisgildi þurfa að halda sig til hlés. Á stundum hefur tekist alveg ágæt sambúð milli ýmissa trúarhópa í ýmsum löndum en svo hefur friðurinn orðið úti og þá skerst í odda og menn fá að standa og falla fyrir trú sína.

Það má segja að undanfarin ár hafa kristnir hópar í Egyptalandi, Sýrlandi, Líbanon og jafnvel á sjálfstjórnarsvæðum Palestínu fengið að finna á hinu vaxandi valdi Islam því helst hefur það ráðist að þessum kristnu íbúum landanna, kúgað þá og þeir drepnir fyrir það eitt að vera ekki sömu trúar og Islam. Þeir fá að borga hærri skatta skv. Sharia lögum og búa við mun lakari mannréttindi skv. Sharia lögum. Ekkert Arabaland finnst þar sem gyðingum var ekki varpað úr landi  eða þeir drepnir vegna trúarskoðana. Enginn þurfti að svara til saka vegna Sharía-laganna!

Jórdanía leyfir t.d. ekki gyðingum að vera þegnar í ríkinu. Svo mismunun þessara trúarhópa er regla en ekki undantekning í Islömskum ríkjum.

Fyrir örfáum árum var til þess tekið hve mikill fjöldi íbúa í Betlehem væri kristinn. Í dag er hending að mæta þar kristnum manni. Islam ræður og kristnir eru svældir út. Saga kristinna manna í Líbanon er mjög svipuð. Eftir að Yassir Arafat flúði frá Jórdaníu og settist að í Líbanon 1973 settu þeir vegatálma upp um jólin 1974 og stoppuðu alla umferð. Krafist var að menn sýndu vegabréfin sín. Þeir sem voru sagðir kristnir í þeim plöggum voru umsvifalaust skotnir vegna trúarinnar á Jesú. Þá kom fram að Allah á engan son og því var það trúvilla að halda því fram að Jesús væri "Sonur Guðs"!

Trú og pólitík eru ekki svo ólíkar systur. Í stjórnmálum Vesturlanda er ekkert mál að stofna stjórnmálaflokk. Hann þarf aðeins að taka þátt í lýðræði og haga störfum sínum samkvæmt lýðræðislegum reglum. Nazsmi og kommúnismi eru líka stjórnmálastefnur og heilmikil reynsla komin af þeim. Nazismi er óleyfilegur í öllum lýðræðisríkjum Vesturlanda af því að hann gerir ekki ráð fyrir því að leyfa öðrum flokkum að starfa á jafnréttisgrundvelli. Býr Ísland þá við skert mannréttindi? 

Nazisminn kostaði yfir 50 milljónir manna lífið og við segjum hiklaust svona stjórnmálaskoðun má ekki fá að starfa í landi okkar.

Kommúnisminn er ekki ennþá bannaður þó hann hafi kostað 100 milljónir manna lífið eða tvöfalt á við Nazismann og um allan heim stofnað til byltinga og innanríkisátaka. Þeir rændu þjóðirnar friði og brutu í sundur lögin.  Einhverra hluta vegna telst kommúnisminn ásættanlegri lífsstefna og ýmsir framámenn í íslenskri sögu hafa verið formenn í kommúnistisku stjórnmálaafli stóran hluta ævi sinnar. Við teljum þá ekki til morðingja eða misyndismanna. En stefnan er samt hættuleg lífi og limum manna.

Má ekki einnig flokka trúarbrögð á svipaðan hátt?  Stór hluti þeirra sem aðhyllast Islam eru engir glæpamenn, gestrisnir, þægilegir glaðværir og góðir heim að sækja. Sama má segja líka um kristnu löndin. Þar býr fólk sem má ekki vamm sitt vita og þú getur farið um byggð ból öruggur á nóttu sem degi. En Kristnu ríkin leyfa ekki mismunun í skattheimtu vegna trúarinnar. Þú þarft að borga jafn mikinn skatt trúaður sem trúlaus. Kristnu ríkin leyfa ekki að þú drepir náungann fyrir það eitt að hann er ekki sömu trúar og þú. Lífið er heilagur réttur og þú mátt búa þar sem þú vilt, kvænast og giftast þeim sem þú vilt án þess að fjölskyldan hafi rétt til að farga þér eða maka þínum.

Þar komum við að kjarnaatriðum mannlífsins. Höfum við efni á að leyfa trúarskoðunum og stjórnmálaskoðunum að hasla sér völl í okkar samfélagi sem hafa ofsóknir og manndráp í gildum sínum?

Vð meinum nazistum að hreiðra um sig og er það vel. En þurfum við ekki líka að huga að hinum þættinum einmitt þeim sem er að gerast í allri Evrópu? Hvað er að valda ófriði og sundrungu þar?  

Nú er eins og alsiða að "mannréttindin" hljómi sem "lokasvar" allrar umræðu. En sumt í mannlegri hegðun er synd og löstur. Það er jafnvel kallað mannréttindi.

Reglan "auga fyrir auga og tönn fyrir tönn" er tekin úr Biblíunni og sumum finnst það hið sama og sagt er í Sharía lögum að "ef þú stelur skaltu handarhögginn"! En Biblían segir aðeins að þú skulir skila því sem þú hefur stolið en ekki missa hönd, fót eða líf! Þannig er Guð Biblíunnar mildari og "hagstæðari" en Alla.

Biblían segir: "fyrirgef oss vorar skuldir svo sem vér og fyrirgefum vorum skuldunautum"! En í Islam er ekki til fyrirgefning! Sama trú? jafn meingallaðar?

Páll postuli segir:" þeir vita að ég er settur fagnaðarerindinu til varnar." Fil. 1:16

 og þessi varnarstaða postulans snýst um það að Gera Fagnaðarerindinu um Jesú þannig að það er öllum mannréttindum meira. Það hefur fyrirheit um þetta líf og hið tilkomanda.  Þetta er staða hins kristna manns, presta, biskupa og prédikara kristninnar.

Ég sá nýjan himin og nýja jörð þar sem réttlætið býr. Þar er Jesús Kristur dómari, konungur og eigandi alls. 


Hættulegar skoðanir?

Í umræðunni undanfarið hef ég tekið eftir að ýmsum sjónarmiðum er velt upp, varðandi það hvort ég hafi haft rétt á að segja það sem ég sagði, blogga á prívatsíðu eða hvort mér sé treystandi fyrir að kenna ungum og viðkvæmum börnum vegna skoðana minna. Þá hefur einnig verið fullyrt að ég sýni af mér fjandsamlega skoðun, bókstafstrú, þröngsýni og kærleiksleysi.

Ein spurði um það: "ef ég hefði ritað og sneitt að fötluðum eða svörtum"? Þessi tenging við bloggfærslur mínar og fatlaða eða svarta fannst mér afar merkileg og varð tilefni þessarar færslu. Hvað með fatlaða?

Í barnæsku minni voru tveir blindir í mínum árgangi og þeir voru "gaurar" eins og við peyjarnir ennþá hluti af árganginum. Fötluð börn hafa verið hjá mér í skóla og setið í bekk sem ég hef kennt. Þau hafa verið börn og sýnt samskonar hegðun og hinir, fallið inní hópinn og verið hluti af skólastarfinu, "gaurar" eins og verkast vill. En vita menn ekki að "þjóðfélagið" hefur samþykkt að slíkum börnum má eyða? Ég hef ekki þá skoðun. Ég hef þakkað fyrir að hafa kynnst blindum og fötluðum. Hvar eru hættulegu skoðanirnar?

Ég hef engum dverg kennt. Af hverju? Öllum dvergum hefur verið eytt í móðurlífi undanfarin 20 ár- allavega! Ekki vegna minna orða heldur í nafni "kvenréttinda"! Vita menn það ekki að fóstureyðingalögin 1976 var eini "árangur" kvennalistans? Kvenréttindi sem hættulegar skoðanir? Þær vilja ráða yfir eigin líkama.  Engri konu né manni með slíkar skoðanir er haldið frá börnum eða kennslu. Hættulegar skoðanir sem virða ekki lífsrétt barnsins? Þetta eru bara "eðlileg sjónarmið og frjálslynd" ekki satt?

Ég er sagður hafa "hættulegar skoðanir" og ósamrýmanlegar fyrir viðkvæm börn í skóla. Ég hef ekki hvatt til eða mælt með að börnum/fóstrum verði eytt.

Ég hef ekki komið nálægt því að krefjast þess að sumir hópar fái ekki málfrelsi eða atvinnu, sviftir rétti til lífsafkomu vegna skoðana eða trúar?

Ýmsum kannski finnst vera að bera i bakkafullan lækinn að blogga enn eina ferðina um siðferði, skoðanir og trú!

En ég trúi því að Biblían sé Guðs Orð. Enginn sem kynnir sér Biblíuna verður "bókstaftrúarmaður" í þeirri merkingu að hann heimti dauða og útskúfun fyrir andstæðinga sína. Ég get hins vegar bent öllum á söguna af Jesú og bersyndugu konunni. Hún var sek, Kristur efaðist ekkert um það en hann sagði "sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum á hana"! Hún var lánsöm að Jesús tók ser ekki grjót í hönd og hinir voru ekki syndlausir. Þá spurði Jesú þegar grjótkastararnir höfðu losað sig við steinana: "Sakfelldi þig enginn"? Nei, herra! Ég sakfelli þig ekki heldur, far þú og syndga ekki framar! 

Ég hef átt því láni að fagna að í söfnuði Hvítasunnumanna hér á Akureyri og Vestmannaeyjum hef ég haft fólk frá Afríku, Suður Ameríku, Asíu og ýmsum löndum öðrum. Þetta fólk hefur verið með mismunandi húðlit og gefið hæfileika sína og gáfur inní safnaðarstarfið. Ég hef líka verið með konur sem hafa látið eyða fóstrum og með ótrúlegt sár á sálinni. Ekkert af þessu fólki hefur þurft að "flýja mínar skoðanir" heldur sínar "hættulegu skoðanir" sem urðu til þess að þau tóku þátt í hinu sjálfsögðu réttindum en komu sködduð á sál og anda vegna samviskubits og eftirsjár. Þau leituðu lausnar og fundu hana í trúnni á Jesú Krist einmitt þeirri trú sem leitar sátta við höfund lífsins. Fá fyrirgefningu og breytt lífsviðhorf - viðhorf sem varðveita líf, viðurkenna aðra menn sem bræður og hvetja til heilbrigðs lífernis.

Gjarnan vilja menn fara sína eigin leið. Sumt af því sem við gerum og tökum þátt í er synd; ekki af því að "mér finnst það" heldur af því að Guð (Guðs Orð-Biblían) segir það. Flokkunin kemur þaðan. Í dag er það sem Biblían kallar synd úthrópað sem fordómar. Það viðhorf er ó-Biblíulegt og hættulegt því það eflir andstöðuna við Guð almáttugan, Soninn Jesú og Heilagan Anda.

Viðhorf mitt er þetta: "Látið sættast við Guð"!(2.Kor.5:20)

Kær kveðja

Snorri í Betel 


Menningarslys fræðslumála!

Greinargerð fyrir ályktun aðalfundar Hvítasunnuhreyfingarinnarsem samþykkt var samhljóða þann 29. Mars 2014

 

Á undanförnum árum hefur vaxandi andúðar gætt bæði hjá  stjórnmálamönnum og skólastjórnendum gagnvart því að Gídeon menn fái að koma í skólana og gefa Nýja-Testamenti. Þá hafa Kristin trúfélög komið að lokuðum dyrum þegar kemur að kynningu á starfsemi þeirra bæði varðandi barna og unglingastarf í hverfi barnanna.

Einnig hafa umræður verið um það hvort prestart eða fulltrúar trúfélaga mættu koma í heimsókn í bekki og tala um trú, fermingu eða til bænahalds þegar svo stendur á. Þekkt er að við skólaheimsóknir í kirkjur hafi fylgt þeim skilyrðum frá fræðsluyfirvöldum að prestart fari ekki með bænir eða það sem kalla mætti trúboð. Svo rammt hefur kveðið við í sumum tilfellum að við andlát bekkjarfélaga hafi prestur komið að lokuðum dyrum þó það sé sjaldgæft.

Hvítasunnuhreyfingin á Íslandi er sjálfstætt krisinn söfnuður og trúir því að hið besta veganesti í lífinu sé einmitt Kristin trú. Hún er trú friðar, jöfnuðar og sanngirni með þá reglu að leiðarljósi að allt það sem þú vilt að aðrir menn geri yður það skuluð þér og þeim gjöra. Kjarninn í boðskap okkar er sagan um Jesú frá Nazaret og það frelsisverk sem hann vann okkur til heilla og eilífs lífs. 

Vegna þeirra  orða þar sem hann segir: “Leyfið börnunum að koma til mín og varnið þeim eigi” þá skorum við á yfirvöld skólamála á Íslandi að leggja engar hindranir í veg þeirra sem flytja börnunum boðskapinn um Jesú, hvort sem það er að gefa Nýja-Testamenntið eða segja börnunm frá kristnu safnaðarstarfi í umhverfi þeirra.

Við vitum einnig að  boðskapur um Jesú hefur haft góð áhrif t.d. eins og rannsóknir hafa sýnt að “unglingar sem taka þátt í kristnu unglingastarfi eru síður líklegri til að tileinka sér ýkta áhættuhegðun á borð við fíkniefnaneyslu eða óábyrgu kynlífi”! 

Þá er og vitað að skv. Grunnskólalögum er gert ráð fyrir að skólinn standi vörð um Kristin lífsgildi og menningararf sem er og undirstaða laga og reglna í samfélaginu. 

Þekktir lögfræðingar hafa einnig haft orð á því í opinberri umræðu að hindranir sem skólar hafi sýnt kristnum séu klárt lögbrot af hálfu stjórnvalda þar sem bæði stjórnarskrá og grunnskólalög gera ráð fyrir að sú lífsspeki móti samfélagið.

Ekki má heldur gleyma því að samfélagið hefur allan hag af því að börn og unglingar fái að styrkja þau sjónarmið að vera varkár með kynlíf sitt vegna þeirra alvarlegu sjúkdóma sem eru farnir að herja á þá sem eiga marga rekkjunauta. Þegar læknar eru farnir að vara við þessu vaxandi heilbrigðisvandamáli þá er hagur okkar allra að neyta allra bragða til að íslenskt mannlíf fái að vera betra, fegurra og nær fullkomnleikanum en það yfirbragð sem nú er.

Að síðustu. Vitað er að skólar hafa ekki lokað á allt sem tengist trúmálum í skólum því Jóga og “Mindfullness” eru trúarathafnir sem er víða boðið uppá án þess að neinar hindranir séu hafðar uppi og þó eru þetta hindúskar trúariðkanir en ekki kristnar.

Til áréttingar málinu birtis eftirfarandi á Eyjunni:

"22. mar. 2014 - 20:00

Nýir faraldrar illviðráðanlegra kynsjúkdóma áhyggjuefni:

„Sumt minnir óþægilega á mannkynssöguna, frásagnir af Sódómu hinni forboðnu og aðdraganda að hruni Rómaveldis til forna þegar sukkið og lauslætið náði hámarki. Í dag eru hins vegar ískaldar staðreyndir nútímans á norðurhjara veraldar aðal áhyggjuefnið, ný tár og nýir faraldrar kynsjúkdóma sem eru villtari og illviðráðanlegri en Freyjukettirnir áður“.

Þetta segir Vilhjálmur Ari Arason læknir á Eyjunni. "

 

kær kveðja með von um Miklu betri framtíð!

Snorri í Betel 

 


Fordómarnir?

Í grunnskólalögum frá 12.júní 2008 er sagt í 2.gr.

Markmið: .. "Starfshættir grunnskóla skulu mótast af umburðarlyndi og kærleika, kristinni arfleifð íslenskrar menningar, jafnrétti, lýðræðislegu samstarfi, ábyrgð, umhyggju, sáttfýsi og virðingu fyrir manngildi." 

Þessi "kristna arfleifð íslenskrar menningar" nær frá árinu 1000 (999) e.kr  og hefur að geyma Nýjatestamenti Odds frá 1540, Guðbrandsbiblíu 1584 og fleiri Guðsorðaritum sem varla verða öll talin upp hér.

Nú er það skylda kennarans og skólastjóra að starfa samkvæmt lögum. Hin  "kristna arfleifð"hefur frá alda öðli flokkað kynvillu/samkynhneigð til syndar, samkvæmt Guðs Orðinu!

Nú bregður svo við að ég er flokkaður "fordómafullur" þegar ég reyni að haga orðum mínum utan grunnskólans samkvæmt hinni kristnu arfleifð íslenskrar menningar. 

Af hverju ætli skólastjóra, fræðslustjóra, bæjarlögmanni og bæjarráði á Akureyri sjálfsagt og nauðsynlegt að víkja mér frá störfum þegar lög landsins styðja kristin viðhorf mín? Á ég ekki rétt á því að þessir aðilar skjóti skjaldborg um mig í stað þess að ráðast að mínum sjónarmiðum, trú og tjáningu með oforsi?

Vita menn ekki hvað lögin segja eða eru fordómar og hatur á kristnum ástæða þess hvernig mál mitt er vaxið?

Munum eitt að "Guð stendur í gegn dramblátum en auðmjúkum veitir hann náð!"

1.Kor. 6:9 tilheyrir hinni kristnu arfleifð en ekki fordómum

Snorri í Betel 


Páfi og/eða Antikristur ?

 

Er Francis páfi að taka fyrstu skrefin á leiðinni til einnar alheims trúar? Ef þessi spurning kemur þér ankannalega fyrir sjónir þá er vert fyrir þig að lesa alla þessa grein.  Við erum á tíma þar sem alþjóðavæðing skýtur allsstaðar rótum. Efnahagurinn er samtengdari nú en nokkur sinni áður og árlega erum við bundin við efnahagssamninga milli ríkja og stofnana fastar en fyrr hefur þekkst.

Alþjóðasamfélagið eða “alheimsstjórn” (eins og G8, þeir útvöldu) gjarnan nota hugtakið er að ná enn betri fótfestu í veröldinni.  Stofnanir eins og Sameinuðu þjóðirnar, Alþjóða gjaldeyrissjóðurinn, Alþjóðabankinn eru tæki til að alþjóðastjórnun komist á áður óþekkt stig.  Þá má spyrja hvað með trúarbrögðin? Eru vísbendingar um það að “Alþjóðatrúarbrögð” gætu verið á næsta leiti?  Já, þannig lítur það út fyrir að vera. Reyndar virðist Fransis páfi stjórna þeirri vegferð.

Frá því hann tók við embætti páfa þá hefur hann látið í ljós ósk um sameiningu við “Grísku Rétttrúnaðarkirkjuna” , “Biskupakirkjuna” og fleirri söfnuði mótmælenda. Margir lyftu brúnum þegar Kenneth Copland barst video-upptaka frá páfa  til safnaðar hans. Eftir að söfnuðurinn hafði hlýtt á orðræðu páfa þá stóð einn safnaðarmeðlimur upp og sagði :”Mótmælum Lúters er hér með lokið”!

            “Kaþólikkar og náðargjafa vakning er von kirkjunnar” sagði Tony Palmer, biskup í Biskupakirkjunni við fagnandi meðlimi Kenneth Copland safnaðarins.

Kenneth sagði við Palmer: “Þegar konan mín sá að hún ætti að verða kaþólsk og náðargjafahreyfingin, Evangelistar og Hvítasunnumenn yrðu skilyrðislaust samþykktir af Kaþólsku kirkjunni  þá sagðist hún vilja endurnýja ræturnar við kaþólska og það gerði hún.

Hópurinn fagnaði og hann hélt áfram. “Bræður og systur, Mótmælum Lúters er lokið”. En ykkar?

Kenneth Copland finnst þessi þróun mála stórkostleg og sagði:”Himininn er himinlifandi yfir þessu…. Veistu hvað hrífur mig? Þegar við hófum okkar trúboðsstarf  fyrir 47 árum, þá var þetta óhugsandi. ( hægt er að sjá þetta á netinu)

 

Á ráðstefnunni sem haldin var í Trent þá dæmdu kaþólskir hvern þann til Helvítis sem trúir á að vera frelsaður  eingöngu vegna  trúar á Jesú Krist. Eftirfarandi er orðrétt haft eftir  frá Trent ráðstefnunni

 

             “Ef einhver segir að einungis fyrir trú(á Jesú) sé hinn syndugi réttlættur;  að ekkert annað þurfi og einskis krafist til að hljóta náð og réttlætingu og honum hafi hlotnast syndafyrirgefning vegna eigin vilja að gefa sig  sjálfan (Jesú Kristi); þá viti sá hinn sami að hann er bölvaður!”

 

Þessu atriði hefur kaþólska kirkjan aldrei hafnað heldur frekar endurtekið þráfaldlega í áranna rás.

Ef Fransis páfi vill raunverulega ná til mótmælenda þá ætti hann að snúa frá þessari samþykkt frá Trent og hafna henni algerlega. En á meðan hún er í gildi sem kaþólsk kenning þá eru allir mótmælendur bölvaðir.

Samt mun þessi samþykkt frá Trent ekki hindra marga mótmælendur frá því að sameinast Róm og lýsa því yfir að Fransis sé “þeirra páfi”

Jafnhliða hefur páfinn sótt verulega á að eiga samband við Múslima. Það sem hér fer á eftir eru orð hans sjálfs sem hann lét falla á fyrstu samkirkjulegu ráðstefnunni sem hann var á:

 

“Ég heilsa ykkur hjartanlega og þakka ykkur kæru vinir  sem tilheyrið öðrum trúarbrögðum og venjum; fyrst af öllum Múslimum sem tilbiðjið einn Guð, lifandi og miskunnsaman og ákallið hann í bæn og allir hinir. Ég met mikils nærveru ykkar, í henni sé ég einlæga löngun til að vaxa saman að virðingu og samvinnu öllu mannkyni til almanna heilla.

Kaþólska kirkjan er meðvituð  um mikilvægi þess að efla vináttu og virðingu milli manna og kvenna í hinum mismunandi trúarhefðum – ég vil endurtaka: styrkja vináttu og virðingu milli manna og kvenna í mismunandi trúarhefðum – í því felst einnig staðfesting á mikilvægu verki að páfadómur eigi þvertrúarlegar umræður við ykkur.”

 

Náðir þú þessu?

Fransis trúir því að kaþólikkar og múslimar tilbiðji hinn sama Guð!

Nýlega sagði Fransis þetta um múslima…

 

            “Við megum aldrei gleyma því að þeir játa að eiga trú Abrahams og saman með okkur tilbiðja þeir hinn eina miskunnsama Guð sem mun dæma mannkynið..”

 

Með þessari yfirlýsingu þá er Fransis páfi að hafna annarri mikilvægustu grunnkenningu kristninnar. Einmitt því  að Jesús sé Guð.

Múslimir hata þessa kenningu og segja að það er enginn Guð nema Allah.

Svo hvernig geta Múslimir og kristnir tilbeðið “Sama Guð”?

Eina leiðin til að þetta samband gangi áfram er sú að hafna Guðdómi Jesú Krists!

Auðvita, þegar kemur að öðrum trúarbrögðum þá er Fransis ekki aðeins að teygja sig til múslima. Hann sagði jafnframt á samkirkjulegu ráðstefnunni sem ég vísaði til hér að framan, að :

 

“hann fyndi sig nálægan þeim sem tilheyrðu öðrum trúarbrögðum…”og “jafnframt finnum við okkur nálæg öllum mönnum og konum sem vilja ekki tengja sig við nokkurn trúarhóp, finna sig samt sem áður í leit að sannleikanum, góðmennsku og fegurð, þessum sannleika,  góðsemi  og fegurð Guðs og þeim sem eru dýrmætir bandamenn okkar í að varðveita mannvirðinguna, byggja friðsamt samlíf þjóða og gæta sköpunarinnar vandlega.”

 

Hann fékk líka marga til að lyfta brúnum þegar hann sagði þetta um Guð-leysingjana…:

 

            “Guð skapaði okkur í sinni mynd og við erum í mynd Drottins okkar og hann gerir gott og við öll höfum þetta boðorð í hjarta; gerðu gott gerðu ekkert vont! Öll okkar. En Faðir, hann er ekki kaþólikki! Hann getur ekki gert gott. Jú hann getur…. Drottinn hefur endurleyst okkur öll, okkur öll með blóði Krists; okkur öll, ekki bara kaþólikka. Hvern einasta. ‘Faðir’, guðleysingjarnir? Jafnvel Guðleysingjana. Alla… Við verðum að mæta hvoru öðru og gera gott. ‘En ég er guðleysingi og trúi ekki, Faðir’! En gerðu gott; við mætumst þar.”

 

Nokkuð varð um rökræður eftir þessa orðræðu um hvað hann meinti svo Vatíkanið birti yfirlýsingu sem greindi frá því að kenning kirkjunnar um þetta mál hefur ekki breyst en við þessa framsetningu páfa varð mörgum órótt.

 

Að þessu viðbættu varð folk mjög óöruggt þegar Vatikanið bauð “aflát” fyrir þá sem fylgdu páfanum á Twitter. Eftirfarandi birtist í “The Telegraph”..

 

            Sáluhjálp – eða styttri dvöl í hreinsunareldinum – gæti verið aðeins “tísti frá” (orðaleikur við twitter, “tíst” ) þar sem páfi bauð fyrirgefningu eða aflausn fyrir stundlega refsingu – fyrir þá sem fylgja honum á netinu.

 

Búist er við að 1,5 milljón unglingar fylki sér til Ríó de Janeiró til að fagna alheimsdegi æskunnar þar sem argentíski páfinn mætir. En fyrir þá sem komast ekki til Brasilíu þá er hægt að öðlast fyrirgefningu syndanna  í gegnum sjónvarp, útvarp og netmiðla.

Hin “Heilaga postulega refsistofnun”, lögrétta Vatikansins hefur úrskurðað um fyrirgefningu syndanna og hefur sagt að aflausn geti verið gefin þeim sem fylgja helgiathöfnum og iðki helgiathafnir samtímis því sem þar fer fram í sjónvarpi, útvarpi eða netmiðlum.

 

Svo hverju trúir páfinn eiginlega?

Þetta er góð spurning. Trúarhugmundir hans eru hreint ekki augljósar. Hann virðist hafa afar sterka þrá til að sameinast með sérhverjum sem virðist hafa einhverja trúarskoðun. En við vitum þó um einn hóp manna sem hann kann alls ekki við. Hann þolir ekki “hugsjónar kristna” sem taka trú sína mjög alvarlega…

 

“Í hugmyndafræðinni er ekki hægt að finna Jesú í mýkt, kærleika og auðmýkt. Hugmyndafræðin er hörð, alltaf. Í allri sinni mynd: Hörð. Hvenær sem kristinn lærisveinn verður  “hugsjónarmaður” þá hefur hann misst trúnna; hann hættir að vera lærisveinn Jesú en verður lærisveinn viðhorfa og hugsana.. Af þeirri ástæðu hefur Jesús sagt við þá: Þið hafið tekið burt lykil þekkingarinnar. Þekking Jesú er umbreytt í  “hugmyndafræði” og siðaboð og þetta lokar dyrum margra krafna. Trúin verður hugmyndafræði og hugmyndafræðin hræðir, hugmyndafræðin fælir fólk frá, fjarlægir fólkið og fjarlægir kirkjuna frá fólkinu. Þetta er alvarlegt mein að vera hugsjónar kristinn. Þetta er sjúkdómur og ekki nýr af nálinni. “

 

Svo hvað mun verða úr þessu öllu?  Það verður mjög forvitnilegt á að líta. Benda má á að það er til 900 ára gamall spádómur um að Fransis páfi muni verða síðasti páfinn. Sé það rétt þá erum við að upplifa þann tíma þegar ein alheimstrúarbrögð verða til. Fyrir örfáum áratugum var þessi möguleiki algerlega útilokaður en nú eru brotin að falla saman og búa til heildarmynd. Hvert verður framhaldið?

 

Höfundurinn, Michael T. Snyder er fyrrum lögmaður í Washington DC. sem gefur út ritið The Truth. Nýjasta bók hans “The Beginning of the End” er hægt að fá hjá Amazon.com


Hver er hann?

Einn af sögumeiri stöðum jarðarinnar er kallaður "Bania". Nafnið er úr grísku, Pan, en er með arabískum framburði og þess vegna er framburðurinn: "Banía". 

Þar er að finna leifar bygginga sem notaðar fyrir átrúnaðinn á Pan. Staðurinn var byggður eftir rómverskri nákvæmni og gefinn Rómarkeisara og nefndur því Cesarea Filippí. Þar á áin Jórdan upptök sín og kemur undan Hermon fjalli en fellur ekki til sjávar heldur í Dauðahafið. Fegurð staðarins er heillandi en sagan blendin.

Þangað stefndi Jesús Kristur lærisveinum sínum og þeir hafa eflaust baðað sig í fersku vatninu og notið afslöppunar í frábæru umhverfi. Enn þá einmitt fór hann að spyrja lærisveinana um almenningsálitið. Hvern segja menn mig vera? Ekki stóð á svörum því hann var flokkaður spámaður, Jóhannes skírari eða Jeremía, jafnvel Elía, einn af þeim fornu og sjálfsagt hafa fleirri nöfn verið nefnd. Það hefur fylgt mannkynssögunni að menn flokka persónur og skilgreina. Annað hvort er flokkunin rétt eða röng.

Þegar Jesús var búinn að hlýða á "sögusagnirnar" í samtíma sínum og fréttaflutning lærisveinana þá lagði hann spurninguna fyrir þá sjálfa: "En þér, hvern segið þér mig vera?" 

"Símon Pétur svara: "Þú ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs!"

Þessu svari var vel tekið og Pétri greint frá því að hann hafi ekki komið upp með þessa hugmynd heldur hafi Heilagur Andi opinberað honum þessa speki. Meistarinn hélt áfram og sagði: "Á þessum KLETTI mun ég byggja söfnuð (kirkju) minn!" 

Kletturinn er sú játning að Jesús Kristur er sonur Guðs.

Það hefur verið játning kristinna manna og skilyrði til að geta flokkað sig sem kristinn að Jesús sé einmitt viðurkenndur sem Sonur Guðs. Því hefur ávallt verið tekið undir orð Hallgríms: "Son Guðs ertu með sanni, Sonur Guðs, Jesús minn. Son Guðs syndugum manni, sonar arf skenktir þinn! Son Guðs, einn eingetinn. Syni Guðs syngi glaður, sérhver lifandi maður HEIÐUR í hvert eitt sinn."

Ég geri ekki þá kröfu til múslima að þeir heiðri Jesú og taki undir þessa játningu því þeir eru ekki kristnir. En hvað á að gera við prest og kirkju? Ef prestur játar Jesú sem homma? Er það skv.Klettinum sem er grundvöllur safnaðarins (kirkjunnar)?

Nú stendur styrr á Akureyri um játningu prests og kröfu fyrrum yfirlögregluþjóns að prestur skyldi "afklæðast hempunni"! Sóknarpresturinn steig fram í dag í Akureyrarblaðinu og varði "játningu" kollega síns og sagðist "ekki sáttur vegna ummæla" fyrrum lögregluþjóns. En hvað með hina 2000 ára gömlu játningu í Cesareu Fillippí stendur sóknarpresturinn með þeirri játningu? Var ekki prestaeiðurinn gefinn til að varðveita "Son Guðs" játninguna?

Svo má einnig spyrja. Eigum við sem trúum því að Jesús sé Sonur hins lifanda Guðs, Frelsari manna frá synd og siðleysi, samleið með kirkju sem rekin er af ríkinu og lætur svona villu viðgangast og ver hana? Hefur biskup Agnes stigið fram til að varðveita Kenningu Kristinnar kirkju? 

Mér finnst vera kominn tími á það að þeir sem vilja vera heiðarlegir kristnir einstaklingar safnist saman í þann hóp sem vill standa vörð um það að Jesús frá Nazaret ER sonur hins lifanda Guðs!

Banía, þar sem guðinn Pan var dýrkaður í valdatíð Grikkja og Rómverja var ekki siðlegur í kynlífsathöfnum þeim sem fóru fram á staðnum. Þar var kynvilla, dýraníð o.fl sem ekki skal orða hér og leiddu glötun yfir alla þá sem tóku þátt. Einn var sá sem mætti á staðinn, syndlaus, fátækur og án himins dýrðar. Hann tók á sig syndir þessara svo að þeir mættu losna, ganga útúr valdi myrkursins og tortímingar því Jesús Dó fyrir alla synduga menn og sagði okkur að "Snúa okkur, frá synd, gera iðrun og játa Jesú sem Guð". Þannig frelsaði Jesús fólk frá "Pan", en nú sýnist mér "Pan" vera fluttur inn í þjóðkirkju átrúnaðinn, alla vega á Akureyri!

"Vér heyrum Guði til. Hver sem þekkir Guð hlýðir á oss." 1.Jóh.4:6

Á föstu 2014

Snorri í Betel 


Dýrt er Drottins orðið!

Þetta orðatiltæki er oft notað í daglegu máli og þá aðallega hjá eldri kynslóðunum. Þær yngri temja sér frekar myndlíkingar sem koma úr tölvum, leikjum eða tónlist.

En þetta orðtak er eldra en elstu menn muna. Vera má að hjá okkur eldri hefur orðtakið ekki einu sinni þá mögnuðu merkingu sem stendur þar að baki. 

Dýrt táknar verðmætt og/eða innihaldsríkt. Drottinn þýðir Guð eða konungur og gæti átt við um stjórnvöld eða yfirboðara í mannlegri skipan. Svo innihaldið þarf að vera skírt og klárt hjá þeim sem fara með völdin. Hanna Birna er í dag toguð og teygð í fjölmiðlum vegna þess að orð hennar teljast ekki "dýr" orð eða merkingarbær. Það telst vera stjórnanda til hnjóðs ef hann grípur til innihaldslausra orða þ.e. lyginnar. Það eiga allir menn að varast, auðvita!

Í Biblíunni talar Jesaja spámaður til sinnar kynslóðar og setur fram þessa setningu: " Ég gef Egyptaland í lausnargjald fyrir þig, læt Bláland og Seba í stað þín." (Jes.43:3) Skýringin á þessari setningu kemur fram í næsta versi: "Sökum þess að þú ert dýrmætur í mínum augum og mikils metinn og af því að ég elska þig þá legg ég menn í sölurnar fyrir þig og þjóðir fyrir líf þitt"!

Þessi orð geta því verið í algerri andstöðu við þá hugsun að allir menn séu jafnir frammi fyrir Guði. Sumir menn eru kallaðir Guðs eignarlýður og Guðs börn eða börn ljóssins. Aðrir menn eru kallaðir börn Djöfulsins eða börn myrkursins. Ekki eru fleirri hópar nefndir og við getum hæglega verið tengd við annan hvorn hópinn. Þegar Qumran handritin voru opnuð reyndist þessi framsetning augljós hjá skrifurum handritanna að þeir tilheyrðu "börnum ljóssins", fjarri glaumi og glysi hinnar spilltu valdastéttar.

Þessi regla var sett á endurfyrir löngu í hinni fyrri sköpun. Þeim kafla lauk með kynnum á hinum vammlausa manni sem stóð uppúr hvað mannkosti varðar í veröld sem þýddist ekki skapara sinn og urðu börn myrkursins með glæpaverkum alla daga sína.  Veröld Nóa var eytt og hinum grandvara og hreinlynda Nóa gefið framhaldslíf ásamt fjölskyldu sinni. Nýj veröld sem mundi ekki farast í flóði. Svo kom hinn dýrmæti Abraham stóð frammi fyrir ógn syndar og spillingar dauðans, tortímingu er stóð í gegn anda hins trúaða og vildi fara sína eigin leið. Henni var rutt í burt, Sódómu og Gómorru eytt og Lot, hinum réttláta manni og frændi hins dýrmæta Abrahams, bjargað. Svo kom saga Jósefs sem endaði með því að Ísraelarnir voru þrælar í 400 ár. Dómurinn kom, Egyptaland var lagt í rúst og gyðingum bjargað.Sama með Babylóníu eftir að þar ríki var búið að gegna refsihlutverki sínu þá var því fórnað, til að gyðingarnir fengju að halda lífi og hverfa aftur heim í land sitt. Hlutverk þeirra skyldi koma fram að ala mannkyninu frelsara;  þess vegna voru þeir djásn í augum Guðs. Eftir að þeir höfnuðu Jesú og báðu um Barabbas voru þeir sendir í útlegð, heimshorna á milli unz þann tíma bæri að að Frelsarinn birtist á ný í Skýjum himins til að dæma lifendur og dauða. Þá fá gyðingarnir forskot á að koma heim í öðul sín.

Land þeirra var lagt í rúst 70 e.kr. Önnur heimsveldi hafa tekið landið eignarnámi. En eftir að hafa legið undir valdi Islam um aldir og stjórn Tyrkja því frá 1517 til 1917 . Þá var Tyrkjaveldi  brotið á bak aftur og Gyðingaland leyst og gefið gyðingum sbr. Balfour yfirlýsinguna. En gyðingarnir hlupu samt ekki til heldur voru þeir tregir til að mæta á sína fósturjörð.

Seinni heimstyrjöldin kom og lagði Evrópu í rúst, Gyðingarnir - landlaus lýðurinn, skyldi nú hraða för á Ísraelsfjöll. Þangað eru þeir komnir. Hversu dýrmætir eru þeir ekki í augum Guðs! Allt er þetta svo að við megum trúa og bera virðingu fyrir hinum almáttka.

Öll þessi saga hefur kostað ógrynni fjár, menningarríki og konungshásæta. En Orð Drottins varir að eilífu. Hann hefur allt vald á himni og jörðu. Hann lagði líka Tyrkjaveldi og Evrópu á fórnaraltarið til að láta Orð sitt rætast. Kirkjan er hans eignarlýður og á að vera "stólpi og grundvöllur sannleikans" með "postulana og spámennina sem grunn en Jesú sem hyrningarstein"! Þessi viðhorf á hver prestur og kennimaður kristninnar að hafa og boða kristnum lýð!

Sumar svokallaðar kirkjur og prelátar þeirra hafa nú ekki lengur þann grunn að bera Ritningunum vitni. Tal þeirra er í hróplegri andstöðu við "Drottins Orðið" ; þær hafa afvegaleiðst og tala með barka undirdjúpanna og myrkva sálarsýn fylgjenda sinna. Þannig eru meðlimirnir orðnir Gómorru lýður og börn hinna spilltu gilda. Má þar nefna að meiri þungi er í að berjast fyrir "mannréttindum" en síður lagt til okkar að "Elska Guð" sem er æðsta og fremsta boðorð Biblíunnar. Bara þetta atriði er grunnurinn að lækningu á hugmyndaheimi mannsins. Að vita um Guð sem er okkur æðri setur okkur menn á þann stall að við ráðum ekki ein og stjórnum því ekki hvað er rétt og rangt, hollt og gott, til lífs eða dauða. Guð skapaði okkur til að lúta þeim lögmálum tilverunnar.

Hann gaf afkomendum Abrahams þetta hlutverk að vera fyrirmynd annarra þjóða og menninga í hegðun og manngildum sem fæddu af sér líf og varðveittu líf. Boðorðin 10 voru gefin til að við fengjum að lifa.

Svo kom Jesús, frumglæði ljóssins sem allt er skapað til og fyrir. Honum var fórnað og Barabbas gefið frelsi. Enn ríkir andi Barabbasar yfir mannheimi með morðum, ránum og illum gjörðum - en tíma hans er brátt lokið.

Í dag er náðardagur og við fáum að leiðrétta okkar eigin lífsviðhorf og ganga í lið Jesús frá Nazaret sem er þar allt í öllu, með orði og kenningum er að gagni koma og veita heill og hamingju með eilífu lífi héðan í frá! Orð hans eru líf enda er hann upphaf tilverunnar og allt á tilveru sína í honum.

Ríki Barabbasar verður eytt alveg eins og veröld Nóa, Sódómu, Egyptalandi, Babylon, Tyrkjaveldi o.fl,o.fl. en þú færð að bjargast því hver sem á Jesú, trúir mun ekki glatast heldur eignast eilíft líf! 

Snorri í Betel 


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Ágúst 2025
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_6438
  • IMG_6438
  • IMG_2207
  • IMG_1548
  • friðrik

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (24.8.): 0
  • Sl. sólarhring: 5
  • Sl. viku: 13
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 12
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband