hvað segir biblían um þessa ,,samstöðu"?

Fyrir hvern þann sem fylgist með gangi mála fyrir Botni Miðjarðarhafs er Biblían nauðsynleg til að við getum fengið botn í málin. Hún er bókin sem spannar yfir síðustu 3000 ár og segir okkur að ekkert sé ,,nýtt undir sólunni".

Israel (gyðingarnir) og Persar (Iran) eiga þar mjög stóran hlut og sérlega áhugaverðan sem nú skal rifja upp.

Persaríkið rís upp ásamt Medum og þeir saman fella Babýloníuríki Nebúadnesars. Þeir  ríkja frá 539 - 331 f.kr. Kýrus, keisari og stofnandi Persnerska heimsveldisins er talinn hafa látist 522 f.kr en áður, eða fljótlega uppúr ríkjasambandinu milli Meda og Persa þá gefur Kýrus gyðingum heimfararleyfi úr herleiðingunni til Babylonar.

Í sögu gyðinga er Kýrus þess vegna hinn fyrsti sem kallaður er hinn smurði er nokkurskonar ,,Messíasar fyrirmynd" gyðinga.

Staða Persa hefur verið mjög jákvæð í umsögn og sögu gyðinga. Biblían fer fögrum orðum um hið persnerska vald.

Esterarbókin í Biblíunni fjallar einmitt um hina fögru Ester sem er tekin af keisara Persíu til drottningarsætis vegna þess að Vastí drottning þótti Xerxes ekki eiga það skilið að hún verði til sýnis undirmönnum keisarans, Xerxes til heiðurs og ánægju því Xerxes hafði farið hrakfarir í stríðinu við Grikki. En hann hafði t.d. átt stærsta herskipaflota heimsveldisins um 1000 skip og glutrað honum við Salamis þegar Grikkir gátu sökkt fjórðungi flotans í þeim hildarleik.

Sonur Esterar, nefndur Artaserxes er konungur eftir föður sinn og þá hálfur gyðingur um leið. Hann hafði byrlara sem Nehemía er nefndur og grét við starf sitt vegna hryggðarástands Jerúsalemborgar sem enn lá í rústum eftir átökin við Babýloníu. Artaserxes gaf Nehemía leyfi til að hverfa aftur til Gyðingalands og byggja upp hrunda múra borgarinnar.

Í dag er myndin önnur og í raun mikil hryggðarmynd. Þá standa Persar með uppreiddan vöndinn og hóta gyðingum útrýmingu. Þetta eru þeir búnir að gera alla þessa öld og þótti fréttnæmt. Í dag heldur klerkaveldið áfram þessari ógnun og ætlar sér að búa til gjöreyðingarvopn.

IMG_6438 Það er því eðlilegt í ljósi Biblíunnar að velta upp framtíðarsýn bókarinnar á örlögum Persaveldis sem hefur átt stórkostleg tímabil með gyðingum.

Einn spámaður, Esekíel ritaði tvo kafla um samansafn þjóða sem munu í sameigningu fara í útrýmingarstríð við Ísrael. Kafli 38 hjá Esekíel nefnir þar afar merkilegar þjóðir og nefnir fyrist: ,,Góg og Magóg" þá eru ,,Gómer (Tyrkir), Tóg-Arma,Persar, Blálendingar og Pútmenn (Líbía). 

Góg og Magóg ríktu einmitt á stóru landsvæði sem nú tilheyrir Rússlandi. Er það þess vegna sem Pútin sýnir samstöðu með Persum (íran)? Eitt er nefnt til sögunnar sem er kallað ,,hin ysta norðurþjóð"! Ætli það geti átt við um Ísland eins og utanríkisráðherra hefur hagað sér undanfarið gagnvart gyðingunum. Synt þeim fjadskap og derring.

Kannski er tíminn runninn upp að spádómur Esekíels gangi í uppfyllingu á næstu árum?

Ætlum við að sitja í skjóli hins hæsta eða vera með í samstöðunni með Rússum, Persum, Blálendingum og Pút mönnum?

Snorri í Betel


mbl.is Pútín segir samtöðu í Íran aukast
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bloggfærslur 19. júní 2025

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Júní 2025
S M Þ M F F L
1 2 3 4 5 6 7
8 9 10 11 12 13 14
15 16 17 18 19 20 21
22 23 24 25 26 27 28
29 30          

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_6438
  • IMG_6438
  • IMG_2207
  • IMG_1548
  • friðrik

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (19.6.): 53
  • Sl. sólarhring: 53
  • Sl. viku: 72
  • Frá upphafi: 243189

Annað

  • Innlit í dag: 42
  • Innlit sl. viku: 50
  • Gestir í dag: 41
  • IP-tölur í dag: 41

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband