Fóstrið, klasi eða manneskja?

Við á Íslandi höfum haft aðgang að Biblíunni á okkar ,,Norrænu" frá 1584. Í þeirri merku bók er talað all nokkuð um okkur mennina og með hvaða augum Guð, skaparinn og ,,Faðir Vor" sér okkur.

Þar segir m.a:

Beinin í mér voru þér eigi hulin, þegar ég var gjörður í leyni, myndaður í djúpum jarðar.

Augu þín sáu mig er ég enn var ómyndað efni, ævidagar voru ákveðnir og allir skráðir í bók þina, áður en nokkur þeirra var til orðinn. (Davíðssálmur 139:15 - 16)

Hvernig fara þessi orð í okkur? Hef ég rétt til að stöðva þann feril að dagarnir fái að koma yfir fóstrið sem Guð er þegar búinn að útvelja því?

Í þessum sálmi segir einnig:,,Ó að þú Guð vildir fella níðingana. Morðingjar! Víkið frá mér."

Hvaða morðingja er verið að ávarpa? Eru það þeir sem eyða mönnum eða mannslífum? Svona talar Guðs Orð kröftuglega til okkar. Meiðandi? Já, fyrir þá sem hafa gert Guði í móti skapi.

Í dag er enn verið að færa Ísland fjær Guði og vilja Guðs. Í dag er hin kalda vinstrihönd að leggja til aukið álag á sjúkrahús með fóstureyðingarmiðstöð fyrir öll lönd. Greinilega Guði á móti skapi. Hvernær ætlum við að læra að fóstrið er augnayndi Guðs?

Einhverju sinni voru menn að ræða Nazismann og morðölduna sem fylgdi honum með útrýmingarbúðum á hinum minnimáttar. Þá sagði Prófessor í guðfræði, Þórir Kr. Þórðarson: ,,Þegar Guð er ekki til þá er þetta hægt"!

Er Alþingi Guðlaus stofnun og þess vegna rýmkar það fyrir morðum á hinum ófæddu börnum?

Frá 1976 höfum við að meðaltali eytt 1000 börnum á ári og samanlagt um 45000 börnum sem áttu að verða þegnar okkar lands, samerfingjar að auðæfum landsins. Í dag er þessi tala fyllt með útlendingum. En þeir fylltu uppí rúm hinna horfnu. Ekki svo að skilja að útlendingarnir séu ekki velkomnir heldur hitt að það var óþarfi að eyða litla fólkinu okkar.

En þegar Guð er ekki lengur áhrifavaldur í löggjöfinni eða lífsmáta þjóðarinnar þá eru aðeins tveir möguleikar eftir. Sá fyrri er að við snúum okkur aftur til Guðs, biðjum fyrirgefningar og förum að hans ráðum. Hinn að við köllum yfir okkur hörmungar og fáum dóm Guðs yfir okkur. það verður okkur ekki að skapi.

Biblían segir: ,,Þegar dómar þínir birtast á jörðu, þá læra byggjendur jarðríkis réttlæti." (Jes. 26:9),,Sé hinum óguðlegu sýnd vægð, læra þeir eigi réttlæti. Þá fremja þeir órétt í því landi þar sem réttlæti skal ríkja og gefa ekki gætur að hátign Drottins."(Jes.26:10)

Guð! Verði þinn vilji.

Veljum lífið en ekki hönd dauðans, kvenréttindin!

Snorri í Betel

 

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Tómas Ibsen Halldórsson

Algjörlega sammála þér Snorri.

Tími til afturhvarfs styttist óðum. Í dag er náðardagur en við vitum ekki hvenær tími náðarinnar er liðinn, það verða hörmungartímar fyrir þá sem ekki hlíða kalli Guðs, iðrast og snúa sér frá sínum illu vegum.

Guð, fyrirgef okkur blóðsökina sem hvílir á landi okkar og þjóð.

Tómas Ibsen Halldórsson, 5.11.2020 kl. 13:29

2 Smámynd: Snorri Óskarsson

  Ein fínasta frú Frakklands sem lifði í munaði og vissi að byltingu yrði ekki afstýrt huggaði sig við að ,,flóðið kæmi eftir hennar dag"! Eflaust eru margir Alþingismenn með samskonar hugsun að ,,mannréttindin" verða ekki gerð upp fyrr en eftir ,,Nóaflóð"! All lengi hefur Alþingi breytt lögum til óheilla fyrir ófædd börn og konurnar telja kvenréttindi æðri lífi barnanna. Það barn sem er eytt og drepið þarf engin mannréttindi. Þess vegna er grundvöllur allra mannréttinda er einmitt sá að halda lífi. Refsidómar Guðs eru nefndir í Biblíunni sem;,,drepsótt eða hallæri"(2.Kron. 20:9). Við glímum við hvorttveggja Covit-19 og loðnubrest. Ætlum við aldrei að læra? Menn storka Guði út í hið óendanlega. Sama hvað menn hlaupa hratt þá hleypur enginn frá dómi Guðs. Guð nær okkur alltaf lífs eða liðnum!

Nú er tími til að tilreyða sig!

Snorri Óskarsson, 5.11.2020 kl. 21:46

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Nóv. 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_2207
  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (22.11.): 0
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 0

Annað

  • Innlit í dag: 0
  • Innlit sl. viku: 22
  • Gestir í dag: 0
  • IP-tölur í dag: 0

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband