24.4.2021 | 11:52
Harmagedón að verða?
Mikil hernaðaruppbygging er allt í kringum Tyrkland. Armenar voru knésettir í vetur. Úkraína er að fá ádrepu. Líbanon á sömu leið og Syrland. Óstöðugleiki fer vaxandi fyrir botni Miðjarðarhafs. NATO er með öll viðvörunarljós logandi. Það snerir Ísland!
Um þetta er lítið fjallað í fréttum okkar líkt og okkur komi þetta ekki við. En atburðir gerast hvort sem þeir eru okkur að skapi eður ei. Enn fremur er ljóst að allar þessar þjóðir sem eiga hlut að máli, eru nefndar á spjöldum Biblíunnar í tengslum við eitt ægilegasta lokastríð mannkynssögunnar sem neft er í. Opinberunarbók Jóhannesar 16 kafla og 16.versi, sem Harmagedón uppá hebresku. Ekki veit ég hvers vegna orðið fær að standa óþýtt en það þýðir Megiddo hæð!
Svo er annan spádóm er að finna í Biblíunni, í bók Esekíels spámanns, kafla 38 og 39. Spurningin er alltaf hvort þetta 2500 ára gamla spádómsorð er að rætast frammi fyrir okkur í dag og við, annaðhvort skiljum-, þekkjum- eða þorum ekki að fjalla um. Auðvita vilja blaðamenn ekki sá óþarfa ótta og skelfingu meðal okkar og kannski ærir það bara óstöðugan að rifja upp þessa spádóma.
Svona er spádómurinn:
,,Mannsson, snú þér gegn Góg í Magóglandi, höfðingja yfir Rós, Mesek og Túbal, spá gegn honum og seg: Svo segir Drottinn Guð:
Ég skal finna þig, Góg, höfðingi yfir Rós Mesek og Túbal og ég skal setja króka í kjálka þína og leiða þig út, ásamt öllu herliði þínu, hestum og riddurum, öllum með alvæpni, mikinn manngrúa, með skjöld og törgu, alla með sverð í höndum. Persar, Blálendingar og Pútmenn eru í för með þeim, allir með törgu og hjálm, Gómer og allir herflokkar hans, TógArma lýður, hin ysta norðurþjóð (við?) og allir herflokkar hans - margar þjóðir eru í för með þér. Bú þig út og ver viðbúinn þú og allar hersveitirnar sem safnast hafa til þín og ver þú yfirmaður þeirra. Eftir langan tíma munt þú útboðsskipun hljóta. Á síðustu árunum munt þú koma inn í það land sem aftur er unnið undan sverðinu, til þjóðar sem safnað hefir verið saman frá mörgum þjóðum á Ísraelsfjöll sem stöðuglega hafa í eyði legið, já, frá þjóðunum var hún flutt og nú búa allir öruggir. Þá munt þú brjótast fram sem þrumuveður, koma sem óveðursský til þess að hylja landið, þú og allir herflokkar þínir og margar þjóðir með þér." (kafli 38:1 - 9)
Þessi orð eru eins og þau standa í Biblíunni svo þú getur túlkað þau sjálfur. En þegar ég raða saman nöfnum þjóðanna sé ég að Gómer(Tyrkir), Persar (Iranir), Góg (Rússland), Pútmenn(Líbía) eru þjóðir sem þegar taka þátt í stríðinu í Sýrlandi. Er hér um tilviljun að ræða? Er ekki líklegra að spádómsorðið er að koma fram. Þessu er nefnilega ekki lokið.
Hvernig mun málum lykta?
Esekíel heldur áfram með spádóminn. Ég gríp niður í næsta kafla, nr,.39 en þar segir: ,,Ég skal slá bogann úr vinstri hendi þinni og láta örvarnar detta úr hægri hendi þinni. Á Ísraels fjöllum (Harmagedón?) skalt þú falla, þú og allar hersveitir þínar og þær þjóðir sem eru í för mð þér. Alls konar ránfuglum og dýrum mrkurinnar gef ég þig til fæðslu. Úti á víðavangi skalt þú falla, því að ég hef talað það segir Drottinn".
Svona má lesa spádóminn og spyrja hvort þetta eigi erindi við okkur í dag? Til hvers þarf ég að vita um svona framtíð? Er ekki alger óþarfi að tefla fram einhverjum hryllingsboðskap á tímum Corónuveiru og ferðahafta? Hverjum er hollt að útmála dökka framtíð? En við erum minnt á framtíðina meira að segja hjá vantrúardrengjunum sem velja nafn á vinsælum útvarpsþætti og þeir kalla Harmagedón. Hvers vegna?Það sem kirkjurnar eru hættar að tala um, þá notar Guð þann sem hann vill til að minna á sína áætlun. Harmagedón strákarnir slá hringitón samtímans á ógnvænlegri nafngift útvarpsþáttarins og auðvitað ættum við að heyra bjölluhljóminn!
Við fáum að vita og velja. Það er ekkert víst að svona spádómur verði okkur að gagni það liggur í okkar höndum. Fyrst er að sjá að framtíðin er ekki í okkar höndum og annað að mannkynssagan er leidd til áfangastaðar. Þessu ráðum við ekki, við erum aðeins þátttakendur. Mannkynssagan snertir okkur til blessunar eða bölvunar. Því segir Biblían:,,Sæll er sá er situr í skjóli hins hæsta.."! Þar kemur tilgangur spádómsorðanna. Í lífinu verður uppgjör, við köllum það stundum dóm eða dómsdag. Nokkur tilfelli eru tilgreind á spjöldum Biblíunnar sem dómur Guðs s.s. Nóaflóðið - dómur yfir hinni fyrstu sköpun svo dómurinn yfir Sódómu og Gómorru vegna þess lífsmáta sem nú kallast mannréttindi. Það var dómur sem gekk yfir heiminn við dauða Jesú og upprisu. Hann tók þann dóm á sig. Svo verður lokauppgjör, dómur Guðs, yfir þessum áðurnefndu þjóðum sem Esekíel tilgreinir og við sjáum kallaðar fram í þeirri atburðarrás sem ekki er sagt frá í fréttum íslenskra fjölmiðla. Trúlega vegna þess að fréttamenn eru svo vankunnandi í kristnum fræðum að þeir þekkja hvorki ritningarnar né mátt Guðs! Því eru svona fréttir ógnvekjandi og flokkaður sem ,,hræðsluáróður"!
Við verðum leidd fram í lokauppgjörinu. Þessu ráðum við ekki. En Guð gaf okkur undirbúningstíma, náðartíma, til að við gerum réttar ráðstafanir áður en við birtumst frammi fyrir Dómstól Drottins. Hvernig gengur undirbúningurinn?
Vonin okkar er Jesús Kristur! Hann tók dóminn okkar á sig. Hann er kallaður ,,Árnaðarmaður" okkar á himnum eða verjandi. Vonandi hefur þú meint fermingarheitið að hann hafi verið gerður ,,leiðtogi lífs þíns"?
Iranir, Persar, fara ekki leynt með áætlun sína að verða sér út um kjarnorkusprengju. Þeirra markmið er að eyðileggja Ísrael því landið er aðeins ,,einnar sprengju land" en lönd Islam þola miklu meir. Þetta ,,sár á líkama Islam", Ísrael þarf að fjarlægja að mati klerkastjórnarinnar í Teheran. Vegna yfirlýsinga klerkanna taka Ísraelsmenn mark á þessum sterku yfirlýsingum. Hægt er að benda á trúarlegar ástæður þessara orða sem birtast í von Islam að þeirra ,,Messías" muni stíga inní okkar veröld út úr eyðingu og eldi kjarnorkunnar. Svo álit klerkastjórnarinnar speglar trúarsetningar sem vissulega hafa mikil áhrif á hugarfar. Vert er líka að minnast þess að í stríðinu milli Irana og Íraka bjuggu Iranirnir til ,,barnahersveitir" til að hreinsa jarðsprengjusvæði vígvallanna. Táningarnir fengu um hálsinn plast lykil. Siðan var þeim sagt og þessi lykill er að dyrunum á Paradís. Svo var skylda þeirra að hlaupa út á jarðsprengjusvæðin og finna jarðsprengjurnar. Þegar þær sprungu tættust ungmennin upp, í ,,Paradís"?
Allt með glöðu geði er gjarnan sett að veði. Við á Vesturlöndm eru jafn örugg og persnersku ungmennin. Af hveju skyldu þeir vilja sleppa okkur fyrst þeir hafa getað farið svona með ungmennin sín og vilja fara svona með Ísrael.
Í kennisetningum Islam er það boðað að þeirra messías, Imman Madí, muni birtast í ringulreið styrjaldar og tortímingar. Iranir sjá þetta tækifæri á ,,góðri útkomu" gjöreyðingarstríðs að Imman Madí komi.
Hernaðaruppbygging og ófriðurinn í kringum Ísrael er einnig spádómur Jóels spámanns að rætast. Jóel talar um ófriðinn hjá þjóðunum allt um kring. Og Jesús talar um eyðinguna sem er ,,fastráðin" mun koma sem ,,refsidómsflóð" skv. Daníelsbók í kafla. 9.
Hvers vegna þarf ég að skrifa svona pistil? Jú, það eru forréttindi okkar að vita um hættuna sem er framundan. Ef tekin væru í burtu öll viðvörunarmerkin í umferðinni þá yrði umferðin ekkert öruggari. Hætturnar eru allar fyrir hendi og aukast eftir umferðarhraða og færð. Nú eru svo mörg viðvörunarljós logandi en er einhver undirbúningur? Þú og ég þurfum að standa frammi fyrir Guði almáttugum hvort sem við trúum á hann eða ekki. Við megum vita að samtímaatburðir benda okkur á þann tíma sem spámennirnir hafa sagt okkur frá.
,,Nú er hagkvæm tíð, nú er hjálpræðisdagur." Láttu ekki dragast legur að gera Jesú að leiðtoga lífs þíns, Hann mun vel fyrir sjá!
Snorri í Betel
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- trukona
- hvala
- zeriaph
- hognihilm64
- kiddikef
- sigurjonn
- baddinn
- gudni-is
- baenamaer
- birkire
- valgerdurhalldorsdottir
- pkristbjornsson
- ruth777
- jullibrjans
- goodster
- sirrycoach
- daystar
- ellasprella
- flower
- valdis-82
- valdivest
- thormar
- sigvardur
- levi
- malacai
- hafsteinnvidar
- davidorn
- heringi
- helgigunnars
- icekeiko
- kjartanvido
- gretaro
- stingi
- jenni-1001
- kafteinninn
- eyjann
- svala-svala
- predikarinn
- exilim
- sax
- truryni
- morgunstjarna
- coke
- siggith
- kristleifur
- antonia
- vor
- valur-arnarson
- deepjazz
- bjarkitryggva
- harhar33
- thjodarskutan
- balduro
- gudspekifelagid
- study
- h2o
- frettaauki
- nyja-testamentid
- nkosi
- gudnim
- genesis
- ea
- gullilitli
- gladius
- bryndiseva
- dunni
- arnihjortur
- arncarol
- gun
- gummih
- gattin
- johann
- olijoe
- vilhjalmurarnason
- nytthugarfar
- postdoc
- eyglohjaltalin
- hebron
- muggi69
- krist
- trumal
- pall
- talrasin
- angel77
- gessi
- ghordur
- baldher
- ragnarbjarkarson
- adalbjornleifsson
- bassinn
- skari
- kje
- benediktae
- nonnibiz
- bjargvaetturmanna
- doralara
- nafar
- contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Takk fyrir þetta Snorri.
Kirkjan er hljóð hvað spádóma Biblíunnar varðar en eins og þú segir þá eru öll viðvörunarljós logandi en kirkjunnar þjónar virðast ekki sjá eða skynja þær aðvaranir sem blasa við okkur. Jesús sagði við Faríseana að þeir gætu lesið í veðurútlit en þeir þekktu ekki tákn tímanna. Svo virðist sem almenningur og þeir sem ættu að þekkja ritningarnar sjái ekki á hvaða tímum við lifum. Allt bendir til þess að endurkoma Jesú sé fyrir dyrum, en hversu fljótt það muni verða er ógerningur að setja til um, enda sagði Jesús að Faðirinn einn vissi daginn og stundina. Hitt er ljóst að við munum sjá harðari og hraðari atburði eiga sér stað. Eldsumbrot á Reykjanesskaga lít ég á sem viðvörun til okkar Íslendinga, umbrotin munu aukast að verða nær mannabyggð áður en langt um líður. Svo tel ég muni verða.
Með góðri kveðju.
Tómas Ibsen Halldórsson, 24.4.2021 kl. 22:00
Hérna eru hugleiðingar frá þér Snorri:
"Eitt af síðustu táknunum er kallað ,,merki dýrsins".
Við vitum svo sem ekki hvað það er en við vitum samt að það verður sett á
hægri hönd eða enni og að enginn geti keypt eða selt nema hafa þetta merki".
------------------------------------------------------------------------------------------------
Nú auðvitað er það, það strikamerki sem að allir þurfa að hafa til að mega ferðast.
Guð er hvergi við stjórn hér á jörðu heldur New-World Order/Illumanati
sem að eru útsendarar djöfulsins hér á jörðu og ætla að þurka út stóran hluta mannskyns
með þessum aftöku-sprautum sem að munu eiðileggja öll erfðaefni í okkar líkama að eilífu:
"They are running the show" = 78% allra sjónvarps-dagskrárliða hér á jörðu eru dark site rugl, ótti og ringulreið:
https://www.facebook.com/388961184806503/videos/470942920972583
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Hérna getum við séð djöfulinn /Dýrið / 666sem að er ómennsk geimverutegund sem að kallast Draco):
https://www.youtube.com/watch?v=bOY6b5xkU2k&app=desktop&fbclid=IwAR1PqZkF5C-5KMo26AtLX4Dgc61NIWs4S5plSPTM0_-YcS6jooo7L5pLHUs
-------------------------------------------------------------------------------------------------------------
https://www.barnesandnoble.com/w/alien-world-order-len-kasten/1124116852?fbclid=IwAR3CevUR0tDPr7drepdt2q6h8aDvSSLE8qAtSCJAqPRJ4ID1VD2z1WI-uts
--------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Jón Þórhallsson, 27.4.2021 kl. 19:39
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.