Falskur kvartett!

Ætli það sé ekki pyrrandi staða að vera í valdamiklu embætti og ráða ekki við "smámál"? Kannski er rangt að kalla þetta smámál því alla síðustu öld hafa vandræði verið milli Araba og gyðinga.

Unanfarna daga hafa verið óeirðir á svæðinu og í kvöld féllu sprengjur á Gaza af því að eldflaugum var skotið á Ísrael. Þar lést landbúnaðarverkamaður.

En fór það framhjá okkur að í janúar lok (28.) hafði Abbas orð á því að stefna þeirra væri að ÖLL JERÚSALEM yrði þeirra höfuðborg. Birtist þetta nokkuð í íslenskum fjölmiðlum? Ekki sýna svona yfirlýsingar friðarvilja.

Fáum dögum seinna (9.feb) var frá því greint að frá Al-Qaida í Jemen hvetti Araba í öllum Mið-Austurlöndum að rísa upp gegn Ísrael og efna til stríðs.

Frá Kaíró fréttist að 21.febr. hafi verið reynt að sprengja upp synagógu gyðinga, en mistókst. Gyðingar voru ekki látnir vita.

Sama dag varð allt vitlaust meðal Araba í Hebron, vegna þess að gyðingarnir tóku við yfirráðum á Makpele hellinum sem er gröf Abrahams, Söru, Rakelar og Jósefs. Skýringin var sú að Ísraelar vilja hafa hellinn opinn svo ferðamenn fái litið staðinn. Arabarnir lokuðu þessum helgistað og tóku hvorki tillit til kristinna né gyðinga. Ég gat ekki betur heyrt en að þessi aðgerð Ísraela hafi verið illa séð meðal fjölmiðlamanna á Íslandi. Vita menn það ekki að Arabar fá að halda yfirráðum á Musterishæðinni og það er hending að ferðamenn fái aðgang þangað.

Þann 22.febr fóru nokkrir gyðingar 35 stk. niður til Jeríkó og báðust fyrir í leifum fornrar synagógu þar. Þeir uppskáru handtökur og yfirheyrslur í sólarhring vegna þess. Teljast þetta ekki tíðindi? Ef okkur yrði meinaður aðgangur að Hólum ætli það yrði ekki frétt, jafnvel heimsfrétt. Allavega væri það túlkað sem fjandsamleg aðgerð.

Þann 2.mars sendi frú Clinton frá sér viðvörun til Nabi Berri (nabi = spámaður, prédikari) sá er æðstur í Líbanon- því vopnin hlaðast upp hjá Hisballah, send frá Iran og Sýrlandi. Kvartettinn gaf ekkert hljóð frá sér við þessa frétt. En ef Ísraelar fá sér vopn þá er grátkór vestrænna fjölmiðla vakinn og látinn rappa allt hvað af tekur.

Eitt af þessum undarlegu málum sem Arabarnir hafa verið að mótmæla og kastað grjóti er vegna vígslu á synagógu gyðinga í Jerúsalem. Hún er sögð standa á "arabísku landi". Nafn synagógunnar er "Rústin" (Hurvah, eða churvah). Saga hennar er sú að hún var reist fyrst árið 1700 á svipuðum tíma reist Pétur mikli Pétursborg. Synagógan var rifin af Aröbum 1721 um líkt leiti og Daniel Dafoe ritaði söguna þekktu um Robinson Krúsó. Gyðingar byggðu synagóguna upp aftur 1830 og þá var Simon Bolivar að berjast fyrir frelsi í Suður-Ameríku. Hans verk fá að flokkast sem frelsisstríð en hvað er sagt um gyðingana? 

Aftur var synagógan rifin 1947 af Jórdönum. Svo hafa gyðingar verið að endurreisa hana í þriðja skiptið undanfarin ár - og þá segja menn að hún sé reist á "arabísku landi". En það merkilega er að 7.nóv 2007 (kislev 5768 skv. gyðingadagatali) kom einn af rabbíum gyðinga með spádómsorð um þessa Synagógu, Rústina. Hann sagði :"Þessi synagóga verður vígð í þriðja sinn þessa dagana (16.mars?) og það er eitt af táknunum fyrir komu Messíasar." "Ef Arabar eyðileggja þessa synagógu aftur þá verður hún ekki endurbyggð heldur munu gyðingar snúa sér að Musterishæðinni og koma hornsteini Musterisins fyrir." Steinninn er klár og margir tilbúnir. Af hverju fara málin í þennan farveg?

Af því að gyðingarnir njóta ekki sannmælis hafa þeir lítið tilefni til að treysta á stuðning kristinna þjóða "sem hvorki þekkja ritningarnar né mátt Guðs" .

Þegar Musterið fer að rísa þá munu verða endalok á því tímaskeiði sem við köllu náðartíma Guðs eða tíma heiðingjanna. Eftir það verður tala þeirra sem erfa Guðsríkið fullnuð og menn fá ekki lengur gengið inn í vilja Guðs. Því er mjög mikilvægt að þú, lesandi, gerir köllun þína og útvalningu vissa, strax.

Við horfum enn á Araba gera tóma vitleysu í samskiptum við gyðingana og Kvartett vestrænna þjóða syngja falskt í afstöðunni til gyðinganna.

Mikið væri gott að íslenskir fjölmiðlar, Steingrímur J. og Össur hefðu nú vit á að beita sínum áhrifum til að styðja gyðingana til sjálfstæðis og sannmælis meðal vestrænna stjórnmálamanna. Það yrði stórkostlega blessun fyrir land og þjóð- svo mikil að fjárhagur okkar myndi á örfáum vikum snúast úr þrengingum í hagsæld . Guð blessar þá sem blessa gyðingana - það segir Biblían.

Guð hjálpi okkur og blessi Ísland.

Kveðja

Snorri í Betel


mbl.is Ísraelsmenn gagnrýna kvartettinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aðalbjörn Leifsson

Amen, hvergi þekkist það í heiminum að menn megi ekki byggja innann borgar marka síns eigin lands! Hvenær verður sagt frá því í biblíusögunum að Jesús hafi gengið um "herteknu svæðin" og gert öllum gott?? Guð blessi Ísrael!

Aðalbjörn Leifsson, 20.3.2010 kl. 17:07

2 Smámynd: Aron Arnórsson

Snorri er sannspár.

Aron Arnórsson, 25.3.2010 kl. 14:21

3 identicon

"Araba í Hebron, vegna þess að gyðingarnir tóku við yfirráðum" Já 'israelsmann lokuðu fyrir öllum nema Ísraelsmönnum

"...táknunum fyrir komu Messíasar."

Eru þessi tákn ekki löngu komin fram :  "Ég veit hvernig þú ert hrakyrtur af þeim, sem segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur samkunda Satans."(Op 2:9)

"Ég skal láta nokkra af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, - ég skal láta þá koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita, að ég elska þig." (Op 3:9), 

En hvað, hefur þetta ekki örugglega ræst!! 

Nú og það eru þessir litlu, litlu, nice, nice  Kristnu -Zíonistar sem styðja þetta Zíonista-lið (Ísraelsmenn) í áframhaldandi hernámi og gegn öllum alþjóðalögum og samþykktum. Já þú þarft ekki að segja mér það einu sinni, þar þið styðjið áframhaldandi hernám Ísraelsmanna á Vesturbakkanum og svo þetta hernám sem á sér stað núna í Austurhluta Jerúsalem, já og þið (Kristnu -Zíonistar) mótmælið ekki þessu hernámi Ísraelsmanna sem er í algjöru trási við alþjóðalög og allar samþykktir Sameinuðu þjóðanna. Þú þarf ekki að segja mér það eða svara mér, þar sem ég þekki þennan áróður ó já allt fyrir þetta ZÍONISTA -RASISTA -TERRORISTA RÍKI ykkar og þetta litla, litla,  nice, nice Born again Júmbó Dúmbó  Crap, EKKI SATT?

.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 28.3.2010 kl. 23:35

4 Smámynd: Aron Arnórsson

Vá Þorsteinn... klár í kjaftinum.

Aron Arnórsson, 30.3.2010 kl. 04:52

5 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þorsteinn

Fyrst þú vilt hafa alþjóðalög til grundvallar ríkjum þá einmitt samþykktu Sameinuðu þjóðirnar að stofna ríki gyðinga á því svæði sem breska stjórnin hafði lagt til með Balfor samþyktinni. Þá átti ríkið að heita TransJordanía og ná frá Miðjarðarhafi til Saudi-Arabíu.Hverjir tóku landið til séreignar? Það voru Jórdaníumenn. Þá voru gyðingarnir kallaðir Palestínumenn.

Þeir sem stálu landi gyðinga eru núna sagðir "fórnarlömb". Þeir sem segja öðrum hópi stríð á hendur eiga hættu á því að tapa lífi, limum og landi. Þess vegna eru gyðingar í fullum rétti með sínum bygingaframkvæmdum.

Svo ætla ég ekki að birta oftar frá þér svona athugasemdir sem eru án allrar málefnalegrar umræðu heldur í ætt við nazistaáróður gegn útvöldum lýð Guðs og afkomendum Abrahams. Guð blessi þá.

Snorri Óskarsson, 30.3.2010 kl. 10:45

6 identicon

Snorri

Þú veist það eins og ég, að palestínumenn eru afkomendur Abrahams og það sem meira þeir eru annað en þessir ísraelsmenn þínir, þar sem að palestínumenn eru af semitiskum uppruna. Þessir ísraelsmenn eða Ashkenasi Khazar eru alls ekki blóðskyldir gyðingum GT og/eða hvað þá með DNA er tengir þá við semitískan uppruna. Fyrir utan það þá eru yfir 140 þúsund palstínumenn þarna kristnir, sem þið hunsið hins vegar algjörlega og lokið augunum fyrir hvað eftir annað og ójá allt fyir þetta Zíonista -Rasista -Terrorista ríki Israel, ekki satt?     

Svo hættu að tala um þetta séu gyðingar, þar sem meira en 90% Ísraelsmanna eru Ashkenazi Khazar og eiga uppruna sinn að rekja til fyrrum Khazaríu (í dag landsins milli Svarthafs og Kaspíahafs)  þetta kemur reyndar fram í The Universal Jewish Encyclopedia og/eða "90% of the Jews of the world are not a Semitic" og/eða ekki blóðskyildir þessum fyrrum Gyðingum Gamla Testamentisins eða"Semites", http://www.missiontoisrael.org/gods-covenant-people/chapter4.php , http://www.apfn.org/THEWINDS/library/khazars_2.html "Majority of Eastern European Jews are Khazar and Japhetic in origin, not Semitic." Jewish Encyclopedia (1973)  A. N. Poliak, Professor, Medieval Jewish History, Tel Aviv University."

" To this day the Ashkenazi Jews the heirs of the Khazar genealogical lineage, shun DNA tests. They want no evidence produced that will prove they are not Jews. They continue to lie and say they are Jews. In fact an increasing number of DNA studies and analyses have been published over decade. In every case NO DNA relationship to the ancient bloodline of the Israelites." http://www.scribd.com/doc/6249521/Synagogue-of-Satan-with-Colour-Photos-Andrew-Carrington-Hitchcock

Þó að þetta fólk tilheyri Íslam, þá eiga palestínumenn sinn rétt sem sem börn Abrahams (ath: af semitiskum uppruna), og til að lifa, eða hefur þú eitthvað á móti almennum mannréttindum, alþjóðalögum og samþykktum SÞ (No.  242) er segja, að ísraelsmenn eiga að yfirgefa hernumin landsvæði  Austur Jerúsalem og Vesturbakkann? 

Eða hvernig er það hefur þú ekki alltaf stutt þetta her -og landnám (eða þennan Þjófnað og herrán) ísraelsmanna (Ashkenazi Khazar) á Vesturbakkanum og í Austur Jerúsalem gegn öllum alþjóðalögum og alþjóða samþykktum SÞ?

Nú og styður þú ísraelsmenn í því að loka palestínumenn svona af inn á Gasa svæðinu, og þessa stefnu ísraelsmanna í að halda uppi þessum fangesismúr sem er allt í kringum Gasa svæðið og/eða frá hafi og allt í kring, frá vatni, rafmagni, lyfjum og næstum því frá öllum umheiminum?

Hafðu þetta svo hugfast: 

"Ég veit hvernig þú ert hrakyrtur af þeim, sem segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur samkunda Satans."(Op 2:9)

"Ég skal láta nokkra af samkundu Satans, er segja sjálfa sig vera Gyðinga, en eru það ekki, heldur ljúga, - ég skal láta þá koma og kasta sér fyrir fætur þér og láta þá vita, að ég elska þig." (Op 3:9)

ATH:  "Semitism refers to a group of languages used by various tribes of what we call the Middle East. Zionism is a political movement founded by Ashkenazi Sabbateans in the 1800s in Europe. The Ashkenazi, of Turkic/Mongol/Caucasian descent, are mostly Russian, Hungarian, Lithuanian and Polish. They are Jewish by conversion. Roughly 95% of the population of Israel is Ashkenazi. Sephardic Jews, those of true Semitic lineage, are second class citizens in Israel. Israel was designed by Zionists to function as a racist, Apartheid state. Zionism is nobody's friend, least of all to true Jews, whom Zionism hides behind. Israel is, in fact, an anti-Semitic state, in that it daily murders true Semites. "Max Huthinson PDF

 Hérna er eitthvað fyrir þig til hugsa um : “My brothers and I converted to Hinduism, so we deserve a homeland in India. You are anti-Hindu if you disagree.” ekki satt þú ? 

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 12:03

7 Smámynd: Gísli Gíslason

Sæll Snorri,

Ég trúi því ekki að annar aðili sé góður og hinn slæmur osfrv.  Það er enginn einn sekur þegar tveir deila.   Hver er lausnin á þessu svæði ?

kv Gísli

Gísli Gíslason, 30.3.2010 kl. 13:07

8 identicon

Snorri 

Styður þú þessa ísraelsmenn (Ashkenazi Khazar) í því að ryðja niður enn fleiri húsum en þessum 10.000 sem ísraelsmenn hafa þegar rutt niður með jarðýttum sínum á Vesturbakkanum og Austur Jerúsalem?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 30.3.2010 kl. 13:08

9 identicon

Auðvita skil ég rétt eins og palestínumenn af hverju Snorri bendir á þennan Balfor svikasamning sem gerður var gegn þessu fólki sem býr eða bjó þarna, svo og ástæðuna fyrir því af hverju zíonistar (ísraelsmenn) og kristnir zíonistar vilja halda áfram og áfram þessu landnámi á Vesturbakkanum og í Austurhluta Jerúsalem gegn öllum alþjóðalögum og samþykktum SÞ. Það er ekki nóg hjá kristnum- zíonistum að það sé búið rústa 42.000 húsum og yfir fjögurhundruð þorpum palestínumanna, NEI og kristnir –zíonistar  mótmæla alls ekki áframhaldandi landnámi ísraelsmanna.

Því að þessir litlu, nice, nice,  kristnu- zíonistar eru með þá trúarstefnu, að zíonistar eða ísraelsmenn þurfi að leggja öll landsvæði palestínumanna undir sig svo og byggja þetta musteri í Jerúsalem eftir trúarstefnu kristinna zíonista, þannig að Jesú komi nú til þeirra, rétt eins og kristnir zíonistar reikna einnig með að fá verðlaun fyrir að hafa stutt ísraelsmenn í öllu þessu landnámi gegn öllum alþjóðalögum og samþykktum SÞ. Nú og hvað annað en reynt en að bera fyrir sig  þessum gamla Bafor- svikasamning?     

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 11:50

10 Smámynd: Snorri Óskarsson

Sæll Þorsteinn

Þetta svar er kurteisara en það sem ég hafnaði. ég læt fylgja úr einni af heimasíðunum sem þú ert að benda á þar sem haldið er fram að gyðingarnir séu Kazar kynstofn en þetta kemur fram:  authorities are not at all eager to give the official stamp of approval to Pollock's theories.

 Hans kenningar eiga lítinn grunn, veikan stuðning og því haldlítil fræði.

kær kveðja

snorri

Snorri Óskarsson, 31.3.2010 kl. 14:50

11 identicon

Snorri

Þetta Ashkenazi Khazar fólk (zíonistar/ísraelsmenn) veit að Palestíumenn eru ekki blóðskyldir þeim og auk þess að þetta Ashkenazi Khazar fólk lítur alls ekki á palestínumenn sem bræður, þú? . Nú Þetta fólk veit einnig hvenær það tók upp þessa Talmudisku trú eða: "..about 786-809, their king BULAN and 4,000 of his nobles accepted Judaism"

Hins vegar þá eru til virðulegir gyðingar (ATH: af semitiskum uppruna) er fara eftir Torah (GT.) og eru friðsamir en,  annað en þið (kristnu-zíonistar) þá styðja þessir virðulegu Torah gyðingar palestínumenn gegn zíonistum,   eins og þá td.  Jews Against Zionism , Jews Not ZionistNeturei Karta og REAL JEW NEWS er mótmæla þessu landnámi zíonista (Ashkenazi Khazar) harðlega og berst gegn zíonisma.  

Hinir rauverulegu gyðingar af semitiskum uppruna er fara eftir Torah segja, að Zíonistar ( Ashkenazi Khazar) hafa stolið þeirra virðulega nafni gyðingar (jews) og það sem meira er þeir hafi misnotað þetta virðulega nafn gyðingar. Ofan á allt hjá þeim, þá eiga gyðingar að vera í útlegð og ekki inni í landinu helga skv. Torah. Torah Jewry (eða ráðið) hefur aldrei viðurkennt þessi yfirráð ísraelsmanna (Ashkenazi Khazar) yfir landinu helga, þeir hafa harðlega mótmælt þessum yfirráðum Ashkenazi Khazar eða Zíonista. 

Þessir virðulegu Torah Gyðingar eru á því að það séu zíonistar sem eru gyðingahatarar, nú og auk þess sagðir vera Anti-semitic og Anti Arab- semitic.

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 17:24

12 identicon

"Majority of Eastern European Jews are Khazar and Japhetic in origin, not Semitic." Jewish Encyclopedia (1973) A. N. Poliak, Professor, Medieval Jewish History, Tel Aviv University."

"90% of the Jews of the world are not a Semitic" The Universal Jewish Encyclopedia

Þú getur kannski ekki skilið eða lesið þetta?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 31.3.2010 kl. 19:36

13 Smámynd: Snorri Óskarsson

Ef nokkrir geta gert grein fyrir uppruna sínum ættu það að vera gyðingar og Íslendingar. Við höldum mjög vel ættarskrár og sjáum allar þær tengingar sem snerta þjóðina.

Gyðingarnir allir, eiga eitt sameiginlegt og það er að verða fyrir ofsóknum. Hver vill það? Ég tel það einfaldasta mál í veröldinni ef gyðingarnir eru ekki gyðingar að þá fái þeir lönd sín aftur. En heldur þú að það gangi?

Veistu að þeir voru reknir frá t.d. Jemen. Þeir tóku siðina, silfursmíðina og allt annað sem þeim fylgdi. Í Ísrael könnuðust allir gyðingarnir við siði þeirra, bænir, venjur og lög. Jafnvel gyðingar frá Póllandi eða Ameríku. Þetta þvældist ekkert fyrir þeim. Ég fór í búð til eins sem seldi mér flotta skyrtuhnappa. Við spjölluðum saman og hann sagðist hafa komið frá Iran (Persíu). Hann sagði mér sögu sína og meðferð á fjölskyldu  hans þegar hún var rænd, misþyrmt og engin rétti þeim hjálparhönd af því að þau voru gyðingar. Enginn af "óvinunum" velktist í vafa um það hvort um gyðinga væri að ræða.

Arabarnir í Ísrael sjá á öllum siðum, trúarvenjum og fornleifum að gyðingarnir eru komnir heim. T.d Netaniahu ber þetta nafn af því að nafnið er gyðinglegt. Honum var gefinn hringur sem fannst við uppgröft á Musterishæðinni þar sem stendur "Netaniahu ben Joshe". Hringurinn er frá tíma fyrsta musterisins (900 - 580 f.kr). Allir sjá að þetta passar við gyðinga enda eru þeir gyðingar; þorsteinn.

Hve margar þjóðir heldur þú að noti nöfnin Snorri og Þorsteinn? Bara þær sem eru sögulega, menningarlega og erfðafræðilega tengd okkur!

Þetta er ekki flókið mál.

Gleðilega páska.

Veistu hvað páskar þýða, Þorsteinn? Bara kristnir Arabar halda páska. Bara kristnir og gyðingar halda páska!

Snorri Óskarsson, 31.3.2010 kl. 23:05

14 Smámynd: Snorri Óskarsson

Gísli, sæll og gaman að sjá frá þer.

Lausninin á svæðinu? Ég var spurður að því sama af jórdönskum starfsmanni SÞ, við Petru. Við sátum úti á svölum og nutum kvöldkyrrðarinnar - ógleymanlegt. Ég sagði við hann að ég sem kristinn maður hefði tekið inn í huga minn þann boðskap sem varð til á þessu svæði og hefur fært t.d Skandinövum og okkur á Íslandi hin bestu gildi og þjóðfélög. Þau eru ekki gallalaus og ýmsu má koma í betra horf en boðkapurinn um að  við  séum bræður og verðum að fyrirgefa mönnum er kjarnaatriði. Við verðum að hafna því að heilög skylda hvíli á Múslimum að drepa kristna, gyðinga og heiðingja eins og Súra 9 (kafli 9) í Kóraninum leggur fram sem kröfu á Múslima.

Ouda, leiðsögumaður minn sagði við okkur, Gyðingar fyrirgefa bræðrum sínum, kristnir eiga að fyrirgefa óvinum sínum en í Islam er ekki til fyrirgefning! Ég spurði hann þá að bragði hvað honum þætt eftirsóknarverðast. Hann svaraði að bragði. "kristnin"! Af hverju ertu þá ekki kristinn? Spurði ég. Hann brosti, dró fingur yfir hálsinn og sagðist vilja halda hausnum!

Báðir þessir menn voru mér algerlega sammála - en ekki sáu þeir augljósan leik á borði til að koma þessari nýju hugsun inn í Arabana. En það má alltaf reyna.

Hugsunin að vernda líf, vinna saman og byggja upp bræðralag er lausnin.

Gleðilega páska.

Snorri

Snorri Óskarsson, 31.3.2010 kl. 23:20

15 Smámynd: Aron Arnórsson

Það er líka sagt að bara LEYFARNAR muni frelsast. Leyfarnar er ekki það sama og Israel var... bara leyfar.

Power í trúnni byggt á HEBRESKUM ritningum.

Svo afskræmdur var hann. En hann er um það bil að fara birtast og sýna réttlætið sitt.

LÆST! ENGINN OPNAR!

Aron Arnórsson, 1.4.2010 kl. 04:17

16 identicon

Snorri

Ég er á því að við eigum góða ættarská, en ekki  þetta Ashkenazi Khazar- lið. Þar sem þetta lið hefur verið í vandræðum með allar sannanir um að 6. milljónir hafi dáið í Holocaust-inu. Nú það eru hins vegar múslimar í dag sem eru og hafa verið undir ofsóknum, en ekki gyðingar, eða hefur þú ekki verið með eitthvað gegn Íslam, múslimum, aröbum og palestínumönnum osfrv?

Þú hefur örugglega heyrt um stríðið gegn hryðjuverkum (War on terror) í Afganistan og í Írak sem Ísraelsmenn taka þátt í og styðja, svo og um þetta næsta stríð sem Zíonistar vilja fara í gegn Íran. Hefur þú ekki heyrt áróður Zíonista fyrir áfamhaldandi stríði í Afganistan og Írak, og næsta stríði sem þeir vilja fara af stað með gegn Íran og Pakistan, eða hvernig er það styðjið þið Kristnir- Zíonistar ekki fleiri stríð og ofsóknir gegn Íslam, aröbum, palestínumönnum osfrv. Ykkar prestur John Hagee og allt Zíonsta-liðið vill fleiri stríð gegn aröbum, ekki satt?

Snorri þú gleymir þarna í þessari frásögn þinni  að minnast á terrorisman sem Zíonistar notuðu í mörgum löndum til fá þessa Talmud- og Torah fylgjendur í burtu og/eða til að flytja til Zíonsta-Razista -Terrorista ríkisins Israel.   

The Hidden History Of Zionism

The Zionist Manifesto - Part 1

The Zionist Manifesto - Part 2

The Zionist Manifesto - Part 3

The Zionist Manifesto - Part 4

The Zionist Manifesto - Part 5

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 1.4.2010 kl. 21:35

17 identicon

 Snorri

Þú ættir að lesa hérna bókina "Ben Gurion's Scandals: How the Haganah & the Mossad Eliminated Jews" eftir  hann Naeim Giladi eða hérna bækurnar "Zionism: The Real Enemy of the Jews, Vol. 1: The False Messiah"Zionism: The Real Enemy of the Jews, Vol. 2: The False Messiah," Zionism: The Real Enemy of the Jews, Vol. 3: The False Messiah, þá kannski skilur þú betur hvað þetta Zíonista -lið (Ashkenazi Khazar) og zíonismi stendur fyrir. Í öllu þessu umræðum hér þá gleymir þú Snorri, að þetta Ashkenazi fólk tók upp letur, menningu,  manna nöfn og einnig allt sem viðkemur þessum viðbjóðslega Talmud

En hvað með ykkur þessa kristnu -zíonista sem eruð jafnvel farnir að nota Mólok /Refans stjörnuna hvað eftir annað ha, hvað næst hjá ykkur annað Talmud bækurnar líka?

"...þér báruð búð Móloks og stjörnu guðsins Refans, myndirnar, sem þér smíðuðuð til þess að tilbiðja þær."(Post 7:43)

"Star of David = 6 lines, 6 points, 6 intersections (666)" "The Magen David/Star of David/Seal of Solomon/Hexagram is NOT of Jewish origin, but instead finds its origin in pagan idolatry towards Ashtoreth which was adopted by Israel's king Solomon in defiance of God's commandments. The six pointed star was used in Gnostic and even Islamic artwork and symbolism before it came to use among Jews. It was adopted by Cabalists who got their beliefs from the earlier heretic Gnostics who believed the God of the Old Testament was evil and worshipped Lucifer. Issac Luria was a Cabalist who popularized it in the sixteenth century and it was used on a coat of arms by the banking family of Rothschild. Further on down the line the hexagram was utilized as the symbol for Zionism and became the emblem of the Israeli flag."

Móloks/Remphan  (eða í dag oftast nefnd sem Davíðsstjörnu) 

"Dr. Shaki told me he knew that the six-pointed star was not Jewish but pagan, and it was he in fact who loaned me my second reference The Jewish Connection by Hirsch Golgberg."(The six-pointed star, Dr O.J. Graham, bls. 2)

"The hexagram, or six-pointed star, certainly has three sixes. It contains a six, within a six, within a six: 666. Count the sides of each triangle facing the clockwise direction, the sides facing the counter -clockwise direction , and the third six - the sides of the inner hexagon" (The six-pointed star, Dr O.J. Graham, bls 91.)

Hér er svo góð frásögn handa þér um hryðjuverkin/terrorisman sem Zíonistanir stóðu fyrir í Írak:

"...  About 125,000 Jews left Iraq for Israel in the late 1940s and into 1952, most because they had been lied to and put into a panic by what I came to learn were Zionist bombs.."

Svo ég svari spurningu þinni varðandi Páska, þá halda kristnir páska vegna upprisu Jesú Krist, þar sem Jesú  reis upp frá dauðum á þriðja degi eftir að hann var krossfestur, en ég veit ekki af hverju þú spyrð, þar sem þú veist þetta allt saman. Gyðingar halda páska til að minnast burtfararinnar úr Egyptalandi (Exodus) er Móses leiddi ísraelsmenn  út úr ánauðinni og gegnum Rauðahafið og í átt til hins fyrirheitna lands.

Nú og hérna  Gleðilega páska

 Þorsteinn

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 2.4.2010 kl. 00:02

18 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þar sem þetta lið hefur verið í vandræðum með allar sannanir um að 6. milljónir hafi dáið í Holocaust-inu.

Þorsteinn, Þó!!!!

Ertu virkilega að efast um útrýmingu 6 milljóna gyðinga? Þýsk nákvæmni staðfestir skráningarnar. Ég hef komið í Majdanek búðinrar þar sem þúsund manns var eytt daglega!

Ef þú ert svona sagnfræðilega villtur þá skil ég vel hvers vegna þú getur trúað öllum þessum furðulegu kenningum sem einkenna þín skrif. Þú ert með Holocost-herferð gegn sannleikanum og sanngirninni, það er vont veganesti.

kveðja

Snorri

Snorri Óskarsson, 2.4.2010 kl. 00:31

19 Smámynd: Snorri Óskarsson

Gyðingar halda páska til að minnast burtfararinnar úr Egyptalandi (Exodus) er Móses leiddi ísraelsmenn  út úr ánauðinni og gegnum Rauðahafið og í átt til hins fyrirheitna lands.

Þorsteinn þessi tivísun þín sannar það sem ég hef haldið fram að einkenni gyðinga. Þeir halda sínar hátíðir. Múslimir halda ekki páska, Askenas Kahzar fólkið átti ekki Móse og kom ekki frá Egyptalandi. Gyðingar voru þar áður fyrr og fóru heim. Þeir voru í Evrópu og víðar og eru komnir heim. þetta þarf ekki að ræða meir.

Með ósk um gleðilega páska

Snorri

Snorri Óskarsson, 2.4.2010 kl. 00:39

20 Smámynd: Gísli Gíslason

Sæll Snorri.

 Ég tek undir það sem þú segir:  "Hugsunin að vernda líf, vinna saman og byggja upp bræðralag er lausnin."  Ég held að til að það finnist lausn á þessu svæði þá verða bæði Ísraelsmenn og Pelestínumenn að líta í gagnrýnið í eiginn barm. Það er enginn einn sekur þegar tveir deila, en þegar báðir aðilar sjá litla sök hjá sér en mikla hjá hinum aðilanum, þá óttst ég að þetta ástand verði of lengi viðvarandi.  Góðar kveðjur Gísli

Gísli Gíslason, 2.4.2010 kl. 21:49

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (6.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 50
  • Frá upphafi: 241115

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 49
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband