28.5.2019 | 18:56
stórmerki?
Sagt er að menn hafi þyrpst að ,,frá sér af undrun" er þeir heyrðu þá tala á ,,vorum tungum um stórmerki Guðs"! Þessi frásögn Postulasögunnar vekur góð hughrif þegar þýska lögreglan lýsir bjargvætti ökumannsins í þessari frétt sem Heilögum Anda sem var jú sendur af Jesú Kristi til bjargar kristninni og hjálpari manna.
Það þarf ekki djúpvitran guðfræðing til að sjá áhrif hins Heilaga Anda í kristnu starfi kirkjunnar í gegnum 2000 ár. Reyndar eru margir sem líta á starf Heilags Anda sem ,,annarlegt ástand". Sumir lýkja áhrifum Andans honum við drykkjuskap og að menn sækist eftir annarlegum áhrifum eða nokkurskonar vímugjafa hins kristna manns eins og Guði þóknanlegt fyllerí. En það er ekkert hæft í slíkum kennisetningum. Heilagur Andi er hjálpari en ekki vímugjafi. Hann getur veitt okkur innsýn og skilning, gefið mönnum snertingu og kraftaverk, hann upplýsir sálarsjón okkar manna fyrir einmitt stórverkum Guðs. Það er kirkjunni nauðsyn að hönd Guðs sé í verki í störfum hennar.
Kirkjan er eins og ökumaðurinn, komin yfir strikið og á slæmum stað. Hún virðist stunda afstöðuleysi í löggjöf og mikilvægum málum samtímans. Dúfan sem bjargaði kauða frá sektarmiðanum og lýst er í fréttinni er líkt og Heilagur Andi að bjarga andliti kirkjunnar þegar hún er komin yfir strikið í undanlátsseminni.
Þegar Heilagur Andi var gefinn söfnuðinum þá færðist líf og kraftur yfir kirkjuna og útlendingarnir urðu orðlausir af undrun. Sama þarf að gerast hjá okkur að kirkjan varðveiti boðskainn um helgi lífsins, mikilvægi réttlætisins og nauðsyn iðrunar.
Við á Íslandi eigum enga von um bjarta framtíð á þessari braut sem við erum komin á aukin réttur til fóstureyðinga, ,,frátekin rými til lögbrota" og afstöðuleysis í siðrænum atriðum. Umburðarlyndið er ekki lengur til staðar heldur aðeins uppgjöf í að halda uppi málstað hins kristna réttlætis.
Dúfa Heilags Anda svífur yfir vötnum en finnur hún lendingarstað eða hverfur hún aftur til heimkynna sinna án þess að drepa niður fæti? Guð hjálpi okkur.
Snorri í Betel
Heilagur andi kom í veg fyrir hraðasekt | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Flokkur: Trúmál og siðferði | Facebook
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- trukona
- hvala
- zeriaph
- hognihilm64
- kiddikef
- sigurjonn
- baddinn
- gudni-is
- baenamaer
- birkire
- valgerdurhalldorsdottir
- pkristbjornsson
- ruth777
- jullibrjans
- goodster
- sirrycoach
- daystar
- ellasprella
- flower
- valdis-82
- valdivest
- thormar
- sigvardur
- levi
- malacai
- hafsteinnvidar
- davidorn
- heringi
- helgigunnars
- icekeiko
- kjartanvido
- gretaro
- stingi
- jenni-1001
- kafteinninn
- eyjann
- svala-svala
- predikarinn
- exilim
- sax
- truryni
- morgunstjarna
- coke
- siggith
- kristleifur
- antonia
- vor
- valur-arnarson
- deepjazz
- bjarkitryggva
- harhar33
- thjodarskutan
- balduro
- gudspekifelagid
- study
- h2o
- frettaauki
- nyja-testamentid
- nkosi
- gudnim
- genesis
- ea
- gullilitli
- gladius
- bryndiseva
- dunni
- arnihjortur
- arncarol
- gun
- gummih
- gattin
- johann
- olijoe
- vilhjalmurarnason
- nytthugarfar
- postdoc
- eyglohjaltalin
- hebron
- muggi69
- krist
- trumal
- pall
- talrasin
- angel77
- gessi
- ghordur
- baldher
- ragnarbjarkarson
- adalbjornleifsson
- bassinn
- skari
- kje
- benediktae
- nonnibiz
- bjargvaetturmanna
- doralara
- nafar
- contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (21.11.): 0
- Sl. sólarhring: 3
- Sl. viku: 23
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 22
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Athugasemdir
Við ættum frekar að einbeita okkur að því að draga úr
stækkandi gaypride-göngum /hjónaböndum samkynhneigðra
(þar sem að fólk hefur valmöguleika)
Slíkur sódómu-lifnaður ógnar KRISTINNI TRÚ miklu meira
heldur en einstataka fóstureyðingar sem að eru oft framkvæmdar
af illri nauðsyn.
Jón Þórhallsson, 28.5.2019 kl. 20:04
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.