Vitni sögunnar!

Páskar = framhjáganga

papakrossinn Papakrossinn er staðfesting á því að sá sem hann markaði í bergið á Efri-Kleifum í Heimakletti, hafi verið kristinnar trúar. Líklega var hann klappaður í bergið um og uppúr 700 f.kr. Vitað er að nafnið Vestmannaeyjar tengist Írum eða búsetu norrænna manna á Írlandi sem var talið kristið land löngu áður en Ísland tók við kristninni. Krossinn er því sögulegt vitni um kristin áhrif fyrir landnám.

Papakrossinn í Heimakletti,(700 e.kr?)

           

Á Írlandi hafði verið trúboðshreyfing sem kölluð var Kolum Killa (dúfa safnaðarins). Hennar hlutverk var að senda trúboða frá Írlandi til landa í Evrópu. Tilgangur trúboðsins var að breiða út Fagnaðarboðskap Jesú Krists.  Hinir trúuðu Írar sem fóru um Evrópu komu til St.Gallen í Sviss, Bobbio á Ítalíu, Bregenz í Þýskalandi og fleiri staða eins og til Íslands. St.Gallen ber síðan nafn trúboðans frá Írlandi. Það væri hægt að segja það sama um örnefni á Íslandi, þau geyma sögu trúboðs írsku kirkjunnar á landinu líkt og nafnið Vestmannaeyjar. Sagan um Brendan sem kom til að sækja heim Pól hingað til lands, ætti að hafa gerst um 520 e.kr. Þá var Brendan á miðjum aldri en hann lést 560 AD. Var Papakrossinn greyptur í berg Heimakletts af þessum trúuðu Írum?

   Sveitadúkurinn sem geymdur er í Oviedo á N.Spáni er mjög merkileg heimild. Hann hefur langa og samfellda sögu frá því um 30 e.kr og tengist föstudeginum langa og páskadegi það ár.

 Ég ók til Spánar árið 2020 og tók þessa mynd af sveitadúknum í Camara Santa.                                                                                Vitað er að klúturinn hjúpaði höfuð Jesú þegar hann var tekinn                

sveitadúkurinn ofan af krossinum eftir andlátið. Jósep frá Arímaþeu fékk leyfi Pílatusar að koma líkinu í gröf áður en hin mikla hátíð gyðinga gengi í garð. Klúturinn gæti því hafa verið í eigu Jóseps en  gröfin var örugglega eign hans. Nikodemus, fyrrum ráðherra og sá er kom í næturheimsókn til Jesú sem frá er greint í 3.kafla Jóhannesarguðspjalls, mætti einnig með smyrsl til að smyrja lík hins krossfesta manns.

Á páskadag, við upprisu Jesú þegar menn komu inní opnu gröfina sjá menn líkblæjurnar sem geymdar eru í Tórínó á Ítalíu, lágu í gröfinni og sveitadúkurinn, samanvafinn, annarsstaðar í gröfinni. Þegar vel er gáð sjá menn, í hægra horni myndarinnar, brot sem eru enn varðveitt frá upprisudeginum.

Þessar myndir sem fylgja blogginu eru því af vitnum sem staðfesta söguna. Sú fyrri, Papakrossinn, um áhrifa trúboðs, frásagnarinnar um pínu og dauða Jesú. Hin er af sveitadúknum með blóði og lífssýni þess sem tekinn var af krossi og lagður í gröf.

Allt er þetta til þess að þú megir trúa. Efasemdirnar koma á færibandi en trúartáknin, vitni sögunnar, eru líka fyrir þig, harla örugg vitni um það sem Guðsjöllin segja um páskana árið 30 e.kr. og áhrifa hennar sem mótuð eru í klettabjarg Hæsta fjalls Vestmannaeyja.

Flestir hafa lofað því að gera Jesú að leiðtoga lífs síns og fengið einhverja þúsundkalla fyrir. En hvernig hefur gengið að efna það loforð? Ættu ekki flest allir á Íslandi að vera ,,Vitni" sögu frelsarans sem er:,,fæddur af Maríu mey, Píndur á dögum Pontíusar Pílatusar, krossfestur, dáinn og grafinn. Steig niður til Heljar, reis upp á þriðja degi og steig upp til himna og mun þaðan koma til að dæma lifendur og dauða"! 

Trúir þú þessu?

 

 

k.kv.

Snorri í Betel

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Guðmundur Örn Ragnarsson

Snorri! Hver einasti maður virðist þrá að þessi Engill dauðans komi ekki til hans í heimsókn, heldur gangi framhjá húsi hans. En það er ekki sjálfgefið að honum verði að ósk sinni. Hann verður að eiga sér trú.

Á 13. öld fyrir Krist voru Hebrear (Gyðingar) ánauðugir þrælar Egypta. Þeir átt sér trú á almáttugan Guð skapara himins og jarðar, en kölluðu hann Guð Abrahams, Ísaks og Jakobs.

Þeir höfðu verið þrælar Ramsesar II í hvorki meira eða minna en 400 ár og hrópuðu stöðugt á Guð í bæn um hjálp. Þá heyrði Guð hróp þeirra frá himni og hann sendi Engil dauðans í hús Egypta til að að deyða alla frumburði þeirra.

Þannig hegndi hann þeim fyrir meðferðina á hans útvalda lýð og neyddi þá til að leysa Hebreana úr ánauð.

Engill dauðans fór hins vegar fram hjá húsum Hebreana og snerti ekki frumburði þeirra enda hlýddu þeir Guði sínum í trú.

Þess vegna halda Gyðingar upp á Páska sem hátíð Lífsins.

Með Jesú Kristi uppfærast Páskarnir á nýtt plan. Jesú er ekki hlíft við að deyja þótt frumburður sé, en hann rís upp úr gröf sinni. Þannig hefur Lífið sigur yfir dauðanum.

En Jesús segir einmitt: Ég er Upprisan og Lífið, sá sem trúir á mig mun lifa þótt hann deyi.

Allir munu deyja að líkamanum til, en þeir sem deyja í trú á Jesú Krist rísa upp úr gröfum sínum til eilífs lífs með honum.

Þess vegna halda Kristnir men upp á Páska og fagna yfir Lífinu eilífa sem þeir eiga í Jesú Kristi.

En aðrir verða eilífum dauða að bráð, af því þeir hirða ekki um að gefast Jesú Kristi.

Guðmundur Örn Ragnarsson, 17.4.2023 kl. 22:40

2 Smámynd: Snorri Óskarsson

Eina ráðið sem menn þekkja til að forðast engil dauðans er að eiga þá trú að Jesús Kristur, sonur Guðs veiti þeim sem trúir eilíft líf. Opinberunarbókin segir að vottar hans muni lifa um aldir alda (Op.22:4).Það eru mikil forréttindi að trúa á Jesú Krist, píndan, dáinn, upprisinn og við hægri hönd Föðurins.

k.kv

snorri

Snorri Óskarsson, 18.4.2023 kl. 21:22

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 9
  • Sl. sólarhring: 12
  • Sl. viku: 39
  • Frá upphafi: 241043

Annað

  • Innlit í dag: 9
  • Innlit sl. viku: 38
  • Gestir í dag: 9
  • IP-tölur í dag: 4

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband