Hér sjá menn hve alvarlegt ástandið er..

Hamas myndi hleypa ölli í bál og brand bæði í Egyptalandi sem og Ísrael. Bæði í Egyptalandi og Sýrlandi er mikil andstaða við Hamas af þeirri ástæðu að þeir færa hrylling og ofbeldi inní allar kringumstæður. Skoðið myndbandið sem Palestínumenn hafa gert. Svo stendur fólk í Iðnó og hræpir Ísrael en biður þessum föntum vægðar? Er ekki allt í lagi með Svein Rúnar og hans nóta?

Að úr flokki Vinstri grænna og Samfylkingu berast raddir um að slíta stjórnmálasamandi við Ísrael og taka samband upp við svona lið sem sýnir verk sín á myndbandinu? Allt bendir til þess að þessum flokkum er enganveginn treystandi fyrir stjórn þessa lands og ætti hreinlega að banna miðað við kröfur þeirra.

Biðjum Jerúsalem friðar! Í Jesú nafni.

kær kveðja

Snorri í Betel


mbl.is Óvænt viðbrögð við hernaði Ísraela
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Kristinn Ásgrímsson

Já Snorri, þetta er skelfilegt myndband. Ég var að velta fyrir mér, hvað ætli Hamas menn hafi drepið marga Palestínumenn? Það er óskiljanlegt að fólk skuli kalla þetta stjórnmálasamtök og Ísrelsríki Hryðjuverkamenn.

Kristinn Ásgrímsson, 11.1.2009 kl. 22:07

2 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Sæll Snorri, ég var með þetta í "bíóinu mínu" á sýningu fyrir barnalegar sálir og aukamynd frá Kaupmannahöfn. Gott að sjá að myndin er komin til Akureyrar. Ég hafði fullt hús í dag en það voru nokkrir sem komu og héldu með glæponunum og vildu láta illa.

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 11.1.2009 kl. 22:55

3 Smámynd: Víðir Benediktsson

Snorri minn, var einhver að tala um að taka upp samband við Hamas þó stjónmálasambandi væri slitið við barnamorðingja Israel?

Víðir Benediktsson, 11.1.2009 kl. 23:28

4 Smámynd: Snorri Óskarsson

kreppukallinn er:   Ég tók þetta af heimasíu hans til að allir sjái hve mikill mannvinur hann er og með óslökkvandi þörf... ég segi nú ekki meir en læt hans eigin orð standa - þvílíkur hræsnari !

kreppukallinn

"Arnar Helgi Aðalsteinsson. Tónlistarmaður og mannvinur með óslökkvandi þörf fyrir betra , réttlátara og skilningsríkara samfélag manna. Hika samt ekki við að rífa kjaft.... "to make an omelet......

Snorri Óskarsson, 12.1.2009 kl. 00:46

5 Smámynd: Snorri Óskarsson

Víðir

Ef Hamas fær okkur til að andmæla og slíta stjórnmálasambandi við Ísrael, styrkja þá um 200 milljónir, styðja þeirra málstað þá styðjum við Hamas en niðurníðum Ísrael sem á allt gott skilið frá okkur. Þeir eru siðmenntuð, víðsýn, harðdugleg og Guðsútvalin þjóð.

Snorri Óskarsson, 12.1.2009 kl. 00:49

6 identicon

Heill og sæll; Snorri !

Þakka þér; varðstöðuna, gagnvart hinni Múhameðsku vá.

Vona; Snorri, að þú fyrirgefir Arnari Helga (kreppukallinum), einum minna beztu spjallvina.

Hann er; líkt og ég, sem flest okkar samlanda, í vígamóð miklum, vegna svika stjórnmálamanna og braskara og víxlara þeirra, sem komu okkur á kné, í haust, leið.

Hann hefir; viðlíka fjölmörgum annarra, sterka réttlætiskennd, og þar af leiðir, að honum hleypur oft kapp í kinn, líka sem mér; oftlega.

Arnar Helgi; líka sem margur annar, hrekklaus, áttar sig kannski ekki á, hvers lags ógnar samtök Hamas, og önnur viðlíka eru, austur þar. En,..... það kemur sú stund, vonandi.

Með baráttukveðjum; góðum, til ykkar allra /

Óskar Helgi Helgason, úr Árnesþingi

Óskar Helgi Helgason (IP-tala skráð) 12.1.2009 kl. 01:32

7 Smámynd: Ólafur Ingi Hrólfsson

Heyrðu Snorri. Sástu að núna var allt í einu talað um eldflaugar frá Hamas sem skotið var á Ísrael. Bloggarar hér hafa yfirleitt talað um rakettur - svona einskonar áramótaskraut -

Það er álíka málflutningur eins og sá að Geir H Haarde hafi sett heimskreppuna af stað. Og sennilega fleiri kreppur.

Af hverju styðja Egyptar ekki við bakið á Hamas??  Af hverju styðja Sýrlendingar ekki við bakið á Hamas? Það heyrist ekkert frá þeim. Það skyldi þó ekki vera að þeir sjái Hamas í sama ljósi og margir aðrir HRYÐJUVERKASAMTÖK og hversvegna er ekki talað um það með hvaða hætti þeir komust til valda?   Það er orðið illt í ári þegar maður fer að sakna Arafats.

Ólafur I Hrólfsson

Ólafur Ingi Hrólfsson, 12.1.2009 kl. 07:28

8 Smámynd: Kristín Björg Þorsteinsdóttir

Fyrirgefðu Snorri - en hefur þú ekki frétt hversu margir Palestínu menn hafa verið drepnir af Ísraelsmönnum og hverstu margir Ísarelskir hermenn hafa dáið? Í gær voru tölurnar á þá leið að á 800 hundrað Palestínu menn lágu í valnum en á anna tug Ísraelsmanna. Hver drepur hvern hér? Og hefurðu ekki frétt af nýjasta og háþróaðsta vopni Ísraelsmanna? Sprengja sem kemur af stað krabbameini ef hún er ekki svo "lánsöm" að drepa þann sem fyrir verður. Teygjubyssu skot Palestínumanna hafa lítið í þetta vopn. Og hvað með vistir og annað sem Palestínumenn þarfnast? Það fæst ekki leyfi til að flytja þær til þeirra. Kemur svo sem ekki á óvart.

Og bara svo þú vitir það þá eru það ekki einugnis Samfylkingarmenn og Vinstri grænir sem fordæma Ísraelsríki. Samúð heimsbyggðarinnar liggur með Palestínumönnum enda hafa Ísraelar löngu fyrirgert rétti sínum til samúðar.

Kristín Björg Þorsteinsdóttir, 12.1.2009 kl. 07:55

9 Smámynd: Sigurður Sveinsson

Þú hefur líklega gleymt boðorðinu þú skalt ekki mann deyða. Þjóð sem fremur fjöldamorð á börnum er ekki siðmenntuð. Aðferðirnar er engu skárri en nastistanna í síðari heimstyrjöldinni.

Sigurður Sveinsson, 12.1.2009 kl. 09:10

10 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Snorri.

Nú finnst þér að þú hafi dottið í lukkupottinn og fundið myndband sem sannar eitthvað sem þér líkar að heyra. En það er ekki svo. Í fyrsta lagi þá getur myndbandið verið ein heljarinnar sviðsettning af hálfu Ísraela. Í öðru lagi þá geta þetta verið myndir af átökum meðal Fatah og Hamas og það hefur verið fullt af slíku. En þulur myndarinnar er Síonisti og talar þeirra máli. Hann getur verið arabi eða Ísraeli, það er ekki gott að vita. En það sem hann segir í lokin sannar að hann er talsmaður Síonismanns. „Many think this is because Israel is takin their land (hann er að tala um orsakir haturs Hamas á Ísrael). This is a lie. First nobody took their land. Palrstine as a state never existed, go and check the history... there is no state, no government, no border...“

Hér er þulurinn að segja okkur að Palestínumenn séu réttlausir sökum sögunnar. Það er ein af aðal „röksemdum“ síonista: að þetta fólk sem er þarna að flækjast fyrir yfirtöku Síonista á allri Palestínu eigi engan rétt til þessa lands. Land sem þau eru fædd og uppalin á og þeirra forfeður í mannsaldra. Það sjá allir að stenst ekki. Fólk er fólk og þú sem eyjamaður veist að eyjamenn meta sinn upprunastað mikils og vildu ekki láta einhverja segja sér að hypja sig. Sagan manna er tengd við landið, staðinn þar sem þair fæddust og byrjuðu sitt líf. Palestínumenn eiga slíkan rétt sama þótt þeim hafi ekki tekist að mynda eigið ríki enn.

Hjálmtýr V Heiðdal, 12.1.2009 kl. 09:46

11 Smámynd: Aron Arnórsson

Mér býður við þessu. Svo er manni sagt að elska náunga sinn einsog sjálfan sig. Hvernig getur maður óskað svona mönnum upprisu eða eilíft líf? Þetta vekur hatur innra með mér sem ég veit að er ekki af hinu góða. Veit ekki til þess að manni sé neinstaðar sagt að hata í Biblíunni.

Ég vildi ekki klára að horfa á þetta video.

Aron Arnórsson, 12.1.2009 kl. 10:34

12 Smámynd: Ólafur Jóhannsson

Sæll Snorri!

Takk fyrir tessa frett, athugasemd tina. Eg er staddur i Kaupmannahøfn og var asmat fjølda Israelsvina og danskra Gydinga a fridsamlegum utifundi a Radhusplassinu. Tad voru tekktir adilar sem tøludu og fjøldin søng med undirleik tonlistarmanna. Allt gekk mjøg fridsamlega fra.

En rett a eftri komu nokkur tusund hatursfullir Hamas-vinir med hrop um drap og hatur. Drepum Gydinga, Drepum alla vini Israels. Tetta var nokkud abertandi mismunur a utifundi.

75 Hatursmenn Israels voru handteknir fyrir olæti. Eg hitti Vilhjalm Vilhjalmson og er hann einnig men mjøg athyglisverdan post a blogginu sinu nuna.
--postdoc.blog.is-

Shalom kvedja fra Zion
olijoe

Ólafur Jóhannsson, 12.1.2009 kl. 10:50

13 Smámynd: Börkur Hrólfsson

Sæll snorri, takk fyrir síðast,

Eftir að hafa unnið með Ísraelum í mörg ár, og heimsótt þá þarna niðureftir, hef ég myndað mér skoðun á þeim sem þjóð, og gyðingum almennt, sem fólki.

Mér finnst Ísraelar almennt vera gott, siðmenntað fólk, frekar líkt okkur Íslendingum að eiga samskifti við. Ég hef aldrei staðið þetta fólk að svikum eða óheiðarleika, þótt auðvitað megi funna glæpona inn á milli. Ísraelar, og reyndar allur heimurinn á alla mína samúð vegna hryðjuverka samtakanna Hamas, sem skirrast ekki við að drepa og limlesta eigið fólk, og nota konur og börn sem lifandi skildi og vopn í hryðjuverkum sínum. Verði Hamas útmáð af jörðinni verður einni plágunni færra, og lífvænlegra í þessum annars viðsjála heimi.

Megi guðirnir vera með þér, og öllum þeim sem draga lífsanda á jörðinni.

Börkur Hrólfsson, 12.1.2009 kl. 13:42

14 Smámynd: Sigurbjörn Friðriksson

Þegar trú er blandað saman við pólítík, þá kemur útkoma sem heitir trúarbrögð og slíkur sóðaskapur á borð við Hvítasunnusöfnuðinn sem styðja Ísraela í hreinni blindni og notast við áróðursmaskínu á borð við sjónvarpsstöðina OMEGA sem boðar að Ísrael sé guðs útvalin þjóð.  Rökin eru þjóðsögur sem kallast Gamla Testamentið og er samið af Gyðingum sjálfum.

TRÚ  +  PÓLITÍK  =  TRÚARBRÖGР LMN=

Kveðja, Björn bóndi  

Sigurbjörn Friðriksson, 12.1.2009 kl. 14:18

15 Smámynd: Þór Magnússon

Guðsútvalin þjóð sem sem heldur smáþjóð í gíslingu svo árum skiptir með fullkomnustu drápstólum sem þekkjast á þessari jörð. Þetta er aðferðin til að framleiða hatursfulla hryðjuverkamenn, Ísraelum hefur tekist það þjóða best. Þú sem kennir þig við kristna trú og kallar aðra hræsnara, eru þessi 300 börn af nærri 900 óbreyttum borgurum sem hefur verið slátrað á Gasa, ekki manneskjur Guði þóknanlegar? eða eru þau kannski bara réttdræp af "Guðs útvalinni þjóð"?

Þór Magnússon, 12.1.2009 kl. 14:37

16 Smámynd: Snorri Óskarsson

Sigurður Heiðdal

Þarna misskilur þú mig, mér líkar alls ekki vel að heyra og sjá hvað Hamas gerir við meðborgara á Gasa. Ég þekki nokkra Araba og kann mjög vel við þá. Ég má ekki hugsa til að þeir sæti slíkri meðferð sem sýnd er á myndbandinu. Margir eru mér sammála t.d. Egyptar sem opna ekki landamærin að Gasa (þar í gegn gætu öll viðskipti, lyf og annað flætt til Gasa öðrum þræði.) Ísraelar eru ekki eina þjóðin sem á landamæri að Gasa.

Ég veit að kristnir Arabar hafa liðið hroðalega undir kúgun Hamas liða og það er vegna þess að í Islam er þessi undirleggjandi þráður að gyðinar og kristnir njóta hvorki sannmælis, miskunnar eða réttlætis. Við erum réttdræp og það er vilji Allah að þannig sé farið með okkur. Slíku fagna ég ekki og mannfalli á Gasa eða annarsstaðar vekur enga sælukennd hjá mér.

En ég geri mér grein fyrir því að sá sem vegur með sverði hefur fyrirgert lífsrétti sínum því við öll höfum fegnið lífið frá sama gjafara og því hefur enginn rétt á að taka líf annars. En sérhver hefur rétt á að varðveita sitt líf og tilveru.

Ef Hamas vildu hverfa aftur til áranna áður en Arafat settist að á Gasa (1991? held ég, þegar hann kom frá Túnis) þá myndi ég styðja Hamas heilshugar því þá gátu þeir flutt um allt Ísrael vörur sínar og lifað í framfarasömu umhverfi. En þegar Arafat mætti til borgarinnar þá fékk hann liðið til að flytja vítisvélar með varnigi sínum og koma þeim fyrir á mörkuðum í Ísrael. Tilgangurinn var að skaða, drepa og eyðileggja Ísrael. Því get ég enganveginn skilið hvernig hægt var að veita Arafat friðarverðlaun Nóbels - og Hamas eru að fá sömu englavængina! Þvílík blinda hjá vestrænum þjóðum.

Það fólk sem er að mótmæla Ísrael er að biðja um Hamas (Barrabas samtímans! vonandi að Guð hlusti ekki á þá bæn og svari henni ekki að skapi fólksins.) Guð hjálpi okkur og blessi Ísrael!

kveðja

Snorri í Betel

Snorri Óskarsson, 12.1.2009 kl. 14:51

17 Smámynd: Þór Magnússon

"Guðs útvalda þjóð", hefur sýnt heiminum sitt rétta andlit svo árum skipti, þeir hafa kennt umheiminum hvernig á að framleiða hatursfulla hryðjuverkamenn. Þeir loka smáþjóð inni svo árum skiptir og svo þegar hatrið hefur grafið um sig þá ráðast þeir til atlögu með fullkomnustu drápstólum sem fyrir finnast og eira engu, jafnvel skólar sameinuðu þjóðanna og hjálparsendingar verða fyrir árásum. Þú sem kallar aðra hræsnara, voru þessi 300 börn af þeim 900 óbreyttu borgurum sem hafa verið drepin á Gasasvæðinu undanfarið ekki ykkur útvöldum þóknanleg? sem sagt, réttdræp af "Guðs útvalinni Þjóð".

Þór Magnússon, 12.1.2009 kl. 15:06

18 Smámynd: Bergur Thorberg

Snorri......... hm.........hm... hm......

Bergur Thorberg, 12.1.2009 kl. 16:06

19 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þór þó!

Þú skammast út í sundrunguna að gyðingar hafi ekki innlimað Gasa? Skoðum hvað Þór segir á eigin heimasíðu :

 
Þór Magnússon
Þór Magnússon
Þjakaður af réttlætiskennd, gegn spillingu og öfgum á öllum sviðum, en trúi því að með opnum huga sé hægt að sameina þjóðina undir merkjum nýrra gilda.

Snorri Óskarsson, 12.1.2009 kl. 17:58

20 Smámynd: Víðir Benediktsson

Snorri, þú værir kannski til í að segja börnunum sem hafa verið limlest eða drepin að þetta sé allt í fína því það sé Guðs útvalda þjóðin sem er að valda þeim þessum þjáningum. Ég vil leyfa mér að efast um að eitt einasta barn sem fallið hefur í þessari hryðjuverkaárás Ísraela sé meðlimur í Hamas. Ég get svona rétt ímyndað mér hvað Kristur hefði sagt um þetta athæfi. Hann átti það til að senda sínu fólki tóninn þegar honum fannst það ekki breyta rétt.

Víðir Benediktsson, 12.1.2009 kl. 18:50

21 Smámynd: Hjálmtýr V Heiðdal

Sæll Snorri

Þú ert eitthvað að rugla - þú ávarpar afa minn Sigurð Heiðdal. Hann dó fyrir mörgum árum. Hann viðraði ekki neinar skoðanir varðandi Ísrael í mín eyru. En hann var mannúðarsinni og skrifaði bók um Örlög á Litla hrauni. Hann var fyrsti fangelsisstjórinn þar. En að þessu slepptu þá misskil ég ekki neitt í þínum málflutningi. Ég skil að þú styður Ísrael með ráðum og dáð - það verður þinn kross.

Hjálmtýr V Heiðdal, 12.1.2009 kl. 19:34

22 Smámynd: Snorri Óskarsson

Hjálmtýr

Ég styð Ísrael en ekki Hamas. Ég styð ekki stríð, dauða eða limlestingar á gyðingum né öðrum. En ég veit að Hamasliðar sem og Hisbolla hafa svarið dýran eið þess að fórna sér og fjölskyldum sínum í baráttunni við gyðinga (og kristna).

Það skal vera á hreinu hvort sem það er kross eða stjarna.

kveðja

Snorri Óskarsson, 12.1.2009 kl. 23:34

23 Smámynd: Sindri Guðjónsson

Merkilegt að sjá hversu margir tjá sig hér æfa reiðir yfir þessu myndbandi, án þess að hafa nokkuð efnislegt að segja um þetta mjög svo athyglisverða myndband.

Barnamorðingjarnir eru Hamas liðar, en ekki Ísraelar. Það eru Hamasliðar sem geyma vopnabúr sín innan um börn. Það eru Hamas liðar sem kenna börnum að hata. Það eru Hamasliðar sem dýrka ofbeldi. http://www.sindri79.blog.is/blog/sindri79/entry/769644/

Sindri Guðjónsson, 13.1.2009 kl. 00:40

24 Smámynd: Ingvar Leví Gunnarsson

Viðverukvitt! Langar til að þakka þér fyrir að halda þessu á lofti Snorri!

Mikilvægt að einhver geri það.

Guðs blessun að sunnan!

Ingvar Leví Gunnarsson, 13.1.2009 kl. 01:33

25 Smámynd: Þór Magnússon

Snorri, þegar öfgamenn skortir rök þá slíta þeir allt úr samhengi, en þar sem ég veit að ekki er hægt að skiptast á skoðunum við þig á rökréttum og eðlilegum nótum bið ég þig vel að lifa.

Þór Magnússon, 13.1.2009 kl. 08:43

26 Smámynd: Víðir Benediktsson

Það verður fróðlegt að vita hverju þú svarar á efsta degi þegar þú verður spurður að því hvers vegna þú studdir að lífið væri  murkað lífið úr sakleysingjum. Sérstaklega börnum. Er Hvítasunnusöfnuðurinn búinn að tína kærleikanum?

Víðir Benediktsson, 13.1.2009 kl. 12:02

27 Smámynd: Snorri Óskarsson

Víðir

Nú fór "trollið hjá þér óklárt í sjó" því við erum enganveginn búnir að týna kærleikanum. Við vitum aftur á móti að hann "samgleðst sannleikanum og gleðst ekki yfir óréttvísinni" þess vegna fögnum við ekki þegar múslimar tefla börnum sínum í fremstu víglínu eða setja vopnabúr sín inní íbúðir, barnaheimili eða skóla eins og komið hefur fram. Ég vil minna þig á frétt Mbl. frá 19.12.2000 þar sem palestínskir foreldrar senda Arafat áskorun að "börnum verði ekki att í fremstu víglínu"!

Enn hafast þeir eins að! Hvernig heldur þú að þér vegni á dómsdegi?

kær kveðja

Snorri 

Snorri Óskarsson, 13.1.2009 kl. 23:26

28 Smámynd: Víðir Benediktsson

Meðan ég haga mér ekki eins og farísei er ég rólegur.

Víðir Benediktsson, 13.1.2009 kl. 23:55

29 Smámynd: Jónas Jónasson

Ingibjörg Sólrún er í Hamas!

Jónas Jónasson, 14.1.2009 kl. 12:52

30 Smámynd: Linda

Sæll Snorri. 

Ég verð alltaf jafn hissa þegar ég sé fólk vera svona svart hvítt í hugsun, það eru svo margir sem virðast ekki geta gert neitt annað en að sjá bara að Hamas sé saklausi aðilinn í þessu öllu saman, og að Kristnir og Gyðingar hati alla Araba vegna þess að við sjáum hlið Ísraela. Staðan er í reynd allt öðruvísi, ég t.d  er miður mínu yfir hverjum einasta sakleysingja sem fellur vegna sprenginga Ísraela, en ég geri  mér líka grein fyrir því, að eina vonin fyrir þetta svæði er að losa Gaza við Hamas, enda djöflar í mansmynd, fyrir svik og framkomu við eigið fólk. En, ég ætla ekki að ræða það frekar hér, enda ætti vel gefið fólk að skilja að ekki er allt eins einfalt og hnitmiðað og fjölmiðlar og Hamas stuðningsmenn Íslands vilja láta vera.  Skelli hér inn einu myndbandi af stúlku á Gaza og hvað hún hefur að segja.

http://www.youtube.com/watch?v=fLIdxF-GHWw

Linda, 16.1.2009 kl. 16:07

31 Smámynd: Vilhjálmur Árnason

Ég er farinn að trúa því að skæruliðasamtök sem þessi verði til undir kúgun eða sett á fót af mönnum sem hafa það eitt á stefnuskrá sinni að egna trúarbrögðum saman og valda stríði og ófrið.

Ég hef trú á því Snorri að hamas sé fullt af fórnarlömbum hatursfulls uppeldis eða kenninga, sem afvegaleiða, eða verða til vegna óréttlætis sem þeir verða fyrir. Þess vegna eru Hamas ekki dýr eins og myndbandið sýnir.Og ég veit þú ert ekki að segja það að allir séu réttdræpir.

Hamas börn og þáttakendur eru fórnarlömb einhverra manna sem misnota fólk til að vinna gerir einhvern málstað á ofbeldisfullann hátt. Og með því að segja þetta er ég ekki að gera lítið úr ógn svona samtaka, eða ógninni við hatrið.

En manstu eftir IRA voru það ekki samtök sem börðust undan yfirvaldi breta, ég er ansi hræddur um að kröfur þeirra hafi verið réttmætar og svo var ekki hlustað á þær.

Það sem mér finnst merkilegt við þessar pælingar um hriðjuverkasamtök er að í dag á Íslandi er jarðvegurinn að verða til sem sprettur af sér hryðjuverkamenn.

Fjármálastofnanir og ríkisstjórn, seðlabanki, fjármálaeftirlit, eru að murka lífið úr þúsundum fjölskyldna.

Ráðast að öryggi þeirra, stela eignum þeirra, og segjast svo ekki bera ábyrgð á því.

Þessu öllu hefði Jesú staðið upp á móti og beðið gegn.

Og ég vona að það sé ekki talað um þá sem mótmæla á einhvern annan hátt en til blessunnar í ykkar forstöðumannaröðum.

Og það er annað sem þið ættuð að taka sérstaklega fyrir að að það er það að æðstu ráðamenn þessarar þjóðar eru gjörspilltir og undir stjórn illra anda sumirhverjir og stunda kukl og kalla yfir þjóð sýna hörmungar.

Flestir þeirra hátt settu manna sem stjórna þessu landi eru frímúrarar.

Ég vil blessa Ísrael en ég er ansi hræddur um að frímúrarar stjórni ríkisstjórn Ísraels og Íslands.

Og séu undir áhrifum illra afla. Þetta er mitt álit í dag kæri Snorri.

En það er gömul saga að ábyrgðinni sé kastað á borgarana.

Eins gömul og okkar þjóðkirkja.

Og eins og segir í Jesaja.

Silfur þitt er orðið að sora, vín þitt vatni blandað.

23

Höfðingjar þínir eru uppreistarmenn og leggja lag sitt við þjófa. Allir elska þeir mútu og sækjast ólmir eftir fégjöfum. Þeir reka eigi réttar hins munaðarlausa, og málefni ekkjunnar fær eigi að koma fyrir þá.

24

Fyrir því segir hinn alvaldi Drottinn allsherjar, hinn voldugi Ísraels Guð: Vei, ég skal ná rétti mínum gagnvart mótstöðumönnum mínum og hefna mín á óvinum mínum.

25

Og ég skal rétta út hönd mína til þín og hreinsa sorann úr þér, eins og með lútösku, og skilja frá allt blýið.

26

Ég skal fá þér aftur slíka dómendur sem í öndverðu og aðra eins ráðgjafa og í upphafi. Upp frá því skalt þú kallast bær réttvísinnar, borgin trúfasta.

27

Síon skal endurleyst fyrir réttan dóm, og þeir, sem taka sinnaskiptum, munu frelsaðir verða fyrir réttlæti.

Takið eftir að þarna er Jesaja að tala um verðbólgu eða útþynningu silfurs og víns.

Verbólga er siðlaus, þjófnaður sem á ekki að lýðast, en stjórnmálamenn komast upp með að gefa okkur afsakannir fyrir þjófnaði sínum ár eftir ár.

Martin Lúther sagði í pistli sínum um Rómverjabréfið, að dómur Guðs biði þeirra stjórnenda sem settu ástæðulausa skatta á fólk, eða með því að breyta eða gjaldfella gjaldmiðilinn og á sama tíma ásaka borgara sína fyrir græðgi og óhóf.

Vilhjálmur Árnason, 17.1.2009 kl. 14:54

32 Smámynd: Sigurður Rósant

Já, Ingibjörg Sólrún er ein af þeim fáu sem vita hvað er best að gera í stöðunni. Styrkja Hamas fjárhagslega svo þeir geti keypt fleiri flugelda. Þessar flugeldasýningar langt fram yfir áramót hafa að mestu komið í staðinn fyrir grjótkast beggja aðila og Vestrænar þjóðir ættu að sjá sóma sinn í því að senda báðum deiluaðilum fleiri skotelda í stað þess að skrifa undir eins konar "flugeldabann".

Er ekki vonlaust að kenna þeim fótbolta, handbolta eða körfubolta?

Sigurður Rósant, 17.1.2009 kl. 21:14

33 identicon

Snorri

Þetta myndband er örugglega fake,  því þessi maður sem talar þarna er fyrir það fyrsta ekki með arabískan eða palestíniskan hreim, og annað í þessu sambandi hann talar alltaf um, að þegar múslimar þetta og hitt , rétt eins og hann sé ekki múslimi, palestínumaður eða arabi. Ekki er hægt að sjá að einhver þarna hafi verið drepinn eða skotinn. En það er vel þekkt að skjóta beint upp í loftið í giftingarveislum.  Nú þetta myndbrot þarna um 9/11 er vel þekkt fake sem CNN tók nokkrum árum áður eða löngu fyrir 9/11. sjá á youtube Footage of 9/11 Celebrations An Israeli Fake

En það er einnig hægt að finna mikið af svona false/fake myndbrotum sem þessir Zionistar hjá ADL, JDL og JTF hafa saumað saman.  

Snorri hvað er þetta hjá þér "..Bæði í Egyptalandi og Sýrlandi er mikil andstaða við Hamas af þeirri ástæðu að þeir færa hrylling og ofbeldi inní allar kringumstæður..", en hvað með þessa Zíonista?

Eða hvað með þennan Zíonisma, Racisma og þeirra vel þekkta Talmud-iska- hatur sem þeir sýna gagnvart okkur "goyim" svo og palestínumönnu og/eða aröbum?

Þða má kannski ekki tala um það?

Snorri þú ættir að fara athuga hvað þetta lið sem þú styður segir um kristna trú?

Talmud Unmasked

Því eins og þeir segja  "The truth is that their "real bible" is The Talmud. The Jewish book "The Mitzbeach" states that "there is nothing superior to 'Holy Talmud'."

Sjá einnig  http://christianparty.net/talmudoldtestament.htm

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 15:17

34 identicon

Snorri

Þetta myndband hjá þér er ekkert annað en lygar, fake og áróður. Og sennilega komið frá þessu Zionista bullum  ADL, JDL og JTF. Þessi maður sem þarna talar er alls ekki arabi, palestínumaður eða hvað þá múslimi, en hann er örugglega Zionisti. Það er reyndar ekki hægt að sjá neina sönnum um það á þessu myndbandi hver var skotinn eða drepinn, en það er þekkt hjá palestínumönnum og reyndar öðrum að skjóta beint upp í loftið við ýmiss tækifæri, en hvernig er hægt að sjá hverjir þetta eru sem koma þarna við sögu á amerískum bílum? 

Nú þetta myndbrot sem sýnt er þarna sem og þessi Zíonista lygari segir að sé tekið eftir 9/11 var reyndar tekið löngu áður eða árið 1993 en þekkt er mjög gróft hjá Zionistum að gera svona . Sjá Footage of 9/11 Celebrations An Israeli Fake  

Ég bið samt að heilsa þessum Ashkenazi Khazar liði þínu og vona að þetta lið fari að hætta öllum þessum árásum með her- og landnámi, en fara þess í stað til þeirra fyrrum heimalands sem er reyndar ekki í Palestínu heldur fyrrum Khazaríu (eða landsins milli Svarthafs og Kaspíahafs)  

Nú 90% Ísraelsmanna í dag eru reyndar Ashkenazi Khazar (komnir og ætttaðir frá Khazaríu) og alls ekki af semitiskum bergi brotnir (e. semitic race) eða hvað þá blóðskyldir Gyðingunum GT. sem við þekkjum eða þeim Abraham, Ísak og Jakob en  Arabar eru hins vegar af semitisku bergi brotnir. Þá hafa samtök eins og Jews Against Zionism og Jews Not Zionist bent á að þetta Zionista lið þitt sé ekkert annað en Anti -semitic, racist og að þetta fólk fer alls ekki eftir þeirra Torah eða GT.  og að þetta fólk hafi stolið þeirra virðulega nafni Gyðingar "Jews" svona eins og identity theft  sjá http://www.jewsnotzionists.org/ og  http://www.jewsagainstzionism.com/

"The Zionists have no right of any sovereignty over even one inch of the Holy Land. They do not represent the Jewish people in any way whatsoever. They have no right to speak in the name of the Jewish people. Therefore, their words, declarations and actions are not in any way representative of the Jewish people. This is because the Zionists' seizing of power over the Holy Land is antithetical to Jewish law, and also because the Zionists do not behave like Jews at all.." http://www.jewsagainstzionism.com/zionism/notjews.cfm

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 19.1.2009 kl. 18:28

35 identicon

Snorri mér finnst þú ekki heiðarlegur

Því þú leyfir enga gagnrýni, en það væri betra að segja við fólk eins og mig að þú (Snorri) birtir ekki athugasemdir sem eru gegn þínum skoðunum, trú eða sem afsannar það sem þú ert að fullyrða. Já ég veit þú birtir ekki þetta hér frekar en annað sem ég er búinn að skrifa, ekki satt?

Þorsteinn Sch Thorsteinsson (IP-tala skráð) 21.1.2009 kl. 01:54

36 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þorsteinn

Ég hef ekki áhyggjur af því þó svo að gyðingar samþykki ekki kristnina því "kristnir" hafa ekki reynst þeim bræður. Það sem ég gagnrýni er fyrst og fremst þegar menn telja sig hafa umboð til að drepa náungann og ógna tilverurétti manna. Arabarnir hafa það innbyggt í sína trú að Islam leyfir og hvetur til manndrápa- það er vilji Allah!

Gyðingar hafa það ekki en þeir hafa "rétt til að verjast" og það hafa kristnir svo sem líka en okkur er ekki uppálagt að beita sverðinu heldur slíðra það eins og Jesús sagði við Pétur.

Auðvitað er það hið besta í stöðunni.

kær kveðja

snorri

Snorri Óskarsson, 22.1.2009 kl. 00:16

37 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þorsteinn

"Nú 90% Ísraelsmanna í dag eru reyndar Ashkenazi Khazar (komnir og ætttaðir frá Khazaríu) og alls ekki af semitiskum bergi brotnir (e. semitic race) eða hvað þá blóðskyldir Gyðingunum GT. sem við þekkjum eða þeim Abraham, Ísak og Jakob en  Arabar eru hins vegar af semitisku bergi brotnir.

Þessu er til að svara að "National Geographic" gerði grein fyrir erfðafræðilegum samanburði, fyrir örfáum árum, á gyðingum og Aröbum. Þar kom fram að þeir eru greinilega mjög skyldir, komnir frá sama ættföður. Svo ekki ber saman upplýsingum þínum eða því sem fram kemur í National Geographic. En hvað veit ég svo sem um þetta?

kær kveðja

Snorri

Snorri Óskarsson, 22.1.2009 kl. 00:36

38 Smámynd: Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson

Snorri, hann Scheving Torsteinsson á það til að sækjast í hatur á veraldavefnum. Hann villist dálítið og getur ekki gert greinarmun röngu og réttu og telur t.d. að gyðingar standi á bak við Al Qaida og allt vont í heiminum.

Þú biður kannski fyrir honum?

Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson, 22.1.2009 kl. 09:52

39 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þorsteinn

Hefur þú sent mér eitthvað annað en það sem hefur birst hér á síðunni?

kveðja

Snorri

Snorri Óskarsson, 22.1.2009 kl. 17:20

40 Smámynd: Snorri Óskarsson

Vilhjálmur!

Ja, eitthvað er að þegar hann telur mig liggja á rökfærðum skilaboðum óbirtum. Ég veit ekki hvar þau er að finna. En ég hef þá reglu hér að birta ekki svör frá nafnlausum aðilum (aðeins dulnefni) og eða rætnu skítkasti engum til gagns.

En þakka þér fyrir þessa athugasemd

Snorri Óskarsson, 22.1.2009 kl. 17:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (5.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 4
  • Sl. viku: 58
  • Frá upphafi: 241112

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 55
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband