Enginn Guð?

Albert blessaður, frægur fyrir hugvit og lögmál. Hann upplifði á sínu fólki hvernig "barnalegar" sögur Biblíunnar og  samansafnið að undarlegum spádómum um gyðingana rættust á hans dögum.

Vitað er að einn spádómurinn fjallaði um að Guð mundi "opna grafir þeirra og flytja þá inní Ísraelsland" (Esek.37: 12) og honum boðið að verða fyrsti forseti þess ríkis; og hann sá ekki hönd Guðs?

Þegar hann  fæddist þá töluðu engir gyðingur saman á hebresku. Seinna á ævi hans var Hebreska málið endurvakið og gert að ríkismáli Ísraels. Þannig rættist spádómur (Sef.3:9) úr "Samansafni barnalegu sagna Biblíunnar! Og hann sá ekki Guð?

Svo lesum við vangaveltur hans um lífið og tilveruna, jafnvel hvað tekur við eftir dauðann og teljum að hann Albert hafi komist að niðurstöðu. Trúlega var afstaða hans ekki honum sjálfum ljós því efasemdir manna segja meira um manninn sjálfan heldur en hvort Guð sé til. Við nefnilega ráðum engu hvort Guð sé til en við ættum að geta séð spor hans og fingraför á tilverunni. Ísraelsríkið er einmitt gleggsta sönnun þess að Guð sé til og hann standi að baki þessum fornu barnalegu  sögum og spádómum sem enn ráða för heimsmálanna. Þó svo að Albert hafi efast og ríkisstjórn Ísland krefjist brottnáms verndarmúranna í Ísrael þá má alveg vera ljóst þeim sem kynna sér málin að öll málefni Mið-Austurlanda fara ekki í neitt friðarferli. Þar mun ófriðarbálið magnast og enda með stórstyrjöld á Ísraelsfjöllum. Það er einmitt skv. "barnalegu goðsögunum" og jafnvel þó að enginn Guð sé til?

Þetta er líkt og með dauðann við sjáum hann ekki en afleiðingar hans, verk og eðli fara ekki framhjá neinum. Af því má ráða að hann hefur mikið afl - ótrúlega mikið afl. En hann er samt ekki alvaldur.

Munurinn á trú og vísindum er sá að vísindin fjalla um nútíð og fortíð en trúin fjallar um nútíð og framtíð. Ef vísindi og trú haldast hönd í hönd þá opna þau augu manna svo blessun færist yfir . Þegar Guði er ýtt út þá kemur trú/lífsmáti yfir sem leiðir af sér dauða, tortímingu, rangan lífsmáta og rangnefnd þekking mun brennimerkja sálir manna með illsku og tjóni.

Þegar "Faðir trúarinnar", Jesús Kristur var í brúðkaupi og vínið þraut þá bauð hann mönnum að setja vatn í kerin og síðan að bergja af. Þá kom í ljós og vatnið var orðið að víni sem vísindalega var algerlega ómögulegt! En það gerðist samt. Höfum við nokkuð efni á að sleppa trúnni á þennan meistara, gyðinginn sem breytti vatni í vín og leyfa gyðingnum Albert Einstein að njóta "vafans" þó klár kall hafi verið- en hann var ekki Guð! 

k.kv.

snorri í betel 


mbl.is Dýr afneitun Einsteins á Guði
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Aron Arnórsson

Hönd mín hefir gjört allt þetta og þannig er það allt til orðið segir Drottinn. Þeir sem ég lít til, eru hinir þjáðu og þeir er hafa sundurmarinn anda og skjálfa fyrir orði mínu.

Jesaja 66:2

Aron Arnórsson, 15.10.2012 kl. 13:51

2 Smámynd: Aron Arnórsson

Þetta er ekki Jes 66:2 einsog það leggur sig... mér fannst bara seinni hlutinn passa við

Aron Arnórsson, 15.10.2012 kl. 22:30

3 Smámynd: Snorri Óskarsson

Nákvæmlega, maðurinn í stærlæti sínu fyrirferst vegna hroka hjartans. Auðmjúkum veitir hann náð en dramblátum stendur hann í gegn. Varðveitum okkur auðmjúk.

Snorri Óskarsson, 15.10.2012 kl. 22:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (20.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 7
  • Sl. viku: 44
  • Frá upphafi: 241228

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband