Ísland í vanda?

Stelpurnar stóðu sig vel í leiknum við Tékkland 4:0

Síminn seldi Mílu, kirkjan í vanda og er að tapa eignum og 10 prestum.

Unglingarnir okkar skynja ekki alvöruna sem er í því að selja af sér nektar- eða kynlífs myndir!

En er ekki skýring til á þessu öllu ?

Fótboltinn útheimtir ástundun og æfingu. Þá blómstrar hann!

Síminn okkar og Mílan eiga að vera þjóðleg, fyrirtæki rekin með hag lans og þjóðar að leiðarljósi. En það er ekki gert. Allt sem seljanlegt er skal selt. Hvað með fiskimiðin eða kvótann? Hvað með jarðirnar eins og Grímsstaði á Fjöllum? Mörg lönd banna eignarhald erlendra aðila á grunnstoðum lands og þjóðar. Peningarnir lifa öðru lífi og okkur hefur ekki tekist að ala upp ,,þjóðlega peningakalla". Þeir selja ömmu sína!

Kirkjan sem hefur talið sig eiga landið og miðin og sem hefur reynt að vera til staðar fyrir fólkið er í mikilli tilvistarkreppu. Hún kallar sig kristna en breytir og boðar samkvæmt Nýaldarhyggjunni. Kynvillan er ekki röng og hjónabandið ekki einungis milli karls og konu, bænin er meira Jesú Youga og Núvitundin einkennir hugleiðsluna. Enginn er vígður prestur nema gefa Agnesi yfirlýsingu um að sá/sú muni vígja samkynhneigt par til hjónabands. Þegar öll þessi mál eru komin í skorður hjá klerkunum þá þarf enga þjóðkirkju, flestir orðnir afhuga hugmyndinni enda komin á kaldan eyðisand og er þar ein að sveima.

Hún þarf að byrja á því að sópa gólfin og taka fram kenninguna sem Jesús Kristur boðar þega hann segir :,,Ég er Vegurinn, Sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til Föðurins nema fyrir mig!"

Unglingarnir okkar hafa verið fræddir í kynfræðslunni um að þeir ráði yfir sínum líkama og geta hafið samfarir þegar ,,þeir eru tilbúnir"! Þeir eru tilbúnir þegar smápeningar bjóðast þeim. Vita menn ekki að fræðsla hefur miðað að því að samkynhneigð og trans upplifun er kennd og varin í Grunnskólunum. Af hverju ætti þá að vara rangt að hafa ,,strípihneigð" eða selja af sér nektarmyndir? Því þeir hafa hvorki fengið fræðslu í kristnu siðferði eða hvaða mat þeir skulu hafa á líkama þeirra nema ef viðkomandi telur sig vera trans eða samkynhneigðan; og hvað með öll kynin sem eru á boðstólunum? Það er gamaldags að telja líkamann ,,Musteri eða Helgidóm"! Kristnin segir hann vera ,,bústað Heilags Anda". Var þessi fræðsla viðhöfð í fermingarundirbúningnum? Hún er ekki í Grunnskólunum en á heimili unglinganna? Hvað með messu eða samkomusókn; mæta margir?

Það er búið að gengisfella ,,þjóðhollustuna", ,,Kristnina" og ,,siðferðisboðskapinn"!

Halda menn virkilega að þessi staða dagsins í dag komi út af engu og sé tilviljun ein? Fari landsliðin í fótbolta ekki í þjálfun eða æfingu fer eins fyrir þeim og því sem ég nefni hér að framanverðu!

Við erum ,,hnýpin þjóð í vanda" miklum vanda.

Úrræðið er að við snúum okkur til Drottins og spyrjum um gömlu göturnar og hver sé hamingjuleiðin svo að við getum farið hana, úr vanda til vegsemdar.

Snorri í Betel


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Jón Þórhallsson

"Síminn okkar og Mílan eiga að vera þjóðleg, fyrirtæki rekin með hag lands og þjóðar að leiðarljósi.

En það er ekki gert. Allt sem seljanlegt er skal selt.

Hvað með fiskimiðin eða kvótann?

Hvað með jarðirnar eins og Grímsstaði á Fjöllum?

Mörg lönd banna eignarhald erlendra aðila

á grunnstoðum lands og þjóðar". 

=Hérna getum við verið sammála.

-----------------------------------------------------------------------

Það er svo sem ekkert að því að kirkjan innleiði

NÚTÍMA-JÓGA að einhverju leiti inn í sínar kirkjur  

= Þ.e. að horfa inn á við og dvelja sem oftast í þögn.

Kynvillu-stefnan kemur frá samtökunum 78

og hinum ýmsu stjórnmálaflokkum á alþingi

en ekki frá Nýaldarsinnum sem að vilja horfa meira til framtíðar.

Ég myndi t.d. segja mig 100% Kristinnar trúar

en á sama tíma tel ég mig vera NÝALDARSINNA.

Nýaldarstefnan getur spannað yfir svo mörg svið 

og allir þeir mála-flokkar sem að geta heyrt þar undir

að þeir geta verið svo misjafnir að gæðum;

allt frá skalanum 0-10 að það er ólíku saman að jafna

og ekki rétt að setja alla undir sama hattinn því tengdu.

------------------------------------------------------------------

Það mætti t.d. segja að það GUÐSPEKIFÉLAG sem að ég er í forsvari fyrir tengist NÝÖLD,

og að það margfalt betur undirbúið til að takast á við framtíðina en allir aðrir kristnir söfnuðir:

www.vetrarbrautin.com

Jón Þórhallsson, 23.10.2021 kl. 18:03

2 Smámynd: Snorri Óskarsson

Jón

Nýöldin hefur eitt sameiginlegt merki og það er ,,regnboginn"! Helstu aðilarnir eru Samtökin 78, Reykjavíkurborg og stjórnmálaflokkar. Hversu margir einstaklingar hafa ekki gengið undir regnbogann til að lýsa stuðningi sínum við Nýöldina. Kirkjan hefur flaggað regnbogafánanum bæði innan vegja sem og utan. Nýöldin býður uppá Yoga iðkun, ekki bæn til Guðs Föður okkar!

k.kv.

Snorri

Snorri Óskarsson, 23.10.2021 kl. 18:18

3 Smámynd: Jón Þórhallsson

Fólk getur vel aðhyllst allskyns NÝALDA-STEFNUR EINS OG JÓGA, GUÐSPEKI OG UFO-FRÆÐI;

en samt verið harðir andstæðingar hjónabanda samkynhneigðra.

Alla vega er það þannig hjá mér.

Þjóðkirkjan er á rangri leið með þvi að flagga gay-pride-fánanum.

-------------------------------------------------------------------------

Fólk getur alveg náð betur til GUÐS með því stunda nútímajóga ef að það er gert á réttan hátt heldur en að hlusta á hávaðasamar ræður presta í kirkjum.

Jón Þórhallsson, 23.10.2021 kl. 18:27

4 Smámynd: Jón Þórhallsson

Dæmi um dæmigert NÝALDARFÓLK 

gæti verið Guðrún og Guðjón Bergmann að að selja NÝALDARBÆKUR í búðinni Betra Líf í Kringlunni.

Þar er um að ræða allt aðra og heilbgriðari menningu

en við sjáum hjá honum páli óskari og gaypride-göngu-vinum hans.

Jón Þórhallsson, 24.10.2021 kl. 18:15

5 Smámynd: Snorri Óskarsson

Þannig er staðan með Nýöldina, sumt er gott en annað er ,,all illt manni"! Þú veist að þetta er eins og skólp, mestur hluti þess er vatn (hollt og gott) en svo eru aukaefnin og gerlarnir þó í litlu mæli sé þá gera þeir vatnið heilnæma ,,all illt manni"!

Snorri Óskarsson, 25.10.2021 kl. 13:21

6 Smámynd: Jón Þórhallsson

Ætli það sé ekki þannig með alla hópa hvort sem að það eru stjórnmálamenn, kristna hópa, lögreglumenn eða lækna;

að það geta alltaf verið einhver "skemmd epli í öllum epla-kössum" / hópum.

Jón Þórhallsson, 25.10.2021 kl. 13:59

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Snorri í Betel

Höfundur

Snorri Óskarsson
Snorri Óskarsson

Er lífeyrisþegi og notar tímann til að fylgjast með Ritningunum rætast! Var safnaðarhirðir Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri 2004 - 2018 og kennari í Brekkusóla frá 2001 til 2013.

Hef stundað kennslu frá 1973 á Vopnafirði. Gagnfræðaskóla Vestmannaeyja frá 1975, Barnaskóla Vestmannaeyja, Iðnskóla- Vélskóla og Stýrimannaskóla Vestmannaeyja. Gerðist kennari við Framhaldsskóla Vestmannaeyja við stofnun hans og fram til 1986. Hóf aftur kennslu við Hamarsskóla Vestmannaeyja uns ég flutti til Akureyrar sumarið 2001.

Hef veitt Hvítasunnukirkjunni Betel í Vestmannaeyjum forstöðu fram til miðs árs 2001 og verið forstöðumaður Hvítasunnukirkjunnar á Akureyri frá 2004 - 2018. 

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Myndaalbúm

Nýjustu myndir

  • IMG_1548
  • friðrik
  • sveitadúkurinn
  • papakrossinn
  • Betesta

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (28.4.): 13
  • Sl. sólarhring: 14
  • Sl. viku: 43
  • Frá upphafi: 241047

Annað

  • Innlit í dag: 13
  • Innlit sl. viku: 42
  • Gestir í dag: 13
  • IP-tölur í dag: 8

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband