27.10.2021 | 14:55
Íslensk ,,kristni" er sértrú!
Þurfum að spyrja þjóðina hvað hún vill
Þessa fyrirsögn er að finna á bls 19 í Mbl 27.10.´21. Þjóðkirkjan er greinilega í miklum vanda og minnir mig helst á orð þjóðkirkjuprestsins sem lést þennan dag 1674, ,,Frá einni plágu til annarrar, í ystu myrkrum þeir hrekjast þar." Hann gaf einnig skýringu á þessum ógöngum með orðunum: ,,Ó, hvað syndin afskapleg er. Allt þetta leiðir hún með sér." (3.Passíusálmur 5.vers.)
Þegar kirkja hefur misst sjónar á tilgangi sínum þá þarf hún að athuga hverjum hún er að þjóna. Hún er til einskis gagns ef hún þarf að spyrja samtímann um stöðu sína. Samtíminn er búinn að velja vanheilög hjónabönd, allskonar kynja fyrirbæri, fóstureyðingar, Yoga, spiritisma og svo nefnda ,,frjálshyggju" guðfræði.
Biblían segir um tilgang kirkjunnar:,,Þér eruð bygging sem hefur að grundvelli postulana og spámennina en Krist Jesú sjálfan að hyrningarsteini." Þarf að spyrja þjóðina um þessi atriði? Mun þjóðin meðtaka eða hafna þeim? Postulinn heldur áfram: ,,Í honum er öll byggingin samantengd og vex svo að hún verður heilagt musteri í Drottni." Ætli þetta verði samþykkt hjá hinum almenna þjóðkirkjumeðlim? Postulinn endar með þessu: ,,Í honum verðið þér líka bústaður handa Guði fyrir anda hans." (Efes. 2:20 - 22)
Ef þjóðkirkjan byggir ekki tilvist sína á orðum Postulans þá hefur hún ekki rétt á að flokkast sem kristin kirkja. Verð það ofaná að þjóðkirkjan breytir grunni sínum og lætur þjóðarvilja ráða hvað hún boðar þá er hún orðin Íslenskur sértrúar söfnuður!
Postulinn varar hina kristnu kirkju að leita samþykkis almennings er hann segir: ,,Þér megið ekki framar hegða yður eins og heiðingjarnir hegða sér. Hugsun þeirra er allslaus, skilningur þeirra blindaður og þeir eru fjarlægir lífi Guðs vegna vanþekkingarinnar sem þeir lifa í og síns harða hjarta. þeir eru tilfinningarlausir og hafa ofurselt sig lostalífi svo að þeir fremja allskonar siðleysi af græðgi."(Efes. 4:17 - 19) Er ekki hér einum og djúpt í árina tekið? Varla hefur farið fram hjá okkur siðrofið í þjóðfélaginu og vandi sem birtist í fréttum, kastljósi og víðar um syndina sem allsstaðar er að bera vondan ávöxt?
Hin kristna kirkja veit að Grundvöllurinn er Jesús kristur. Hvatning postulans er því þessi: ,,Standið aðeins stöðugir í trúnni, grundvallaðir og fastir fyrir og hvikið ekki frá von fagnaðarerindisins sem þér hafið heyrt og prédikað hefur verið fyrir öllu sem skapað er undir himninum og er ég, Páll, orðinn þjónn þess. (Kól.1:23)
Því er áskorun mín til biskupa, prófasta og presta á ríkislaunum að hverfa aftur til Kenningarinnar eins og hana er að finna hjá Jesú og postulum hans. Þið hafið Biblíuna, lesið hana, boðið hana og haldið ykkur fast við hana þar er Orð lífsins
Ef Þjóðkirkjan vill kenna sig við Jesú Krist þá þarf hún að sópa rækilega gólf, jafn vel skúra með lútarsalti"! Þjóðin á ekki að leiða heldur fylgja. Jesús sagði:..og kennið þeim að halda allt það sem ég hef boðið yður!"(Mt.28:20)
Snúi kirkjan sér aftur til Jesú og kenninga hans mun linna þeirri píslargöngu sem hún er komin í!
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 22:09 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
23.10.2021 | 17:17
Ísland í vanda?
Stelpurnar stóðu sig vel í leiknum við Tékkland 4:0
Síminn seldi Mílu, kirkjan í vanda og er að tapa eignum og 10 prestum.
Unglingarnir okkar skynja ekki alvöruna sem er í því að selja af sér nektar- eða kynlífs myndir!
En er ekki skýring til á þessu öllu ?
Fótboltinn útheimtir ástundun og æfingu. Þá blómstrar hann!
Síminn okkar og Mílan eiga að vera þjóðleg, fyrirtæki rekin með hag lans og þjóðar að leiðarljósi. En það er ekki gert. Allt sem seljanlegt er skal selt. Hvað með fiskimiðin eða kvótann? Hvað með jarðirnar eins og Grímsstaði á Fjöllum? Mörg lönd banna eignarhald erlendra aðila á grunnstoðum lands og þjóðar. Peningarnir lifa öðru lífi og okkur hefur ekki tekist að ala upp ,,þjóðlega peningakalla". Þeir selja ömmu sína!
Kirkjan sem hefur talið sig eiga landið og miðin og sem hefur reynt að vera til staðar fyrir fólkið er í mikilli tilvistarkreppu. Hún kallar sig kristna en breytir og boðar samkvæmt Nýaldarhyggjunni. Kynvillan er ekki röng og hjónabandið ekki einungis milli karls og konu, bænin er meira Jesú Youga og Núvitundin einkennir hugleiðsluna. Enginn er vígður prestur nema gefa Agnesi yfirlýsingu um að sá/sú muni vígja samkynhneigt par til hjónabands. Þegar öll þessi mál eru komin í skorður hjá klerkunum þá þarf enga þjóðkirkju, flestir orðnir afhuga hugmyndinni enda komin á kaldan eyðisand og er þar ein að sveima.
Hún þarf að byrja á því að sópa gólfin og taka fram kenninguna sem Jesús Kristur boðar þega hann segir :,,Ég er Vegurinn, Sannleikurinn og lífið. Enginn kemur til Föðurins nema fyrir mig!"
Unglingarnir okkar hafa verið fræddir í kynfræðslunni um að þeir ráði yfir sínum líkama og geta hafið samfarir þegar ,,þeir eru tilbúnir"! Þeir eru tilbúnir þegar smápeningar bjóðast þeim. Vita menn ekki að fræðsla hefur miðað að því að samkynhneigð og trans upplifun er kennd og varin í Grunnskólunum. Af hverju ætti þá að vara rangt að hafa ,,strípihneigð" eða selja af sér nektarmyndir? Því þeir hafa hvorki fengið fræðslu í kristnu siðferði eða hvaða mat þeir skulu hafa á líkama þeirra nema ef viðkomandi telur sig vera trans eða samkynhneigðan; og hvað með öll kynin sem eru á boðstólunum? Það er gamaldags að telja líkamann ,,Musteri eða Helgidóm"! Kristnin segir hann vera ,,bústað Heilags Anda". Var þessi fræðsla viðhöfð í fermingarundirbúningnum? Hún er ekki í Grunnskólunum en á heimili unglinganna? Hvað með messu eða samkomusókn; mæta margir?
Það er búið að gengisfella ,,þjóðhollustuna", ,,Kristnina" og ,,siðferðisboðskapinn"!
Halda menn virkilega að þessi staða dagsins í dag komi út af engu og sé tilviljun ein? Fari landsliðin í fótbolta ekki í þjálfun eða æfingu fer eins fyrir þeim og því sem ég nefni hér að framanverðu!
Við erum ,,hnýpin þjóð í vanda" miklum vanda.
Úrræðið er að við snúum okkur til Drottins og spyrjum um gömlu göturnar og hver sé hamingjuleiðin svo að við getum farið hana, úr vanda til vegsemdar.
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 17:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
20.10.2021 | 14:14
jafnir fyrir lögum?
,,Í dómnum kemur fram að hinni svokallaðri þreföldunarreglu hafi verið beitt við ákvörðun sektarfjárhæðarinnar." (DV.is)
Fróðlegt er að sjá að ,,Þreföldunarregla" er til sem ákvarðar sektargreiðslur til Ríkissjóðs.
Ég stóð frammi fyrir því að gera sanngjarna kröfu á Akureyrarbæ þegar mér var sagt upp að ósekju og fór fram á fullar bætur skv. útreikningi Tryggingafræðings. Krafa mín var að af mér hafði Akureyrarbær rúmlega 15. milljónir og þar af tapaðar lífeyrisgreiðslur uppá 3,5 milljónir.
Hæstiréttur dæmdi mér ,,samkvæmt dómvenju" bætur uppá 3,5 milljónir. Tapaðar launagreiðslur hurfu.
Svo gerir ríkið kröfur á Eirík og þá er til ,,þreföldunarregla"! Hefði ég notið hennar hefði Hæstiréttur átt að dæma mér 45 milljónir í skaðabætur frá Akureyrarbæ!
En það eru ekki allir jafnir fyrir lögum. Sumir, eins og ríkið, er jafnara fyrir lögum.
Þarf ekki að kenna dómurum grundvöllinn að réttarkerfinu á ný?
Varla vilja menn hafa það svo að ríkið og sveitarfélög geti hagað sér svínslega og þurfi engar bætur að borga því ,,samkvæmt dómvenju" á einstaklingurinn lítinn rétt í dómskerfinu?
Snorri í Betel
![]() |
Eiríkur hjá Omega dæmdur fyrir tugmilljóna skattabrot |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.10.2021 | 16:41
Vísindi og væntingar!
Ég sá þessar tölur frá Ísrael. Allur þessi fjöldi bólusettur með einni, tveim eða þrem sprautum og samt er landið lokað. Smit ekki endilega hætt og dauðföll vegna Covid-19 gera rusk.
Við höfðum fyrst trú á því að ,,vísindin" hefðu svarið og ,,vissu" um lausnina. En í dag sjá menn að við fórum svolítið fram úr okkur af því að allt bóluefni virðist ekki standast væntingar sem við gerðum til þess. Ástæðan er sú að við höfðum ofurtrú á bóluefninu, ofurtrú á því sem ,,vísindin segja"!
Þessi tjáning ,,vísindin segja" hefur oft ekki alveg hljómað í takt við það sem ,,þau" segja heldur það sem vísindamaðurinn álítur eða trúir.
Allir virðast eiga það sammerkt að við trúum. Við trúum á Guð eða engan guð, trúum vísindunum eða ekki og trúum best okkur sjálfum. Trúin virðist því vera rökræða hugans, samsetning margra þátta sem styðja skoðun okkar.
Tölurnar frá Ísrael hafa svipuð áhrif á þá eins og reynsla okkar af bólusetningunum að við vitum ekki alveg til hvers þetta mun leiða. ,,Vísindin" þurfa því að bíða með fullyrðingar og segja sem minnst í Covid faraldrinum þangað til að óyggjandi niðurstaða fæst af tilrauninni að bólusetja heimsbyggðina.
Mér finnst þessi tilraun minna mig á skrásetninguna sem ,,gerð var þá er Kyreníus var landstjóri á Sýrlandi" eins og Guðspjallið segir.
En fylgifiskur þessarar bólusetningarherferðar er að birtast í nýrri kröfu. Þeirri að allir fái ,,grænan passa"!
Samkvæmt þeirri kröfu fá menn fyrst öruggan aðgang í verslanir, hótel, vinnu og veitingahús. Alls eru nefnd 9 atriði á meðfylgjandi lista sem ná yfir tilgang græna passans. En þetta minnir mig á fornan spádóm yfir lokadaga okkar menningar sem segir að :,,enginn geti keypt eða selt nema hann taki á sig merki dýrsins"! (Op. 13:16)
Þegar svona atburðir gerast í ljósi þess að við höfum treyst því sem ,,vísindin segja" en sitjum svo uppi með veruleika sem ,,trúin spáði um" löngu fyrir okkar daga erum við þá ekki komin að miklum tímamótum?
Er ekki ástæða fyrir okkur að staldra við og skima yfir farinn veg og spyrja af hverju erum við komin hingað? Erum við betur sett með ,,græna passann"? Hætta menn að smita eða veikjast þó svo að þeir fái ,,merki" um það?
Trúin, Biblían, varar okkur við að taka á okkur merki sem sett verður á enni okkar eða hægri hönd og kallað er ,,Merki Dýrsins". Það má svo sem segja að merki í símann sé hvorki á hönd né enni og þess vegna í lagi. En trúlega erum við hér að sjá síðasta skrefið unz mönnum verður boðið að fá á sig merki sem tengir okkur við nýja menningu, menningu Regnbogans og frjálslyndis; Menningu sem fjarlægist allt það sem kallast Guð eða Helgur dómur og ætlar að fara sína eigin leið. Leið sem endar í vegleysu. Hún hefur áður verið reynd í uppreisn og andstöðu við Guð almáttugan. Þá reyndu menn að byggja upp sameiningartákn, Babelturninn. Allt varð það til sundrungar og tjóns. Eins verður með ,,Merkið" sem Evrópa er að koma með til okkar sem kallast ,,græni passinn"!
Guð hefur sagt okkur þetta fyrir og nú er tíminn til að taka eftir, vakna og snúa okkur til Guðs spyrja um gömlu götuna og hver sé hamingjuleiðin, svo við getum farið hana.
Það hlýtur að vera til Guð fyrst atburðir samtímans eru að gerast eins og Guð hefur sagt fyrir um!
Munum eftir hver Jesús Kristur er! Við frelsumst og björgumst fyrir trú á hann. Farðu með honum í gegnum Covit!!
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 16:50 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
12.10.2021 | 15:12
Skerðingar - andlit spillingar?
Við höfum tekið eftir þessum ótrúlega vexti lífeyrissjóða undanfarin ár. Eitt sinn kom frétt um að tekjur þeirra námu nánast um einum milljarði á dag núna 2,8 milljarða á dag eða þreföldun tekna!
Hvað höfum við að gera með 6410 milljarða í eigu almennings sem ekki má nýta til að bæta hag lífeyrisþega? Þarf ekki að upphugsa þessa stöðu að nýju?
Ég var opinber starfsmaður frá því 1973. Lét mér lynda kjör kennarans og sá að ég gat bjargað fjárhagnum með því að vinna á sumrum til að framfleyta fjölskyldunni. Margir skólastjórar bættu kennaralaunin með því að ráða okkur í aukasporslur, sjá um bókasafn, taka að okkur viðvik og jafnvel sérkennslu til aukatekna. Allt var samþykkt til hagsbóta.
Svo komu kjarasamningarnir sem veittu ekki mikla krónutöluhækkun en við fengum ,,félagsmálapakka" og aukin lífeyrisréttindi að starfstíma loknum. Framtíðin átti að verða björt en...! Svo komu aðrir kjarsamningar þar sem KÍ seldi eitt og annað til að fjölga krónunum á kostnað réttindanna sem kæmu upp í hendur okkar seinna! Að starfstíma loknum voru engir félagsmálapakkar eftir og engar hagsbætur sem voru samykktar til að lifa við lág kennaralaun og fá svo góðan lífeyrissjóð sem hvað? Bara vex og vex án þess að bæta okkar hag!
Nú sitjum við með lífeyriseignina bundna. Ráðherra og ríkisstjórn eru með tök valdsins á auðnum og heimta að ekki verði um of mikið fjárstreymi í hendur lífeyrisþega svo bátnum verði ekki ruggað. Þetta er í mínum augum ,,eignaupptaka"!
Við sem eigum lífeyrissjóðina ættum ekki að þurfa að líða skort eða ná ekki saman endum þegar eign okkar, lífeyrissjóðurinn, stendur svona vel. Það hlýtur að vera krafa okkar í þessu árferði að næsta ríkisstjórn virði eignarréttinn og láti af þessum óheilbrigðu skerðingum á greiðslu lífeyris. Það hlýtur að vera hagur ríkissjóðs að meira renni í buddu okkar því þá er hægt að greiða hærri skatta til ríkis og bæjar og auka neyslu sem eykur hagvöxt.
Auknar lífeyrisgreiðslur munu aðeins bæta hag og ástand þúsunda sem hafa samviskusamlega greitt í sjóðina skv. lögum og ættu því að fá virðingu löggjafans að njóta ávaxtarins sem lögboðinn sparnaður hefur skapað í landinu.
Skerðingarnar sem ríkisstjórn og Alþingi hafa samþykkt er angi spillingar því það kemur aðeins niður á sumum en alls ekki öllum. Þannig veldur spillingin að tveir hópar búa í landinu og standa ekki jafnfætis annar verður fyrir skerðingum en hinn lifir í vellystingum. Komu vellystingarnar bara vegna þess að hann komst á þing, gat sett lög um laun sín og girðingar gegn skerðingum þeirra?
Snorri í Betel
![]() |
Lífeyrissjóðirnir bólgna út sem aldrei fyrr |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 15:54 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.10.2021 | 14:19
spilling (frh. nr 3)
Mannréttindin eru tekin við nema þau sem segja þér satt! Við spyrjum ekki um sannleikann heldur bara hvað ,,vísindin segja"! Bóluefnin gegn Covid eiga að vera í lagi af því að ,,vísindin segja" þau góð!
Við höfum alist upp í umhverfi þar sem sumt var talið rétt og annað rangt. Hegðun okkar og gerðir hafa verið flokkaðar í þá flokka. Lögreglan er með það vald að skipta sér af þegar við gerum eitthvað rangt, keyrum of hratt, hnuplum í búðum og annað verra en þetta. Okkur finnst rétt að góð hegðun fái að njóta sín en refsing komi yfir þann sem sýnir slæma hegðun.
Starfsmenn kaþólsku kirkjunnar sem hafa notað aðstöðu sína undanfarna áratugi og svalað kynhvöt sinni á börnum er ljóður á kirkjustarfinu. Ennþá virðast allir sammála um að svona hegðun er röng og enganvegin ásættanleg.
Við höfðum samskonar mælikvarða áður fyrr á samlíf karla eingöngu og kvenna eingöngu svo að samkynhneigðin þótti enganvegin ásættanleg hegðun. Með samstilltu átaki er búið að kollvarpa því áliti að þetta sé rangur lífsmáti og nú þarf að gera bragarbót á og gera Reykjavík að ,,regnbogaborg" þar sem kynvillan er sett í ljóma góðrar og jákvæðrar hegðunar. Munu kaþólikkarnir eygja bjarta framtíð með breyttu viðhorfi þjóðfélaga til kynlífs við unga æsku? Hverju er ekki hægt að breyta?
Viðhorfsbreyting getur nefnilega orðið þannig að það sem áður var synd og ótilhlýðilegt verður sjálfsagt og jákvætt af því að við urðum ,,víðsýn" og ,,umburðarlynd"! En opnum við þá á spillt hugarfar? Hverju er ekki hægt að breyta?
Í útvarpsviðtali við Ásmund Stefánsson þann 06.10.'21 var hann að lýsa bók sinni um Lúter. Hann tengdi saman Lúter og orðræðu hans fyrir 500 árum um gyðingana. Seinna var gyðingahatur og ofsóknir á hendur þeim rakið til þeirrar orðræðu. Vegna hennar misstu þeir mannréttindin og voru taldir ,,þjóðfélagsmein" í Evrópu. Ásmundur, fyrrum ASÍ forseti, klikkti út með því að tengja Lútersku kirkjuna sem stefnulausa af því að almenningur tók við breytingum og viðurkenndi ný viðhorf sem kirkjan hafði frá dögum Lúters flokkað sem synd og óásættanlega hegðun en í dag er farin að gefa saman tvo karlmenn í ,,hjónaband" og tvær konur í ,,hjónaband"! Og Ásmundur sagði annað hvort hafa menn mannréttindi eða ekki!
Ég taldi mig hafa stjórnarskrár varin ,,mannréttindi" til trúar- og tjáningarfrelsis samkvæmt íslenskru Stjórnarskránni og benti lögfærðingi Akureyrarbæjar og fulltrúm ráðandi afla á þessa augljósu staðreynd. Hún skipti ekki meira máli en svo að mannréttindi mín voru fyrir borð borin af því að þau lutu ekki að hinum nýja skilningi þeirra á því sem kallað er:,,réttur og frelsandi lífsmáti"! Hvernig var ekki hægt að fara með mín mannréttindi?
En þetta viðtal við Ásmund rifjaði upp fyrir mér orð Jeremía spámanns sem sá fyrir hrun gyðingaríkisins vegna spillingarinnar sem hafði hreiðrað um sig sem ,,breytt og frjálslynd viðhorf" á þeim tíma. Jeremía segir: ,, Ég hugsaði:,,Það eru aðeins hinir lítilmótlegu sem breyta heimskulega, af því að þeir þekkja ekki veg Drottins, réttindi Guðs síns. Ég ætla að fara til stórmennanna og tala við þá , því að þeir þekkja veg Drottins, réttindi Guðs síns. En einmitt þeir höfðu allir saman sundur brotið okið og slitið af sér böndin." (Jer.5:4-5) Er þetta ekki sama lýsing og Ásmundur fjallar um í sinni bók og bendir á að mannréttindin eru líka að brjótast undan reglum og slíta af sér bönd og virða ekki rétt Guðs til að hafa áhrif á mína og þína hegðun?
Jeremía bendir á ,,aukaverkanirnar" á óhlýðninni. Í landinu risu upp hættur sem hann lýsir svo:,, Fyrir því drepur þá ljón í skóginum, fyrir því eyðir þeim úlfurinn, sem hefst við á heiðunum. Pardusdýrið situr um borgir þeirra svo að hver sá er út úr þeim fer verður rifinn sundur, því að afbrot þeirra eru mörg, fráharfssyndir þeirra miklar."(Jer.5:6 ) Með öðrum orðum, varnirnar hurfu í samfélaginu og náttúran fór að vinna gegn þeim sem afleiðing ,,fráhvarfssyndanna"! Gæti slíkt gerst í dag þegar frelsið okkar ætti að vera fegurðin ein, eins og skáldið sagði;
,,Frelsið er sem svana söngur,
sólarbjörtu heiði frá,
eða hvíld á blómstur bökkum,
blárra vatna spegli hjá!"
Á.E.
,,Pardusdýrin í borgunum" réðust á mannréttindin sem ég hafði stjórnarskrár varin!!!
Hvað eru úlfarnir og ljónin í okkar náttúru? Hafi gyðingarnir fengið þessa lexíu á dögum Jeremía ættum við að halda að við sleppum?
Siðferðið okkar er himneskur fjársjóður gefinn til varðveislu en ekki niðurbrots!
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt 24.12.2021 kl. 10:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
-
trukona
-
hvala
-
zeriaph
-
hognihilm64
-
kiddikef
-
sigurjonn
-
baddinn
-
gudni-is
-
baenamaer
-
birkire
-
valgerdurhalldorsdottir
-
pkristbjornsson
-
ruth777
-
jullibrjans
-
goodster
-
sirrycoach
-
daystar
-
ellasprella
-
flower
-
valdis-82
-
valdivest
-
thormar
-
sigvardur
-
levi
-
malacai
-
hafsteinnvidar
-
davidorn
-
heringi
-
helgigunnars
-
icekeiko
-
kjartanvido
-
gretaro
-
stingi
-
jenni-1001
-
kafteinninn
-
eyjann
-
svala-svala
-
predikarinn
-
exilim
-
sax
-
truryni
-
morgunstjarna
-
coke
-
siggith
-
kristleifur
-
antonia
-
vor
-
valur-arnarson
-
deepjazz
-
bjarkitryggva
-
harhar33
-
thjodarskutan
-
balduro
-
gudspekifelagid
-
study
-
h2o
-
frettaauki
-
nyja-testamentid
-
nkosi
-
gudnim
-
genesis
-
ea
-
gullilitli
- gladius
-
bryndiseva
-
dunni
-
arnihjortur
-
arncarol
-
gun
-
gummih
-
gattin
-
johann
-
olijoe
-
vilhjalmurarnason
-
nytthugarfar
-
postdoc
-
eyglohjaltalin
-
hebron
-
muggi69
-
krist
-
trumal
-
pall
-
talrasin
-
angel77
-
gessi
-
ghordur
-
baldher
-
ragnarbjarkarson
-
adalbjornleifsson
-
bassinn
-
skari
-
kje
-
benediktae
-
nonnibiz
-
bjargvaetturmanna
-
doralara
-
nafar
-
contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (7.10.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 14
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 12
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar