Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
27.5.2020 | 10:20
Ástin?
Í mínu ungdæmi gerðu Bítlarnir lagið ,,All you need ís love" heimsfrægt. Þeir breyttu viðhorfi til ástarinnar til meira frjálsræðis og ungafólkið fór að hegða sér eins og ástin væri án ábyrgðar. Auðvita hafði frelsið afleiðingar og ávöxt og mun meira varð um börn fædd utan hjónabandsins eða óskilgetin. En lagið var enn vinsælt og margt benti til þess að ,,All you need ís love" væri heimspeki sem gæti leyst öll heimsins vandamál.
Á íslensku höfum við allavega tvö orð um ástina þ.e. Kærleikur og ást. Svo tengjum við saman orð og getum fengið út föður-kærleika, móðurást, systkinakærleik og föðurlands ást.
Í grísku eru til 4 orð yfir það sem íslenskan hefur 2 og enskan 1! Breski rithöfundurinn C.S.Lewis benti á mjög merkilegt orðavalið í grískunni um hugtakið ást ,,love". Fyrst skal nefna ,,Agape" sem er ævinlega tengt við kærleika. Kristnin segir okkur að Guð sé kærleikur. Trúin tengir kærleikann við gefandi eða fórnandi kærleika. Gefa án þess að fá eitthvað í staðinn, frumkvæðið er viðhorf Guðs til þín og mín.
Annað orðið í grísku máli um ást er ,,storge"! Notað í tengslum við föðurást eða foreldraást gagnvart börnum og afkvæmum okkar. Sagt var um Jóhannes skírara að hlutverk hans væri að :,,snúa hjörtum feðra til barna" eða endurvekja ,,storge" föðurkærleikann í samfélagi gyðinga á fyrstu öldum okkar tímatals.
Þriðja orðið í grískunni er:,,filiae"! Gjarnan þýtt sem bróður kærleikur, eða vinátta milli félaga og vina. Þaðan er orðið ,,Fíladelfía" komið og bæði notað yfir borgir og söfnuði þar sem bræðra þelið átti að ríkja og menn yrðu vörn og skjól hver fyrir annan. Þessi vináttu hugsun er mjög mikilvæg fyrir náungann, félagana og víðar.
Fjórða orðið er ,,Eros" sem gjarnan er notað yfir kynferðislega ást eða aðdóun. Þetta orð er gjarnan tengt við Bítlalagið fræga. Þess vegna varð enska orðið ,,love" oftast tengt við ,,frjálsar ástir"! Við tökum orðin í notkun eftir hentugleika hverju sinni. Meinbugirnir koma í ljós þegar við heyrum fullorðna ,,njóta ásta" með börnum. Þá er ástin komin á skjön við skilning flestra á friðhelgi barnsins.
Ég ætla að enda þennan pistil á þessari tengingu að Guð sem er kærleikur (Agape,Storge,Filíae og Eros) hefur skapað tilveruna í þessum tilgangi að hún megi birta kærleika Guðs. Aðeins ein stofnun í okkar heimi, hjónabandið, speglar þessi 4 grísku orð. Þar er hin fórnandi ást(Agape) að finna, annars gengur hjónabandið ekki. Í hjónabandinu verða börnin til og þeim á að mæta föðurkærleikur og móðurást (storge). Gott hjónaband tengir hjón og afkomendur þeirra vina böndum (Filiae) og svo höfum við kynlífið, ljúft og skapandi (Eros) svo áframhald verði í sköpuninni. Svona hefur Guð útbúið tilveruna. Þess vegna á ástar söngur Bítlanna vel við ,,All you need ís love" ef þú tekur gríska merkingu (Agape, Storge, Filiae,Eros) inní textann.
Hjónabandið er því gjöf Guðs til okkar mannanna og það er besta ,,ástar samband" sem við getum speglað kærleika Guðs í okkar lífi.
Guð elskar þig (Agape) enda gaf hann Son sinn eingetinn til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur eignist eilíft líf!
Snorri í Betel
25.5.2020 | 14:22
Sólrún með boðskap!
Fjársjóður hugans er eftirsóknarverður auður. Þegar ég las um hugsun þessarar stúlku minntist ég orðanna: ,,Hugrekki mannsins heldur honum uppi í sjúkdómi hans, en dapurt geð, hver fær borið það"! (Orðskv.18:14)
Mann órar ekki fyrir því hve gömul speki hefur mikið að segja í nútímanum. Við spyrjum gjarnan hvers vegna svona slys gerast? Svörin verða bara handahófskennd. Það mikilvægasta er hvað býr í huga þess sem lendir í slysi og þarf að vinna að lausninni. Hugarfarið geymir fjársjóðinn að miklum bata. Sólrún er ljóslifandi dæmi þess og hennar hugsun hefur mikilvæg skilaboð til okkar.
Ég vísa til Orðskviða Salómons sem var uppi um 900 f.kr. Hann var greinilega opinn fyrir því hvernig maðurinn bregst við þrautum lífsins. Allir samtímamenn hans eru fyrir löngu horfnir og meira að segja um 40 kynslóð að auki! Það sem ég vísa til er samt hugsun og vers sem getur reynst okkur veganesti og vonandi verður svo.
Hin hliðin á þessu Orði ritningarinnar er svo viðbrögð samtímans. Þar kennir margra grasa eins og þeirra að við skulum halda þessum boðskap frá börnum. Ekki fræða ungmennin í skóla eða draga allt í efa standi það í Biblíunni.
Sólrún skilar mikilvægum boðskap til landsmanna hvað hugarfar hefur mikil og kröftug áhrif. Megi þetta verða til áframhaldandi græðslu og bjartsýni fyrir okkar land!
Biblíuorðið er auðvitað þjóðargersemi gyðingsins sem mannkyn fær að njóta. Spurningin er auðvitað, hvort við höfum vilja til þess?
Allir sjá að veröldin er viðsjárverð, öryggið hverfult og réttlætið eins og norðangarrinn. Bara sumir fá að vera í skjóli. Gyðingurinn hefur nefnilega ekki alltaf fengið réttláta meðferð í sögu sinni og fáar þjóðir með jafn grátlegar reynslur. En veganestið sem þeir fengu eins og Orðskviðir Salómons, hafa mótað hugsun þessa fólks til góðs og heilla af því að Guð gaf þeim gott veganesti! Sólrúnu nýtist það og ég bið fyrir því að þeim báðum vegni áframhaldandi vel og þau fái fullan bata, í Jesú nafni!
En gleymum því ekki að veganesti gyðingsins er Orð Guðs og skjólið er Guð almáttugur. Orðið segir: ,,Sæll er sá er situr í skjóli hins hæsta, sá er gistir í skugga hins almáttka, sá er segir : ,,Hæli mitt og háborg, Guð minn, er ég trúi á"!(Sálm. 91:1-2)
Snorri í Betel
Sólrún staðráðin í að halda áfram | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 14:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
22.5.2020 | 10:22
Hvað varð um smokkinn?
Eru þá menn komnir að þeirri niðurstöðu að smokkurinn dugir ekki lengur? Við höfum fylgst með herferðum þar sem ungafólkinu var ráðlagt að nota bara smokkinn og þá væri öryggið komið á oddinn! Lítið var gert úr skírlífi og enginn gaumur gefinn að reynast maka sínum trúr. Dygðir og trúmennska komust ekki á blað!
Vísindin lögðu til smokkinn!
Þurfti heimsfaraldur til að opna augu manna fyrir því að öruggasta leiðin til farsæls lífs og besta sjúkdómavörnin væri hreinlæti, trúfesti og virðing gagnvart makanum.
Það er meira en í lagi að fara í upprifjun á gömlu kristnu gildunum sem eru hætt að heyrast!
Guð skapaði nefnilega aðeins eina konu á mann! Adam og Eva. Þau urðu ,,reglubundnir bólfélagar" eins og hjónaböndin eiga ennþá að vera!
Snorri í Betel
Fólk haldi sig við sína reglubundnu bólfélaga | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
7.5.2020 | 15:40
Viðvörun SÞ - hungursneyð yfirvofandi!
https://www.bbc.com/news/live/world-52568948
Ofangreind viðvörun Sameinuðuþjóðanna birtist í dag á BBC vegna áhrifa Covid-19. Áhyggjurnar snúast um uppskerubrest og yfirvofandi hungursneyð. Þangað átti málið ekki að fara, var það?
Meðan okkar samtími er upptekinn af lokunum, útbreiðslu faraldurs og tilraunum stjórnvalda til að bjarga efnahag Vesturlanda þá heldur hjól tilverunnar áfram að snúast, án þess að mikill gaumur sé gefinn að því. Hvað láta fjölmiðlar kjurrt liggja sem betur væri að veita athygli? Við vitum að upplýsingagjöfinni er stýrt og fréttamenn birta ekki allt,auðvitað ekki! Of mikil vitneskja getur skapað ótta, en of lítil skapar örugglega hættuástand.
Ég hef undanfarna daga verið að bera saman samtímann annars vegar og Exodus, hins vegar, burtför Ísraelsmanna úr Egyptalandi. Atburðum í stjórnmálum og samskiptum þjóðanna á sama tíma, eða undir lok Bronsaldar. Bronsöld var glæsilegur tími í verslun, viðskiptum og framþróun hjá þjóðunum fyrir botni Miðjarðarhafs. Vitað er að á Kýpur voru miklar koparnámur sem gerðu Eyjuna ríka. Allt frá Ítalíu til Grikklands, til ríkis Hittíta (Anatólía) til Sýrlands og alla leið til Egyptalands sigldu menn með vörur, mat og hráefni en einnig Brons. Herir þessara landa urðu mikið öflugri vegna vopna framleiddum úr bronsi (90% kopar 10% tin). Eyrinn var þá jafn mikilvægur í viðskiptum og Olían er í okkar hagkerfi. Svo gerist eitthvað, ekki bara eitt heldur margt sem orsakaði samspil, keðjuverkun, svo að þessi ríki hrundu og sum hurfu eins og veldi Hittíta. Borgin Trója var sú borg sem lá vestast í veldi Hittíta og verður fyrir árás sem sumir sagnfræðingar segja að hafi verið fyrsta heimsstyrjöld mannkynssögunnar. Margar þjóðir tóku þátt í þeirri baráttu að leggja borgina að velli. Svo áhrifamikil var styrjöldin að nafni minn Sturluson getur hennar í upphafi Heimskringlu. Þangað rekur hann upphaf Ásatrúar víkinga. Í ættartölu minni frá Oddi Helgasyni greinir hann frá nöfnum sem við þekkjum lítið eins og Dómaldi Vísburson, Tyrkjakonungur.sem var uppi 13 - 15 öldum seinna eða 20 e.kr.
Í þessu ófriðarástandi við lok Bronsaldar hrundi verslun og viðskipti þessara landa. Reynt var að efna til friðar með mægðum við konungsættir óvinaríkja eins og greint er frá í hýroglýfum Egyptalands frá þessum tíma. Þetta kemur einnig fram í Biblíunni þegar Salómon konungur giftist egypskri prinsessu og fær koparnámurnar í Timna að gjöf, allt til að tryggja frið. Faraó Egypta, Tutmosis 2. (1500 - 1450 f.kr) var búinn að berja niður allar varnir Kanverskra borga. Sennilega var Hatsepsut prinsessa dóttir hans og fóstra Móse en Móse leiddi Ísrael út úr þrælahúsinu, Egyptalandi. Áður en til þess kom flúði hann frá Egyptalandi og var 40 ár í útlegð í Midían en nafnið þýðir kopargerða menn!
Við endalok Bronsaldar varð uppskerubrestur og náttúruhamfarir (jarðskjálftar) sem beygðu heimsveldin og loftslagsbreytingar (þurrkur) hafði æ verri áhrif á þessi samfélög svo að þau jafnvel ,,gufuðu upp" og þeirra er ekki getið í mannkynssögunni eftir 1100 f.kr. Ein kenning er sú að Ísland hafi komið duglega við sögu. Hekla hafi gosið miklu gosi (18 rúmkílómetrum) og kældi fyrir bragðið veðurhjúp Miðjarðarhafsins með öskunni sem dreifðist þangað. Fyrir bragðið stöðvaðist verslun með korn. Siglingar lögðustst af og ríkin lentu jafnvel sjálf í innanlandsátökum auk árása frá Sjófólkinu sem svo var kallað. Trúlega voru það landlausir ættbálkar sem voru að leita sér að nýju föðurlandi. Í Amos spádómsbók er þetta sagt:,,Hef ég ekki flutt Ísrael af Egyptalandi og Filista frá Kaftor og Sýrlendinga frá Kýr"? (Amos 9:7) Má vera að þeir séu forverar strandbúa á Gaza t.d.og jafnvel forfeður víkinganna á leiðinni norður til Skandinavíu? Ýmis nöfn eru á þessu ,,Sjófólki" sem skráð eru á hyróglýfur Egyptalands sem benda til að þetta voru Sardiníu menn og fólk frá Sikiley svo eitthvað sé nefnt.
En á meðan þessi upplausn er fyrir botni Miðjarðarhafs og voldug ríki hrynja eins og Hittítar, mætir Móse með sinn lýð, úr 40 ára eyðimerkurgöngu og til lands sem mátti sín lítils gegn Guði almáttugum og þurfti að láta í minnipokann fyrir Ísrael, Guðs lýð! Til eru leirtöflur Kanverja frá þessum tíma þar sem Faraó var beðinn um liðsinni gegn Hebreum. Þessir atburðir voru þá eftir allt ,,fæðingahríðir" nýs tíma. Ný þjóð var að setjast að. Bronsöld að líða undir lok og nýtt tímabil að hefjast.
En enginn gat hjálpað Kanverjum þegar upplausn ríkti í löndunum frá Ítalíu, Grikklandi, veldi Hittíta, Sýrlandi og allt til Egyptalands. Löndin voru mörg hver að hruni komin. Margir fornleifa uppgreftir eins og í Lakíz eða Úgarit sem og Hattusa(höfuðborg Hittíta) benda eindregið til þessarar framangreindu niðurstöðu.
Sumir segja að á þessum tíma, við lok Bronsaldar hafi verið hið fullkomna ,,Gerningaveður"! Nútíminn er nokkuð líkur þessum tíma. Gætum við verið að sigla inní svipaðar aðstæður? Stríð er í Sýrlandi, ókyrrð í Tyrklandi, flóttamenn um alla Evrópu, álfan lokuð vegna Covid-19 efnahagur þjóðanna kominn að fótum fram og ótti við hamfarahlýnun. Aðeins vantar tvennt til að fullkomna myndina 1. Náttúruhamfarir (Mikið eldgos á Íslandi og jarðskjálfa í Evrópu) 2.uppskerubrest (yfirvofandi hungursneyð, eins og SÞ.er að vara við).
Þér þykir þetta blogg eflaust mjög neikvætt og fullt af svartsýni, en ég get ekki varist þeirri hugsun að þessir atburðir eiga heilmikið sammerkt og hljóma undarlega líkt og lýsing Jesú Krists er á tímanum rétt áður en hann kemur aftur(Mátt. 24:8). Biblían kallar þann tíma ,,Fæðingarhríðir"! Það er nýtt skipulag, nýr heimur, að fæðast, nýjar kringumstæður jafnvel nýtt og endurnýjað þjóðskipulag.
Meðan við öll erum hugsi og upptekin af sjúkdómi og viljum ekki smitast geta atburðir gerst í Ísrael sem enginn getur spornað við, því ,,Guðs áætlun" mun ná fram að ganga þrátt fyrir okkar skoðanir eða álit. Endurreisn Musterisins gæti hafist án nokkurar viðspyrnu. Upplausn landa, skipulags og samvinna þjóða mun renna sitt skeið og í upplausninni virka hvorki NATO eða EB. Ég er engan veginn að tala um heimsendi þó að um sé að ræða ákveðna tegund af honum. Nýtt tímabil mannkynssögunnar er við sjónarrönd!
Þrengingarnar koma og allt mun verða augljóst. En hvernig fá þessir atburðir að snerta mig og þig? Jesús gaf lærisveinum sínum eitt ráð: ,,Vakið því þér vitið eigi hvaða dag Drottinn yðar kemur!"
Endurnýjaðu trú þína á Jesú því að hann lofar okkur því að vera með okkur alla daga allt til enda veraldar og taka okkur til sín, svo að við séum og þar sem hann er"
Drottinn blessi þig og varðveiti þig, Drottinn láti Ásjónu sína lýsa yfir þig og sé þér náðugur. Drottinn upplyfti sínu augliti yfir þig og gefi þér frið, AMEN!
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt 10.5.2020 kl. 11:55 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.5.2020 | 09:14
Að trúa eða hafna?
Viðbrögð okkar við þessari frétt verða annað hvort að við trúum eða höfnum.
Í því ljósi að Trump segir þetta munu margir andstæðingar hans hafna þessari vitneskju af því að hún kemur frá Trump. Hinir trúa þessari fullyrðingu þó að hún komi frá Trump. Hann hefur nefnilega aðgang að upplýsingum sem við höfum ekki. En ég minnist þess að hafa séð þetta í fjölmiðlum í upphafi faraldursins að efnavopnaverksmiðja Kínverja er einmitt í Wuhan og þeir hafi misst tökin á ,,afkvæminu".
En hverju ættum við að trúa? Segja Kínverjar frekar satt? Munum gamla kviðlinginn um Jón Hrak. Hann ,,hugði ei sannleik hóti betri sagðar af sér eða Sankti Pétri"!
Ég segi eins og Beda prestur sagði og Ari Fróði vísaði til að :,,hafa skal það sem sannara reynist"!
Leitum sannleikans
snorri í betel
Segir hægt að sanna að veiran komi af rannsóknarstofu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
25.4.2020 | 10:50
Andi sannleikans?
Kína er þekkt fyrir að hafa ofsótt kirkju og kristni. Kommúnisminn hefur reyndar alls staðar sýnt þetta svipmót gagnvart kristinni trú. En þessi grein er enn ein staðfestingin á hversu erfiður sannleikurinn er alræðisríkjunum.
Sannleikurinn átti ekki uppá pallborðið hjá Sovétríkjunum, Nazismanum eða Pílatusi. Þó gerðu allir sér grein fyrir því að við komumst ekkert áfram nema menn segi satt og rétt frá. Vísindin eru einnig undir þessum ótta að allur sannleikurinn er ekki endilega hagstæður ríkjandi hugarfari.
Jesús kenndi sínum lærisveinum að hann ætlaði að senda þeim hjálpara að hann sé hjá yður að eilífu, anda sannleikans sem heimurinn getur ekki tekið á móti!
Jesús vissi að lærisveinar hans áttu einn heiftugan óvin. ,,Hann var manndrápari frá upphafi, aldrei í sannleikanum, því í honum finnst enginn sannleikur". Þessi óvinur hefur sín fingraför á mörgu í okkar heimi. Þegar voldug ríki eins og Evrópuríkin þora ekki að láta sannleikann birtast og yfirhilmingar ráða til að eyðileggja ekki viðskiptasambönd þá er bara illt í efni og óvinur manna, Djöfullinn, hefur greinilega puttana sína í skýrslum frá alþjóðlegum stofnunum.
Hvað er þá til bjargar?
Jú, Hjálparinn sem Jesús lét okkur eftir svo við mættum varðveitast í sannleikanum því ,,Sannleikurinn mun gera yður frjálsa"! Helgur Andi við þig bjóðum velkominn.
Snorri í Betel
ESB dró úr gagnrýni á Kína eftir þrýsting | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.4.2020 | 13:26
Veit mér minn deildan verð!
Eru stjórnvöld ekki að sjá það,í þessu ástandi, að láglaunastefna undanfarinna áratuga skilar heimilum og smáfyrirtækjum óhæfum til að takast á við vanda. All lengi hafa launþegasamtök bent á og barist fyrir því að laun hækki og hægt verði að reka heimilin. Þau eru minnstu fyrirtæki samfélagsins. Þau hafa ekki getað myndað sjóð eða lagt eitthvað til hliðar árum saman. Þekkt er að húsnæðiseigendur þurfa að greiða all nokkuð fyrir húsnæðislán heimilanna eða 4faldan höfuðstólinn á 40árum.
Ég man eftir því þegar ég lét reikna út fyrir mig ef ég keypti bíl uppá 2 milljónir og tæki bílalán fyrir honum þá þyrfti ég á 7 árum að greiða 6 milljónir fyrir bílinn. Ég sá í hendi minni að ég var enginn borgunarmaður fyrir svona dýrt lán. Ég hefði aldrei getað rekið heimili mitt á kennaralaunum og lagt til hliðar sem svarar 6 milljónum á 7 árum. Þetta var rétt fyrir sl.aldamót (1997)!
Í dag heyrði ég að stjornarandstaðan benti á þann skort sem efnahagsráðstafanir ríkisstjórnar til stuðnings heimilunum vantaði. Flest heimili eiga það sameiginlegt að eiga lítinn sem engan varasjóð til að grípa til við svona aðstæður. Fjármagnsmyndun í efnahag heimilanna hefur ekki myndast vegna þess að menn fá ekki það há laun og að lánastofnanir bjóða of dýr lán sem heimilin ráða ekki við. Þetta er ávöxtur láglaunastefnunnar. Ekki ólíkt því sem heimili austantjaldslandanna upplifðu við fall kommúnismans. Þá átti enginn neitt!
Einn virtasti konungur veraldarinnar gerði sína bæn í upphafi valdaferils síns. Hann bað:,,Lát fals og lygaorð vera fjarri mér, gef mér hvorki fátækt né auðæfi, en veit mér minn deildan verð"!(Orðskv. 30:8)
Er eitthvað óeðlilegt við fjárafla heimilanna að stjórnvöld veiti þeim ,,deildan verð"? Svo hægt verði að ná saman endum og leggja aðeins til hliðar í ,,hörmungasjóð" heimilanna? Glöggt má muna hve erfitt var að auka við ellilífeyri svo margir búa við afar þröngan kost. Lífeyrissjóðir létu fjármunina frekar í lánin í áhættusaman rekstur en að auka við lífeyri okkar sem eru ekki á vinnumarkaði.
Þeim öldnu má alls ekki gleyma!!!!
Snorri í Betel
Lán með 100% ríkisábyrgð fyrir minni fyrirtæki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 23.4.2020 kl. 11:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
19.4.2020 | 11:39
Spádómur að rætast??
Þessi frétt um erfiðleika tveggja manna sem bera sama nafnið, Benjamín, tengist líka Rabbía sem var/er þjóðkunnur í Ísrael og hét Ytzak Kadourí. Þegar hann lést (2006) skildi hann eftir sig spádóminn um ,,Benjamínana" sem mundu ekki ná saman til að mynda ríkisstjórn í Ísrael. Eftir þá kæmi fram maður sem yrði viðurkenndur leiðtogi eða Messías gyðinga.
Það atriði er í samhljómi við forna spádóma Biblíunnar og koma fram í bréfi Páls postula um endalok illra yfirráða á jörðinni. Páll sá að við endurkomu Jesú Krists yrði ,,maður syndarinnar" og ,,sonur glötunarinnar sem setur sig á móti Guði og rís gegn öllu því sem kallast Guð og helgur dómur. Hann sest í Musteri Guðs og gjörir sjálfan sig að Guði (2.Þess.2:3-4) Þessi lögleysingi mun koma fyrir tilverknað Satans, segir Páll seinna í versi 9. Hann verður opinberaður í lok þeirra daga sem Satan fær að hafa einhver yfirráð á jörðinni.Honum verður burt rýmt og tortímt við endurkomu Jesú Krists.
Kadóurí skildi eftir sig við andlát sitt umslag með nafni á hinum sanna Messíasi og átti það ekki að verða opnað fyrr en að ári eftir dauða hans. Þegar sá tími var liðinn og umslagið opnað birtist nafnið á hinum sanna Messíasi : ,,Yeshua Ha Nazarei" eða Jesús frá Nazaret.
Við höfum ástæðu til að ætla að þessir atburðir liggi nú fyrir dyrum, þegar spádómar Kadourí eru að rætast að helstu stjórnmálaleiðtogar Ísraels ná ekki saman. Eitthvað birtist í kjölfarið.
Má ætla að einhver aðgerð fari í gang til að sameina Ísrael. Hvað skyldi það nú helst vera? Jú, reisa Musterið á Musterishæðinni. Við eigum eftir að sjá mjög merkilega atburði næstu daga til að svo megi verða.
Ég spyr sjálfan mig hvort gyðingarnir muni fara að eins og Salómon? Hann hóf byggingu Musterisins í Sív-mánuði (maí/júní) eða um hvítasunnu. Gyðingar halda mjög nákvæmt tímatal til að endurspegla trú og sögu gyðinga í hátíðarhöldum sínum. Er þessi atburðarrás hafin án þess að nafn kristnir menn eða þeir sem hafa villst frá Biblíulegri leiðsögn skilji hvað er í gangi?
Einn eftirsóknarverðasti spádómur Biblíunnar er einmitt sá er segir að Jesús Kristur komi aftur. Þá mun hann stofnsetja sitt 1000 ára ríki, afnema dauðann, djöfulinn og vald syndarinnar. Þá mun Lífið á jörðinni umbreytast í einni svipan frá neyð og angist til friðar, fagnaðar og langlífis.
Tíminn er inni. Maranata!!!
Snorri í Betel
Stefnir í fjórðu kosningarnar á rúmu ári | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 20.4.2020 kl. 08:14 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
17.4.2020 | 12:04
Hættulegar sýkingar!
Covit-19 koma úr sömu átt og dagurinn. Hún barst yfir okkur með misjöfnum túlkunum og ráðstöfunum. En þegar hún mætti hingað lagðist hún þungt á suma, varð öðrum að bana en lamaði allt þjóðfélagið. Má ég bera hana saman við viðhorf okkar og vantrú? Íslensk þjóð hefur verið undirlögð undanfarna áratugi af efahyggju og röksemdum vantrúaðra sem um leið skaðaði trúarlíf og Guðrækni þjóðarinnar. Við litum ekki á það sem lífshættulega afstöðu en sú afstaða hefur haft ótrúlegar breytingar í för með sér í íslensku þjóðlífi og passa afar vel við orð Jeremía spámanns: ,,Misgjörðir yðar hafa fært allt þetta úr skorðum og syndir yðar hafa hrundið blessuninni burt frá yður."(jer.5:25)
Það ýtti við mér grein um Akureyri (Frèttab.skoðun,150719,HH). Þar var spurt hvers vegna hinn fallegi bær væri ekki kominn með 50 000 íbúa! Höfundurinn nefndi nokkur dæmi sem stjórnendur bæjarins hafa gripið til og orsakað að fólk velji búsetu annars staðar. Ein af ástæðunum var viðbrögð bæjarstjórnar við ,,hættulegum málum"?!
Greinarhöfundur rifjaði upp ,,stjórnvalds aðgerir" gegn mér þegar ég var hrakinn frá kennslu út úr skólastofunni að öllum börnunum ásjáandi. Sá sem tók við starfinu þann daginn var ekki kennaramenntaður né með gráðu í uppeldisfræðum. Ástæðan var jú, ég hafði ,,hættulegar skoðanir" á samkynhneigð.
Aðförin hófs í Skólanefnd þegar núverandi formaður Samfylkingarinnar lagði fram bókun í trúnaðarbók Skólanefndar. Bókunin hófst með þeim orðum að ,,allir eru jafnir fyrir lögum.."! Nema sá sem hefur aðra skoðun en stjórnvöld aðhyllast?
RÚV hefur sýnt þætti, samantekið efni um samkynhneigða og baráttu þeirra við samfélagið og viðurkenningu þess á þeirra lífshættulega lífsmáta. Einn þátturinn var um sorgina og ógnina sem að þeim steðjaði vegna eyðninnar sem tók rosalegan toll. Á tímabili voru vikulega jarðarfarir þar sem einn eða ein úr hópnum var borin til grafar. Lífsmátinn reyndist lífshættulegur og grafalvarlegur. En má segja það?
Nýlega bárust fréttir frá Ísrael að hávær mótmæli urðu vegna orða menntamálaráðherrans sem sagði að ,,hægt sé að lækna samkynhneigð"! Látið er í veðri vaka að þetta sé svo hættuleg staðreyndarvilla að ríkisstjórnin deili ekki skoðunum ráðherrans og honum sé hollast að víkja. Skoðanafrelsið á undir högg að sækja. Fyrir fáeinum árum varð þektur sálfræðingur í Bandaríkjunum ,,afsagður" fyrir sömu skoðun af því að hann vissi að sumir höfðu læknast. Af hverju mátti ekki segja það?
Vel kann að vera að við öll trúum virkilega á það að skoðanir okkar séu réttar og grundvallaðar á staðreyndum. Einn heimspekingur sagði: hættu að bera virðingu fyrir skoðunum annarra, láttu þá rökstyðja skoðanirnar og þá fara þær gjarnan að hnikast til og jafnvel hrynja.
Eitt af því sem brýtur niður,,skoðanir" er til dæmis raunveruleikinn. Okkur hefur fundist eðlilegt að berjast gegn eiturlyfjum vegna þess raunveruleika sem fylgir þeim. En við verjum áfengisneysluna og teljum hana eðlilegan þátt skemmtanalífsins þrátt fyrir raunveruleikann sem fylgir áfenginu. Jafnvel þó okkur sé bent á stórkostlegt fjárhagslegt tjón sem getur hlotist af áfenginu vilja menn auka réttinn til sölu áfengis með því að flytja það í matvöruverslanir.
Ef hegðun okkar opnar á sjúkdóma, heilsuleysi og brauðskort er auðvita tilefni til að endurskoða hegðunarmynstrið. Skoðun sú sem telur þessi atriði fylgifiska rangs lífsmáta getur varla talist ,,hættulegar skoðanir" í slíkum málum?
Einnig var til þess tekið að börnum fer fækkandi á Akureyri. Fréttin sagði að 200 börn vantaði í bæinn. Auðvitað er slíkt grafalvarlegt mál. En er þetta samt ekki allt skv. áætlun? Akureyri hefur gengið fram fyrir skjöldu að berjast fyrir réttindum fólks að lifa þeim lífsmáta sem elur ekki af sér börn. Leikskóla var lokað til að óæskilegum gildum kristninnar, yrði ekki haldið að börnum. Þegar foreldrarnir þurftu leikskólapláss fyrir börnin þá var nokkra ára biðtími fyrir leikskólapláss því það tekur styttri tíma að rífa niður en byggja upp eins og sagt er í bók Prédikarans (kafli 3:3)
Það var eftirtektarvert að heyra samgöngumálaráðherra tala um nýtt samkomulag um endurbætta vegi og umferðarskipulag á höfuðborgarsvæðinu. Mönnum hefur verið ljóst í tuttugu ár að mikilla endurbóta er þörf. Þetta lásu menn af ástandi vega, umferðarþunganum og sóun á tíma ökumanna!
En hvernig er það með þjóðlífið? Ef við sjáum og heyrum ,,neyðarkall" í mannlífinu breytum við um stefnu? Heyrum við ekki:,,Vaknaðu"? Angistaróp foreldra sem misst hafa unglinga í eiturlyf. Sjáum við ekki að 1000 fóstureyðingar á ári.Heyrum við ekki um vaxandi þörf fyrir geðlyf hjá þjóðinni? Skynjum við ekki íþyngjandi álagið á sjúkrahúsunum? Sjáum við ekki vanlíðan ungmenna sem telja sig vera annað en þeir eru? Heyrum við ekki að geðsviðið ræður ekki við ástandið? Sjáum við ekki enn að leiðin sem þjóðin hefur valið sér er vegur eyðileggingar?
Kynskipti lækna ekki andlega vanlíðan. Eiturlyfin bæta ekki ástandið! Þetta höfum við vitað all lengi enda var stefna stjórnmálanna ,,Vímuefnalaust Ísland árið 2000"! En hvers vegna náðum við ekki takmarkinu? Er vitlaus hugsun í þessum valdaklíkum þjóðfélagsins?
Hvert sem litið er sjáum við ekki lausnir eða bættar kringumstæður. Þetta ástand sem ríkir í dag kom ekki skyndilega yfir okkur. Þetta ástand er frekar ,,niðurstöður" eða ,,uppskera" sáningar og hegðunar liðinna ára. Tímabilin mega vera flokkuð sem rokktímabilið, hippatíminn, bítlatíminn svo eitthvað sé nefnt. Við sem upplifðum þessi tímabil munum að þau einkenndust af nýjum viðhorfum, uppreisn gegn ,,gömlum reglum" eða hefðum. Á þessum tímum voru allir hvattir til að ,,láta vaða", ,,prófaðu, upplifðu". Syngja menn ekki hástöfum ,,Farðu alla leið"? Ekki langt frá freistingu Evu: ef þú etur af ,,munt þú verða eins og Guði". Ef þú lætur vaða verður þú reynslunni ríkari. Við höfum látið vaða og erum beiskri reynslu ríkari.
Svo birtast enn ein stjórnvalds mistökin þegar manni er bolað úr starfi og #metoo ásakanir voru bornar á hann af stjórnendum. Þar fóru stjórnvöld offari eins og oft áður og sömdu við hann um bætur uppá 15 milljónir eða 5x hærri bætur en Hæstiréttur dæmdi mér skv. ,,dóm venju"! Þá voru ekki allir jafnir fyrir lögum. Dómaranum sem fékk ekki sæti í Landsrétti voru dæmdar 5 milljónir í miskabætur. Var ,,kollega"-samfélagið að verja sína? Allir jafnir fyrir lögum?
Hættulega málið leynist í því að það eru ekki allir jafnir fyrir lögum hvorki hjá stjórnendum né dómstólum.Þegar dómarar hika við að dæma skv.lögum þá eyðileggja þeir réttlætishugsjónina og þá rætast orð Ritningarinnar sem segir: ,,Hinir óguðlegu umkringja hina réttlátu, fyrir því kemur rétturinn fram rangsnúinn". (Habak.1:4)
Við rekum þriggja milljarða stofnun til að viðhalda trúarlífi á Íslandi. Mætum við þar með vandamálin sem bænarefni. Berast bænir okkar til Guðs almáttugs um liðsinni í þessu neyðarástandi þjóðarinnar? Nú um síðustu páska var meiri áhersla í páskaprédikun ríkis stofnunarinnar um náttúruvár vegna hlýnunar andrúmsloftsins heldur en að Jesús Kristur, lausnarinn okkar, ,,dó vegna okkar misgjörða og að hegningin sem við höfðum til unnið kom niður á honum"! Fyrir því höfum við aðgang að Guði sem vill senda Anda sinn yfir okkur þeim til heilla sem glíma við vandamál! Hvar eru útgerðarmenn sem leita loðnunnar? Mæta þeir í kirkju og biðja himnaföðurinn um ,,daglegt brauð"? Hvað þurfa mörg ár að líða svo að fólk til lands og sjávar biðji Guð um sitt viðurværi?
Segir ekki í trúarbók ríkis stofnunarinnar, þjóðkirkjunnar: ,,Með hverju getur ungur maður haldið vegi sínum hreinum? Með því að gefa gaum að Orði Drottins"!
Við höfum of lengi leyft trúleysinu leika lausum hala og leika unga fólkið grátt. Það fólk verður seinna stjórnendur, þingmenn og dómarar. En er það fólk með sterka réttlætiskennd? Hefur þetta fólk þá sannfæringu að Guð sem er yfir okkur mætir okkur þar sem við erum?
Davíð konungur sagði frá því sem hann sá hvernig Guð hugsar og bregst við okkur. Hann segir:,,Gagnvart ástríkum ert þú ástríkur, gagnvart ráðvöndum ráðvandur, gagnvart hreinum hreinn en gagnvart rangsnúnum ert þú afundinn"! (Sálm.18:26-27)
Hvernig lítur þjóðin, með þessa stjórnendur sína, á almáttugan Guð? Hvernig horfum við á Hann undir drepsóttinni, Covit-19?
Spyrjum við hvar hann haldi sig núna þegar mikið er í húfi? Þegar heilu heimsálfurnar eru lokaðar með farartálmum og skert frelsi til athafna, spyrjum við um leiðsögn frá Guði til að ráða fram úr vandanum? Gjaldeyrissjóðir þjóðanna eru að verða uppurnir og brauðhúsin tóm. Við erum að horfa uppá hrun samfélaga og örþrifaráða þar sem jafnvel allt þetta ár verður undirlagt af ráðstöfum stjórnvalda til að stemma stigu við útbreiðslu agnarsmárrar veiru. Stjórnmálamanna sem hafa gert sig seka um vítaverð mistök til verndar mannréttinda og þess að ,,allir séu jafnir fyrir lögum"! Hafi þeir sniðgengið réttlætið og gerst rangsnúnir megum við þá ekki eiga von á því að Guð sé okkur afundinn?
Í dag er gullið tækifæri til að við lítum yfir sviðið og spyrjum um hamingju leiðina svo að við megum fara hana. Hún hefur legið ljós fyrir okkur mönnunum í 2500ár. En undanfarna áratugi hafa menn hafnað og lokað á þessa leið, stjórnmálamenn sem almenningur. Við höfum þess vegna valið okkur til löggjafar og stjórnar fólk sem hefur hvorki Guðsótta né skíra réttlætiskennd.
Við sitjum uppi með kirkju sem hyggur meira um ,,mennskuna" en að kenna okkur um þann sem hefur allt vald bæði á himni og jörðu, Jesú Krist sonur Guðs. Miðalda kennimaður kristninnar sagði:
Jesú vill að þín kenning klár
kröftug sé, hrein og opinskár
lík hvellum lúðurhljómi.
Launsmjaðran öll og hræsnin hál
hindrar Guðs dýrð og villir sál
Straffast með ströngum dómi (H.P)
Það er vissulega til önnur leið. Hún er kölluð Guðs leið,enginn sem hana fer mun villast, jafnvel ekki fáráðlingar segir Jesaja (35:8)
Snorri í Betel
Trúmál og siðferði | Breytt 19.4.2020 kl. 18:56 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
4.11.2019 | 17:33
Afsakið, má enginn móðgast eða særast?
Sæll Jón, ritsjóri Fréttablaðsins.
Í dag tengir þú leiðara blaðsins við þá kröfu að kirkjan biðji ,,Svona fólk" afsökunar á fyrri afstöðu til samkynhneigðra. Eins og þú veist er kirkjan mun eldra fyrirbæri en Íslandssagan í heild sinni og því erfitt að átta sig á því hvers vegna afsökunarbeiðni ætti að koma frá kirkjunni til samkynhneigðra. Samkynhneigður einstaklingur er ekki ný manntegund.
Kirkjan hefur tilverugrundvöll sem er kenning postulanna, spámanna og Jesú Krist sem hyrningarstein. Ef kirkjan fer af þessum grunni þá auðvitað, þarf hún að hverfa frá mörgu sem hún hefur staðið fyrir öldum saman.
Samkynhneigðin (kynvillan) er engan veginn samþykkt meðal spámanna né postula kristninnar og því getur kirkjan, vilji hún kenna sig við Jesú Krist og postulana, beðist afsökunar á 2000 ára gamalli afstöðu til málsins. Samkynhneigð eða kynvilla erfir ekki Guðs ríki og er því leið til glötunar. Enginn sannkristinn vill að nokkur syndari glatist. Því hafa sann kristnir menn, kirkja og prestar, ævinlega boðað mönnum að þeir geri iðrun, snúi við og láti af hegðun sinni. Má kirkjan ekki vera sjálfri sér samkvæm og notast við orð Biblíunnar?
Hjónabandið hefur lent í þessum stormi. Það er, samkvæmt kenningu kirkjunnar greinilega myndað af Guði almáttugum. Eftirfarandi er haft eftir Jesú Kristi í bók Guðspjallamannsins Mattheusar:,, Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði:,Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður."(Kafli 19:5) Þetta sjónarmið hefur verið álit kristninnar til hjónabandsins og tilheyrt kirkjunni og kristnum mönnum. Ef kirkjan á að biðjast afsökunar á þessu áliti boðskapar höfundar kristninnar er langt seilst. Mig undrar stórlega hrokann sem birtist í forystugrein þinni að fara fram á afsökunarbeiðni á þessari kenningu kristninnar. Hjónabandið er frá upphafi milli karlsins og konunnar. Guðs hugsun liggur þar að baki. Hjónabandið nær því ekki til tveggja karla, tveggja kvenna eða fjölkvænis svo ekki séu nefnd önnur háttsemi manna í öðrum trúarbrögðum.
Sé krafan þín réttmæt um að kirkja og biskup biðjist afsökunar á fyrri afstöðu til kynvillunnar, hvað á þá að gera við bókina sem þessi afstaða byggist á? Hvað á Sr.Agnes að gera sem forseti Biblíufélagsins? Verður þá krafan að Biblían verði bönnuð af því að hún samþykkir ekki samkynhneigð? Á Agnes að segja sig frá forsæti í Biblíufélaginu vegna afstöðu Biblíunnar til kynvillunnar? Ég gæti haldið áfram á þessari braut.
Viljir þú ekki samþykkja kenningu Jesú Krists þá hefur þú auðvitað frelsi til að yfirgefa kirkju og kristni en vita máttu að þú verður þá í andstöðu við Jesú Krist, postulana og spámenn Drottins. Það er auðvitað ákveðin leið og fjandskapur við Guð almáttugan. Betra væri fyrir Fréttablaðið, frá mínum sjónarhóli séð, að taka afsöðuna með Guðs tilskipun, þér og blaðinu til blessunar. Þó svo að við öll viljum breyta skoðunum eða afstöðu til ýmissa siðferðilegra mála, þá þarf nútíma afstaðan ekki að vera betri fyrir samfélagið en fyrra álit sem hefur verið á undanhaldi. Það hefur verið kallað Siðrof samtímans! Biblían nefnir þetta fráhvarf og er auðvita tákn um þann tíma sem við lifum á. Samkynhneigðinni fylgja enn sjúkdómar, vanlíðan og margskonar vandamál hins óuppfyllta manns. Er lækningin sú að samþykkja allt sem þeir Samkynhneigðu fara fram á?
Vandinn er ærinn. Krafan er stór en hefur eitthvað lagast í þessum efnum? Er kynfrelsið, kynleiðréttingarnar og eða samkynhneigðin betri fyrir manninn þó svo að við samþykkjum allar þessar kenndir? Má enginn hafa aðra skoðun og Biblíulega kristin sjónarmið í okkar ,,víðsýna og frjálslynda" samfélagi?
Er kannski ekkert umburðarlyndi til? Þú veist að umburðarlyndi er ekki það að samþykkja aðra skoðun!
Jón, ég vildi óska þess að Fréttablaðið færði okkur réttlátari kröfur en forystugreinin þín krafðist í dag. Afsökunarbeiðni Agnesar var auðvitað tengd því að ,,særa fólk"! En hvernig ætlum við að lifa í frjálsu landi með skoðanafrelsi, trúar- eða tjáningarfrelsi án þess að einhver móðgist eða særist? Auðvitað er slíkt sorglegt en má ekki sá sem ,,særist" fá brýningu að hugsa málefnið upp á nýtt? Segir máltakið ekki: ,,Vel meint eru vinar sárin"?
Ég er auðvitað þér ekki sammála og sama þó þú særist yfir því eða ekki, þá bið ég þér Guðs blessunar og brýni þig til að endurskoða afstöðu þína og taka Biblíulega afstöðu, sem hefur staðist 5000 ára mannkynssögu. Hjónabandið er milli karls og konu, enda skapaði Guð Adam og Evu.
Snorri í Betel
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- trukona
- hvala
- zeriaph
- hognihilm64
- kiddikef
- sigurjonn
- baddinn
- gudni-is
- baenamaer
- birkire
- valgerdurhalldorsdottir
- pkristbjornsson
- ruth777
- jullibrjans
- goodster
- sirrycoach
- daystar
- ellasprella
- flower
- valdis-82
- valdivest
- thormar
- sigvardur
- levi
- malacai
- hafsteinnvidar
- davidorn
- heringi
- helgigunnars
- icekeiko
- kjartanvido
- gretaro
- stingi
- jenni-1001
- kafteinninn
- eyjann
- svala-svala
- predikarinn
- exilim
- sax
- truryni
- morgunstjarna
- coke
- siggith
- kristleifur
- antonia
- vor
- valur-arnarson
- deepjazz
- bjarkitryggva
- harhar33
- thjodarskutan
- balduro
- gudspekifelagid
- study
- h2o
- frettaauki
- nyja-testamentid
- nkosi
- gudnim
- genesis
- ea
- gullilitli
- gladius
- bryndiseva
- dunni
- arnihjortur
- arncarol
- gun
- gummih
- gattin
- johann
- olijoe
- vilhjalmurarnason
- nytthugarfar
- postdoc
- eyglohjaltalin
- hebron
- muggi69
- krist
- trumal
- pall
- talrasin
- angel77
- gessi
- ghordur
- baldher
- ragnarbjarkarson
- adalbjornleifsson
- bassinn
- skari
- kje
- benediktae
- nonnibiz
- bjargvaetturmanna
- doralara
- nafar
- contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (22.11.): 5
- Sl. sólarhring: 5
- Sl. viku: 28
- Frá upphafi: 242249
Annað
- Innlit í dag: 2
- Innlit sl. viku: 24
- Gestir í dag: 2
- IP-tölur í dag: 2
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar