Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
4.12.2018 | 00:07
Rétt niðurstaða!
Eitt af því nauðsynlegasta sem Alþingi gerir núna er að greina rétt hvað býr að baki orðum og framkomu í Klaustrinu sem og utan þess. Jesús segir:,,af orðum þínum muntu réttlættur og af orðum þínum muntu sakfelldur! En hann segir líka:,,sá yðar sem syndlaus er kasti fyrsta steininum og grjótflugið er enn í gangi. Guð hjálpi okkur.
En til að þessi orð mín verði ekki innlegg í grýtingar þá vil ég nefna þau hughrif sem ég upplifði. Það laust niður í hug minn sagan um Belsasar,konung Babylonar sem var á fylleríi með hirð sinni. Óvinaherir umkringdu borgina en mesta ógnin við ríkið var hirðin og veikleiki hennar. Belsasar hafði tekið og vanvirt hin helgu áhöld sem tekin voru úr Musterinu í Jerúsalem og flutt til Babylonar. Þá ritaði fingur Guðs dóminn yfir Belsasar og á sömu nóttu féll Babyloníuríkið.
Nú höfum við heyrt og séð ,,Alþingi rita sína yfirskrift á skjái landsins og bæði sjónvörp, símar og blöð greina okkur frá. En er þetta tilviljun? Flestir hafa gerst sekir um illt umtal og niðrandi orð ekki bara um öryrkja og samkynhneigða heldur heiðarlegt og gott fólk. Það var líka atað auri.
En skoðum þessi atriði.
Fyrir ári gátum við ekki staðið með Ísrael og viðurkennt Jerúsalem sem höfuðborg gyðingaríkis. Þeirri borg er líkt við sjáaldur Drottins. Að standa ekki með Ísrael er að ögra Guði almáttugum! Við höfum Alþingi sem fær frumvarp um aukinn rétt til fóstureyðinga og Guð segir: ,,veljið Lífið! Við flokkum synd og syndugt líferni sem mannréttindi en tökum mannréttindin af öldruðum og öryrkjum til að fá betri útkomu fjárlaga. Í stað miskunnar og líknandi handa gagnvart krabbameinssjúklingum þrengjum við bataferlið með íþyngjandi kröfum um aukna kostnaðarþátttöku þeirra í meðferðum, vitjunum og lyfjum. Hvers vegna? Af því að hugsunin er röng og afvegaleidd. Það birtist líka í lögum þessa lands.
það er aðeins ein leið fær utúr þessum ógöngum. Að snúa við! Velja réttu orðin. Kalla hið illa illt og hið góða gott. Hætta að sakfella saklausa menn. Velja Lífið fyrir ófæddu börnin og styðja þá kristnu hópa sem boða trú samkvæmt Biblíunni en ekki útiloka þá frá skólum né setningu Alþingis. Með því að styðja þá sjúku, fátæku og öryrkja. Ekki ræna öldungana lífeyrinum né verkamanninn laununum.
þá mun miskunn Guðs rita aðra yfirskrift yfir þingheim, yfirskrift lofs og virðingar! Þá mun ljós Drottins lóga yfir þessu landi og við munum hafa mikið fram að færa í mannréttindum á vettvangi Sameinuðu þjóðanna.
Snúum okkur aftur til Höfðingjans Jesú Krists og hann mun snúa ásjónu sinni til okkar lands.
snorri í Betel.
Rannsakað sem siðabrotamál | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
29.11.2018 | 17:16
Tungan er ranglætisheimur ....
Yfirskriftin eru orð Jakobs postula og bróður Jesú Krists. Þeir voru sammæðra synir Maríu en hann sonur Jóseps. Þetta var honum ljóst fyrir 2000 árum og okkur í dag.
Af hverju er mönnum svona brugðið við tal vel drukkinna Alþingismanna? Salómón konungi var það ljóst 1000 árum fyrir daga Jakobs og Jesú frá Nazaret að konungum sæmir ekki víndrykkja né höfðingjum áfengir drykkir(Orðkv. 31:4). Okkar þingmenn eru án afsökunar. Víndrykkja og fyllerí er engum til sóma og alls ekki til gagns. En vel er að þeir eru fljótir að biðjast afsökunar og auðvita fá hana.
En það er fleira sem vert er að staldra við. Í gær heyrði ég endurflutt viðtal sem Ævar Kjartansson og Örn Tuliníus áttu við Stefán Jón Hafstein. Þeir fóru yfir meðferð og efnistök fjölmiðla á málefnum undanfarna áratuga. Þar var minnst á hvernig raddir andófsins vantaði þegar útrásarvíkingarnir voru að rústa fjármálakerfið og fjölmiðlar sem forsetinn mærðu útrásarvíkingana. Fjölmiðlarnir, Stefán Jón og forsetinn höfðu það þeim til afsökunar að ,,andóf vantaði! Enginn sagði frá ,,Nýju fötum keisarans! Þeim var haldið frá sem andmæltu og kirkjan sagði heldur ekki orð!
Fleira hrundi á þeim árum. Nýtt siðferði var leitt til öndvegis, hjúskaparlögum breitt og samkynhneigðin talin eðlileg. Andófsmenn voru kallaðir þröngsýnir, fordómafullir og með rörsýni. Best væri að útiloka þá frá allri umræðu. Sigur samkynhneigðra var helst að þakka fjölmiðlum sem lögðust á eitt að breyta samfélaginu. Myndir voru teknar og lofræður fluttar um samkynhneigð en á meðan voru tugir þeirra að glíma við dauðans alvöru hennar. Lífsmátinn kostaði svo marga Lífið. Eyðni lagðist eins og mara yfir hópinn. Andmælin þóttu ekki svara verð né eiga erindi en voru jafnvel flokkuð sem haturs orðræða og til þess fallin að þeir sviftu sig lífi. Það var andófinu um að kenna.
Er okkur Íslendingum stætt á því að gagnrýna Alþingismenn fyrir óvægin orð, sögð í ölæði og áhættu hegðun í fjármálum meðan fjölmiðlum er í lófa lagið að beita áróðri gegn heiðvirðu fólki, segja það með rörsýni eða gamaldags viðhorf og telja viðhorf Jakobs postula og Salómons konungs ekki gilda fyrir okkar samtíma? Samt eru fylgifiskar rangrar hegðunar augljósir!
Nú er SS búin að leggja fram frumvarp sem rýmkar tíma til fóstureyðinga. Þetta frumvarp er lífshættulegt litlum börnum í móðurkviði. Eru orðin í því frumvarpi ekki skaðlegri en vínspjallið á Klaustur kránni. Fá ,,andófsmenn að koma í fjölmiðla nú og beita sér gegn barnaeyðingum? Eða getur siðferðisvitund þjóðarinnar og fjölmiðlanna ekki annað en farið léttu og öruggu leiðina niður á við eins og í hin skiptin?
þannig fórum við með útrásina, kynvilluna, hjónabandið og nú eru smábörnin sett í stórhættu!
Er tilviljun að á sama tíma og Alþingi er niðurlægt með hegðun þingmanna þá er frumvarp um þungunarrof lagt fram? Munu þessir þingmenn hafa þrek til að taka sig á, leiðrétta stefnuna og bjarga börnunum, framtíð þessa lands?
mótmælum og veljum lífið fyrir börnin. Vonandi verða þingmenn allsgáðir við afgreiðslu þessa frumvarps og segja NEI! Guðs orð má enn heyrast því ávextir óhlýðninnar eyðileggja manninn, málefnin og þjóðina!
snorri í Betel
Undir þeim komið að axla ábyrgð | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt 30.11.2018 kl. 10:48 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2018 | 16:16
Konan fjarlægð?
Ég ólst upp við það að móðir mín var kona. Hún vann við kvennastörf, klæddist kvenfötum og var sögð húsmóðir eða fiskvinnslukona. Ekkert af þessum orðum tengdist smánun eða þurfti að breyta í jafnréttisbaráttunni. Eina niðurlægingin var titillinn ,,fiskvinnslukona því launin sögðu mér að hún væri lítils metin. Starfið skaffaði heimilinu lítið.
Ég lærði það í sunnudagaskólanum og kristnifræði barnaskólans að Guð hefði skapað þau karl og konu. Aldrei efaðist ég um tilvist konunnar enda blöstu þær við hvert sem ég fór. Í barnaskólanum voru líka kennslu konur sem stóðu sig vel í kennslu. Seinna starfaði ég með sumum þeirra og sumar voru orðnar skólastýrur.
Ég ólst upp við þessi blæbrigði Íslenskunnar og vissi vel að konur sem karlar eru hinir þörfustu aðilar til samlífs og framhalds þjóðarinnar.
Konurnar urðu mæður og færðu okkur kennurunum og kennslukonunum börnin til menntunar, kynslóð eftir kynslóð. Í þeirri menntun var ævinlega lögð rík áhersla á Íslensku, orðnotkun, málfræði og bókmenntir. Þar kom saga þjóðar og beygingar orða mikið við sögu. Ætlast var til að börnin gætu tjáð sig skammlaust á hinu ástkæra, ylhýra máli sem kallast móðurmálið.
Ég var látinn læra sem kvöldbæn stefið hans Hallgríms:
Gefðu að móðurmálið mitt
minn Jesús, þess ég beiði!
Frá allri villu klárt og kvitt
krossins orð þitt út breiði.
um landið hér til heiðurs þér
helst mun það blessun valda.
Meðan þín náð lætur vort láð
lýði og byggðum halda!
Í dag eru þessi sjónarmið öll á undanhaldi. Aðför er að landsbyggðinni, öryrkjum, ræstingarkonum og orðnotkun Íslenskunnar sem aðgreinir kyn manna og starfsheitum tungumálsins. Kristninni og hollri sýn hennar á hlutverk og stöðu kynjanna. Niðurrifsöflin eyða byggðum, landi,sögu og þjóð!
Er ekki kominn tími á að spyrna við fótum gegn villunni og aðför að Íslensku, þjóðrækninni og kyngreiningu tungunnar?
snorri í betel
Afnám orðsins kona úr íslensku máli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.11.2018 | 18:23
Efnahagsstefna eða siðferðið?
siðferðið bendir ekki einungis á heiðarleika í skattgreiðslu, skattframtali, kynhegðun eða dómsmálum. Það snertir verulega lífsafkomu fólks.
Undanfarin ár hafa fréttir fjallað um flóttamenn frá Afríku og Arabalöndum til Suður Evrópu. Um er að ræða ungt fólk sem leitar öryggis og atvinnu.
Héðan streyma eldri borgarar til Spánar eða Portúgal vegna efnahags. Eldra fólkið er fórnarlömb efnahagsstefnu ríkisstjórna Íslands sem byggir á skertum aðgangi að lífeyrinum!
þessar fréttir um efnahagsstefnu ríkisstjórnarinnar og flóttafólkið frá Íslandi bera þess vott að vont efnahagslegt siðferði svælir fólkið frá landinu þegar tíminn til að njóta rann upp.
Auðvita á eldrafólkið að hafa þetta val að fara til sólarlanda, en ekki eina kostinn til að ná saman endum.
Ætli Guð hafi eitthvað um svona afarkosti að segja?
Hallgrímur Pétursson segir: ,,meðan þín náð lætur vort láð LÝÐUM og BYGGÐUM halda!
snorri í betel
Hagvaxtarstefnan að líða undir lok | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
15.11.2018 | 15:33
Hvað verður að meini?
Tjáningarfrelsið tapaði í Hæstarétti. Akureyrarbær fékk sína niðurstöðu þó að allur málatilbúnaðurinn hafi reynst innihaldslausar sakir. Ég var síknaður af þeim öllum. Þrjár og hálf milljón er sama og 7mánaða laun en allur málareksturinn tók aðeins 6 ár.
þetta sýnir að yfirvöld eru varin af lögum og dómstólum en einstaklingurinn fær sína 30 silfurpeninga, má ég segja þrælslaun? Ég sé ekki annað en að þeir kollegar mínir sem nú standa í ströngu og hafa verið reknir ólöglegafrá störfum, fá ekki nema litla dúsu fari þeir í mál.
KÍ, stéttarfélag kennara neitaði að fara í þessa vegferð. Þeir höfðu reynslu af því að dómstólar verja ekki kennarann eins og sannast með þessum dómi.
Við segjum að réttlætið sigri að lokum og þá er það svona, skv. Hæstarétti og samkynhneigðin er ennþá synd sem leiðir til dauða er því grafalvarleg!
snorri í betel
Snorri fær 3,5 milljónir í bætur | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
17.4.2018 | 10:24
þeir kristnu gerðir að sakamönnum!
Er það ekki athyglisvert hve oft vondir stjórnendur skella sök á saklaust kristið fólk? Sá fyrsti sem við þekkjum sem gerður var að sakamanni af stjórnvöldum var Jóhannes skírari, Jesús Kristur og svo kom þessi ófögnuður yfir lærisveina Krists. Neró sakaði þá kristnu um að hafa kveikt eldana í Róm þegar hún brann 64 Ad.
Við höfum vísbendingar um að meðal gyðinga urðu spámenn þeirra oft fyrir harkalegum viðbrögðum konunga og stjórnvalds. Í þann tíma var ,,aðskilnaður ríkis og kirkju"!
Síðari tíma stjórnvöld tóku kirkjuna undir sinn verndarvæng og við það varð kirkjan þægari og friðvænlegra ástand myndaðist. Má vera vegna þess að kirkjan lagði af að prédika ýmis beitt atriði sem bentu stjórnvöldum á sekt þeirra gagnvart Almættinu.
Nú rís Erdogan upp gegn kristnum amerískum presti og sakar hann um hryðjuverk. Slíkum ólögum vorum við beitt af Bretum 2008, gleymum því ekki. Við erum í Nató með Tyrkjum og prestinum. En auðvita tökum við ekki afstöðu í svona eldfimu máli, er það? Prestar og kristnir í okkar landi eru ágætlega þægilegt fólk nema þeir tali gegn samkynhneigð þá myndast sog og öldurót í þjóðfélaginu og slíkir fá ,,tyrkneskt bað" ríkjandi stjórnvalds! Þessi prestur er þó ekki sakaðr um slíka ,,fordóma"!
Fátt er auðveldara en að saka þá saklausu um hryðjuverk, mannhatur og fordóma. Þessi orð eru illa skylgreind og allt fellur undir hryðjuverk og mannhatur sem passar ekki við ríkjandi almenningsáliti. Islam er ríkjandi trúarviðhorf í Tyrklandi og þá er kristnin auðvitað hryðjuverkastarfsemi í slíku andrúmslofti. Kritnin kennir okkur um synd og lesti mannsins sem fá að blómstra undir sharíalögum Islams.
Í gegnum söguna hefur kristnin alltaf verið kæfð og útrýmt í veldi múslima nema helst í Sýrlandi. Kristnir söfnuðir hafa verið lengi til í mörgum löndum múslima og gengið mis vel. En nú er mikil breyting á varðandi Tyrkina. Skýringuna er helst að finna í viðhorfi Erdogans að hann sækist eftir lyklavöldunum í Mekka og Jerúsalem. Erdogan er sjálfur útskrifaður sem lærifaðir eða Iman og nu þarf að sýna hinum Islamska heimi hver er verndari trúarinnar og um leið leiðtogi allra Múslima. Þess vegna er amerískur prestur tekinn, gerður að hryðjuverkamanni, mannhatara og fordómafullum kennimanni.
Mér finnst þetta gullið tækifæri fyrir utanríkisráðherra að láta að sér kveða og nýta NATO samstarfið til að senda Erdogan tóninn og krefjast þess að saklaus prestur fái að ganga laus bæði í Tyrklandi sem og víðar. Menn vilja gjarnan sýna kærleiksríkt og fordómalaust yfirbragð gagnvart Úganda og Kenýabúum en hvað með líðandi þjón Jesú Krists í Tyrklandi? Er honum bara nær að hafa hagað sér ,,svona"?
Það megum við á Íslandi vita að þessi andkristnu öfl eru líka meðal íslenskra stjórnmálamanna sem bæði sitja í bæjarstjórnum og á Alþingi okkar. Erdogan finnst víða!
baráttukveðja
Snorri í Betel
Sakaður um hryðjuverk í Tyrklandi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
28.3.2018 | 10:19
Hugarfarið ræður för!
Ekki má hækka laun nema um 3%! Annars fer allt í verðbólgu og óróa. Kaupmátturinn rýrnar og heimilin tapa.
Verð á olíu og bensíni hækka stöðugt og þar eykst kaupmáttur launamannsins ekki. En það er víst allt í lagi þó kaupmátturinn rýrni og heimilin skaffi fyrirtækjunum hærri tekjur þá geta laun víst hækkað. Eða eru það ekki rökin?
Peningakerfið er greinilega ekki fyrir launamanninn heldur fyrirtækin. Þau njóta verðhækkana og borga forstjórunum milljónaaukningu á mánuði og þurfa ekki að eiga von á nema 3%launahækkun.
Það vantar samantekin ráð launamanna um að hætta að versla við okurfyrirtækin og leyfa þeim að finna til tevatnsins. Því stjórnendurnir sýna 3%launamanninum enga miskunn of heimilum enga sanngirni!
Er nema von að talað er um ,,Mammon ranglætisins"? Hann fitnar vel við styrkingu krónunnar.
Snorri í Betel
Sterk króna skilar sér ekki | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
22.12.2017 | 11:02
Jerúsalem, aflraunasteinn?
Ísland hnaut í gær um aflraunasteininn ásamt meirihluta SÞ! Frá því er greint í hinni Helgu bók, Biblíunni, að Guð hafi sett ákveðinn dag til að gera Jerúsalem að aflraunasteini fyrir þjóðirnar. Sá dagur var í gær, þegar sólin var lægst á lofti og myrkur mest á Norðurhveli.
Ljós Guðs fékk ekki að skína og leiðin til friðar lokaðist, gersamlega. Hérðan í frà, rennur vagninn bremsu laus að sínu marki, Harmageddon. Ísland er í þeim vagni og þorir ekki að stökkva af. Mönnum finnst hið framan sagða sjálfsagt neikvætt og þröngsýnt en skoðum það nànar.
Spàdómsbók Sakaría er rituð um 517 f.kr. Á þeim tíma var verið að endurbyggja borgina Jerúsalem eftir Herleiðinguna til Babylonar. Þjóðin stóð í angist og klemmu við aðrar þjóðir í kring sem unnu gegn því að gyðingar endurbyggðu borgina og Musterið! Þessi staða er komin upp aftur og lýsir sér í andsröðunni sem birtist í fréttinni. Sakaría talar til samtíma síns eftirfarandi orð:,,Á þeim degi mun ég gera Jerúsalem að aflraunasteini fyrir allar þjóðir. Hver sá, er hefur hann upp, mun hrufla sig til blóðs og allar þjóðir jarðarinnar munu safnast gegn henni! (Sak..12:3)
Þetta ástand var á dögum Sakaría og er enn í dag! Sama staða. Sama prófið! Eins og áður skipa þjóðirnar sér í óvinafylkingar gegn Jerúsalem og Ísrael og það í nafni friðarins! Seinna segir í sömu bók: ,,Og ég mun safna öllum þjóðunum til hernaðar móti Jerúsalem, og borgin mun verða tekin, húsin rænd og konurnar smánaðar. Helmingur borgarmanna mun herleiddur, en hinn lýðurinn mun ekki upprættur verða úr borginni. Og Drottinn mun út fara og berjast við þessar þjóðir,, (Sak.14:2-3)
Þetta er framhaldið sem fylgir, þegar orðum Friðarhöfðingjans er ekki hlýtt. Þá köllum við yfir okkur ófrið og hörmungar. Allar þjóðirnar í kringum Ísrael hafa haft 100 ár til að sýna friðarvilja í verki en stöðugt boðið uppá ófrið og útrýmingu! Besta tækifærið til að sýna friðar viljann var í Camp David friðarsamningunum í tíð Clintons, þegar Arafat sló á útrétta friðarhönd gyðinga af því að ,,hann vildi allt eða ekkert!
Enn í dag er utanríkisráðherra Íslands að vona að Arabarnir sýni friðarvilja og þá styður hann og styrkir andstöðuna gegn Ísrael og Jerúsalem. Hann, með sinni ákvörðun skipar okkur á sess óvina alveg á sama hátt og gerðist á dögum spámannsins Sakaría.
Framhald þessarar ákvörðunar verður þannig að við erum komin í hóp andstæðinga Guðs. Af því mun leiða að spádómur Esekíels um þjóðir síðustu tíma fellur líka yfir okkur sem andstæðingar friðarins. Þetta segir Esekíel í köflunum 38&39 sem fjalla um síðustu átökin milli ljóss og myrkurs: ,,Ég skal finna þig, Góg, höfðingi yfir Rós, Mesek og Túbal og ég skal setja króka í kjálka þína og leiða þig út, ásamt öllu herliði þínu..Persar, Blálendingar og Pútmenn eru í för með þeim, allir með törgu og hjálm, Gómer og allir herflokkar hans, Tógarma-lýður, hin ysta norðurþjóð og allir herflokkar hans-(allar skandinavísku þjóðirnar; þær hafa skipað sér á móti Jerúsalem og Ísrael).
Nu mun rætast að við höfum skipað okkur í andstöðuna við Guð og það er feigðar flan. Aðeins ein leið og örfáir dagar eru okkur opnir til að snúa við frá heljarslóð! Við sigrum ekki Guð; og þar sem þetta ár er Fagnaðarár hjá gyðingum þá mun Guð vinna hratt og snarlega í þessu máli!
skrifað í von um miklu betri framtíð en þá sem viðvaranir spádómanna greina okkur frá að kima muni yfir okkur!
Guðlaugur, snúðu við, af þessari Heljarslóð!
Snorri í Betel!
Höfnuðu ákvörðun um Jerúsalem | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.11.2017 | 10:39
Trúin og ástin!
Það hefur löngum verið ljóst að ástfanginn maður opnar sig fyrir samfélaginu við skapara sinn. Konur eru gjarnan opnari fyrir trú og hinu yfirnáttúrulega sem gæti skýrst af skapferli þeirra. Þær eru auðsveipnari og viðurkenna veikleika sinn mun fyrr en karlar. En hvað sem líður sálfræðilegum þönkum um mismun kynjanna þá hefur það verið mönnum ljóst lengi að ást og vera elskaður opnar á hið Guðlega í okkur!
Segir ekki í hinni helgu bók að ,,Guð er kærleikur" og ,,sá sem elskar er af Guði fæddur"? Oft er talað um grimdina sem felst í trúarbrögðunum þar sem í nafni trúar hafa verið háðar styrjaldir og önnur misindisverk. Því er sjaldnar bent á tenginguna milli ástfanginna og trúhneigðar. Trúin á hinn sanna Guð byggist á kærleika og gefur frá sér ást!
Ég vil benda á hið augljósa að mannlegt eðli snertist af eðli Guðs þegar ástin/kærleikurinn, grípur okkur. Þá opnast á það svið að Guð almáttugur hefur myndað okkur í sinni mynd, mynd kærleikans.
Vandinn er svo sá að við tengjum gjarnan ást saman við losta og kynlíf. Munurinn er sá að ást og kynlíf krefjast og vill fá en ást og kærleikur gefur, fórnar og krefst ekki. Það sérst best í boðskap Jesú Krists þegar sagt er að :,,Því svo elskaði Guð heiminn að hann GAF SON SINN eingetinn, til þess að hver sem á hann trúir glatist ekki heldur hafi eilíft líf"! Hinn fórnandi kærleikur!
Það er því ánægjulegt að sjá þegar söngstjörnurnar verða fyrir sömu áhrifum að ástin opnar á hið Guðlega og þess vegna sækja þau í heimahaga kærleikans, þar sem kærleikur Guðs svífur yfir vötnum og Heilagur andi talar tungum Guðs ástar!
Snorri í Betel
Sækja kirkju saman í tilhugalífinu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
31.10.2017 | 12:33
Lúter í 500 ár!
Kristnin á Íslandi er kölluð ,,Lúters trú"! Menn gjarnan hafa þá viðhorf Lúters sem samnefnara á siðferðilegum og trúarlegum skilningi. Það er gjarnan ,,Lúterskur" skilningur ef Þjóðkirkjan tjáir sig um mál.
Fríkirkjur eru til sem tengja sig við Lúter og þaðan berast mjög öðruvísi viðhorf á ýmsum málum en þau sem Þjóðkirkjan heldur fram. Fríkirkjurnar eru þá einnig með ,,Lúterskan" skilning.
Eitt grundvallar atriði sem Lúter hélt fram var ,,Sola Scriptura" sem útleggst ,,Ritningin ein"! Af því má ráða mikilvægi mótmælanna að hann benti trúarstofnuninni á að Kristnin byggir á óskeikulleika Biblíunnar en kirkjan veikti siðferðisvitund almennings. Þetta er mjög dæmandi fullyrðing!
Ég las grein eftir Fríkirkjuprest sem segir:,,Hins vegar taldi Lúter kirkjustofnunina veita fólki falskt öryggi með sölu syndaaflausnar og slæva siðferðisvitund fólksins."
Seinna í sömu grein heldur hann þessu fram:,,Siðbreytingin sem kennd er við Lúter hefur gefið okkur á hinu trúarlega sviði, möguleika til að jafna stöðu kynjanna, gefa samkynhneigðum sama rétt og gagnkynhneigðum, setja mannréttindi ofar trúar-boðskapnum og djörfung til að berjast gegn steinrunnum trúar stofnunum"!(Fréttabl.31.10.'17, bls.13)
Hvernig hljómar þessi fullyrðing í ljósi kennisetningar Lúters ,,Sola Scriptura"? Ritningin ein setur fram mjög ákveðna stöðu kynjanna, samkynhneigðra og mannréttinda!
Ritningarnar segja konuna ,,samhjálp" eiginmannsins. Þær fullyrða að kynvillingar erfi ekki Guðs ríkið! Að hjónabandið sé samband Karls og konu! Þær stuðla ekki að því að mannréttindi fái að farga fóstrum, heldur grundvallist á því að við erum öll jafningjar, sköpuð í Guðs mynd!
Ef Lúter hefur haft lög að mæla fyrir 500 árum sem snerta þessi svið hins mannlega lífs og ,,Sola Scriptura" sé jafngild í samtíma okkar þà er Fríkirkjupresturinn að bjóða lesendum sínum uppá ,,falskt öryggi" Fríkirkjunnar. Hann er þá gengin á svig við grundvöll mótmæla Lúters og kominn í spor miðaldra kirkjunnar sem ,,slævði siðferðisvitund fólksins" og boðaði þeim ,,falskt öryggi" trúarinnar sem Jesús, postularnir og spámennirnir boðuðu.
Það er all illt manni að bjóða börnunum uppá steina og höggorma í nafni Lúterskra fræða, 500 árum eftir að lærifaðir Fríkirkjunnar sté fram og festi 95 greinar mótmælanna á dyr hinnar ,,fölsku" kirkju!
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- trukona
- hvala
- zeriaph
- hognihilm64
- kiddikef
- sigurjonn
- baddinn
- gudni-is
- baenamaer
- birkire
- valgerdurhalldorsdottir
- pkristbjornsson
- ruth777
- jullibrjans
- goodster
- sirrycoach
- daystar
- ellasprella
- flower
- valdis-82
- valdivest
- thormar
- sigvardur
- levi
- malacai
- hafsteinnvidar
- davidorn
- heringi
- helgigunnars
- icekeiko
- kjartanvido
- gretaro
- stingi
- jenni-1001
- kafteinninn
- eyjann
- svala-svala
- predikarinn
- exilim
- sax
- truryni
- morgunstjarna
- coke
- siggith
- kristleifur
- antonia
- vor
- valur-arnarson
- deepjazz
- bjarkitryggva
- harhar33
- thjodarskutan
- balduro
- gudspekifelagid
- study
- h2o
- frettaauki
- nyja-testamentid
- nkosi
- gudnim
- genesis
- ea
- gullilitli
- gladius
- bryndiseva
- dunni
- arnihjortur
- arncarol
- gun
- gummih
- gattin
- johann
- olijoe
- vilhjalmurarnason
- nytthugarfar
- postdoc
- eyglohjaltalin
- hebron
- muggi69
- krist
- trumal
- pall
- talrasin
- angel77
- gessi
- ghordur
- baldher
- ragnarbjarkarson
- adalbjornleifsson
- bassinn
- skari
- kje
- benediktae
- nonnibiz
- bjargvaetturmanna
- doralara
- nafar
- contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (23.11.): 0
- Sl. sólarhring: 6
- Sl. viku: 27
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 23
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar