Færsluflokkur: Trúmál og siðferði
16.4.2012 | 13:53
Ætli fjölkvæni megi flokka sem synd?
Er ekki merkilegt að menn láti sér ekki duga eina. Þeir vilja stjórna ríkjum og herjum en ráða ekkert við sig sjálfa. Við höfum frásögur í Biblíunni um þessar kenndir manna. Salómon var fjölkvænismaður sem og faðir hans Davíð. En það var þeim ekki til heilla og þegar sagan gerir upp ævi þessara manna þá fylgdi mikill ófriður þessum lífsmáta. Davíð missti börnin í nauðganri og borgarastyrjöld því börn eiga jú að erfa föður. Jesús kenndi okkur þessa góðu lexíu að fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og búa með eiginkonu sinni og þau tvö skulu verða eitt hold!
Enda skapaði Guð Adam og Evu, ekki margar Evur og ekki marga menn fyrir Evu. Guð sendi tvö og tvö í Örkina hans Nóa, ekki tvo og tvo, tvær og tvær eða einn og margar!
Það er gott að blöðin komi með þessar fréttir um siðleysi framámanna því þá vaknar fólk frekar upp við hvað sé tilhlýðilegt. Þegar Guðrún Ebba sagði sögu sína þá vissu allir að svona á ekki að meðhöndla börn. Enda segir Biblían :"Þú skalt ekki koma nærri nokkru skyldmenna til að bera blygðan þess"!
Samvæmt "Evangelískum boðskap" þá er þessi lífsmáti, fjölkvæni, einnig synd, brot gegn konunni og sviftir hana reisn og virðingu.
Það er hlutverk feðra að tryggja dætrum gott þjóðfélag sem virðir dætur okkar og syni. Það gerum við best með því að sýna eiginkonunni elsku og virðingu. Þá hjálpar Biblían okkur þvi hún segir að hjónabandið sé aðeins milli karls og konu, einimnanns og eiginkonu!
Snorri í Betel
Forseti kvænist fjórðu konunni | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
6.4.2012 | 21:17
"Blessuð Biblían"
Á INN (5/4) voru 3 prestar á spjalli við Ingva Hrafn. Hann spurði þá um tilefni skírdagsins og söguna á bak við hann.
Þeir allir nefndu nákvæmlega frásögu Biblíunnar, svo nákvæmlega að ekkert vantaði og þá fékk bókstafurinn að halda sér. Þeir jafnvel fylltu uppí söguna svo hún varð aðeins ríkari að innihaldi og merkingu. Ég dáðist að þessari "bókstafs -túlkun".
Skömmu áður höfðu þeir hafnað algerlega siðferðisboðskap sömu bókar um kynhegðun manna og nefndu meðal annars sínu máli til stuðnings að 40000 Finnar sögðu sig úr finnsku kirkjunni þegar kollegi þeirra notaði tækifærið að sanna mál sitt varðandi siðferðisboðskapinn að vísa til þessar öruggu bókar.
Þeim fannst best að tíðarandinn fengi að breyta hugsunarhætti og viðmiði siðferðisins en ekki að treysta bókstafnum.
Hvað ætli verði um kristnar hátíðir ef bókstafurinn sveigist fram og til baka t.d. í þá átt sem Vantrú er að gera? Þá verða kirkjur þjóðarinnar leiksalir um næstu páska. En ef prestarnir kæra sig kollótta um áhrif "40000 Finna" og varðveita boðskapinn þá fáum við að fagna trúarboðskap páskanna að ári.
Hræðumst ekki almenningsálitið jafnvel þó 40000 Finnar eða Íslendingar gangi úr kirkjunni. Kirkjan á að varðveita boðskapinn.
Æðsta boðorðið er þetta: " Þú skalt elska Drottinn Guð þinn af öllu hjarta allri sálu og öllum mætti"!
Kirkjan snýst ekki í kringum manninn heldur um Guð.
Notum páskana til að koma málunum á hreint það er kjarni páskaboðskaparins eins og bókstafurinn segir!
Gleðilega páska!
Snorri i Betel
18.3.2012 | 22:04
Svo að þér fallið ekki frá?
Jesús segir: "Þetta hef ég talað til yðar svo að þér fallið ekki frá." (Jóh. 16:1) Orðin "falla frá" benda til þess að menn tapi, missi af eða gangi af trúnni. Í ensku er notast við "offended" = móðgast, reiðast, hafna. Þýskan segir: "ärgert" = gera reiðan, illan; en allt þetta er þýðing á gríska orðinu "skandalisþie" = hrösun, koma einhverjum til að syndga, og Vulgata, latneska þýðingin segir: "Scandalizor" = falla frá, reiðast, móðgast eða verða einhverjum að falli.
Versið á unda segir að Jesús muni senda þeim anda sannleikans til að vitna um Jesú og lærisveinarnir fari út til að bera vitni. Í þessu samhengi er ekki farið framá hernað, hatur, taka lönd eða kúga náungann. Heldur aðeins að fara út um heiminn, knúnir af sannleiksandanum og bera Jesú vitni.
Fylgifiskur þess hlutverks verður einmitt sá að þeir verða gerðir samkundurækir og að "hver sem líflætur yður þykist veita Guði þjónustu. Þetta munu þeir gjöra af því að þeir þekkja hvorki föðurinn né mig."
Mér til undrunar og ykkur til upplýsingar þá blasir þetta viðmót við okkur í dag. Ef orð Guðs, Biblían, er notuð og vísað til hennar þá fær sá hinn sami "það óþvegið".
Hér eru nokkur dæmi úr blöðum norðanlands sem hafa sent mér tóninn vegna bloggskrifa minna. Ekki er verið að takast á skoðunum með rökrænum hætti heldur gripið til stóruspjótanna. Ég þarf að sitja undir því að vera sagður hafa:
"fordómar og mannhatur", "Og Snorri styður því, samkvæmt eigin vitnisburði....eftirfarandi: Dauðadóm fyrir framhjáhald, og að blóta foreldrum sínum. Þrælahad. Mansal feðra á dætrum sínum. Þjóðarmorð. Að grýta til bana ofvirka og/eða drykkfelda syni. Og þeir sem borða rækjusamlokur eða eru með hamborgarahrygg í jólamatinn..séu réttdræpir"!
Þessar niðurstöður eru orð ritstjóra blaða bæði frá Akureyri og Húsavík. Af hverju? Af því að ég vísaði til orða Ritninganna að: "Laun syndarinnar er dauði.."! (Róm 6: 23).
Þessi setning er m.a. útskýring á því hvers vegna Jesús Kristur var líflátinn - "hann var gerður að synd okkar vegna".
En styð ég dauðadóm? Hvar hefur það komið fram? Styð ég dauðadóm vegna hórdóms? Nei! En er dauðadómur vegna hórdóms framkvæmdur á Íslandi? Já, það er í formi fóstureyðinga hjá þeim aðilum sem taka þátt í hórdómi en vildu ekki að barn kæmi undir !
Styð ég þrælahald? Nei! Margur er í þrælahaldi meira að segja hér á landi, "sá sem syndina drýgir er þræll syndarinnar "(Jóh. 8:34) Ég boða öllum að sá er til sem leysir okkur undan þrælahaldinu en það er Jesús Kristur, FRELSARI mannanna.
Hvers vegna halda menn orðum Móse "gegn" mér? Af því þeir trúa ekki. Skoðið þetta sem Jesús segir: "
"Ef þér tryðuð Móse, munduð þér líka trúa mér. því um mig hefur hann ritað. Fyrst þér trúið ekki því sem hann skrifaði hvernig getið þér þá trúað orðum mínum"? (jóh. 5:46)
Samhengið í málinu er því þessi að Biblían er innbyrðis samstæð þó svo að margt virðist öðruvísi. En það er vegna ókunnugleika okkar og þá förum við að misskilja. Svo er hitt atriðið og það er með heilagan anda. Hann gefur mönnum skilning á mikilvægi samhengisins sem Biblían greinir okkur frá. Engin saga er samhengislaus við efni Biblíunnar. Sagan um "Miskunnsama Samverjann" er opinberun á því sem Guð lofaði að gefa til jarðarinnar til að veita mönnum líf, von og sigur frá dauðanum.
Því er svo mikilvægt að við lærum að standast erfiða tíma svo að við föllum ekki frá þessari sæluríku von að í Kristi er lausn, líf og frelsi þó svo að ýmsir misvitrir blaðamen kalli okkur öllum illum nöfnum - þeir munu ekki landið erfa!
Til hugleiðinar á föstunni.
Snorri í Betel
11.3.2012 | 11:54
En hvað sagði Jesús?
"Hann svaraði: "Hafið þér eigi lesið, að skaparinn gjörði þau frá upphafi karl og konu og sagði: ,Fyrir því skal maður yfirgefa föður og móður og bindast konu sinni, og þau tvö skulu verða einn maður.´Þannig eru þau ekki framar tvö heldur einn maður. Það sem Guð hefur tengt saman ,má maðurinn eigi sundur skilja." Matt. 19: 4 - 6
Guð tengdi saman karl og konu, ekki karl og karl né konu og konu því síður 2 karla og 1konu eða 2 kounur og 1 karl og ekki varð honum á í messunni með því að setja konu sál í karlmann né karlmannssál í konulíkama.
Er ekki gott á föstunni að rifja það upp hvað sé samkvæmt ritningunum?
Kristur leið og dó, samkvæmt ritningunum, hann reis upp samkvæmt ritningunum. Hann skapaði karl og konu, samkvæmt ritningunum til að þau tvö verði einn maður (hjón) samkvæmt ritningunum.
En ert þú með skoðun eða trú samkvæmt ritningunum?
kær kveðja
Snorri í Betel
Varar við hjónabandi samkynhneigðra | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
5.3.2012 | 23:23
Dæmi um hnignun?
Að gera ungar stúlkur að kynverum og jafnhliða unga drengi er auðvitað skemmd á þroskaferli barnanna. Við varðveitum í tungumáli okkar að barn er ekki "kynvera". Það er flokkað sem hvorukyn, það barnið! Þessi þáttur tungumálsins ætti að duga til að koma öllum í skilning um að kynhneigð og kyntilfinningar eru ekki fyrir börn. Þó að börn geti orðið skotin þá er vert að gefa því gaum að ungar stúlkur sem verða "skotnar" í eldri dreng og gefa sig að honum verða fyrir sterkum áhrifum. Ungi drengurinn sem kann lítið á samskiptamátann við yngri stúlkuna á það til að hefja nýtt uppeldi á stúlkunni. Hún er það ómótuð að hann tekur sig til (oft óafvitandi) og fer að láta hana klæðast og verða eins og honum best líkar. Þannig verðu hann með inngrip í persónuþroska stúlkunnar sem fær ekki að mótast af sjálfstæðum vilja með virðingu fyrir sjálfri sér. Vita menn ekki að unglingsstúlkur glíma oft og einatt við mikla tilvistarkreppu því þær hafa enga trú á sitt eigið ágæti? Eru þess vegna ungir drengir heppilegir uppalendur? Ekki aldeilis!
Þetta eiga foreldrar að stöðva og leggja sig fram um að stúlkan og drengurinn nái nægilegum persónuþroska til að geta hafið eðlilegt samband við hitt kynið.
Þetta tengist líka fréttinni sem fjallar hér um á eftir.
"Breski kardínálinn Keith O'Brien fordæmir hjónaband samkynhneigðra og segir það afbrigðilegt og líkir því við þrælahald og fóstureyðingar.
Segir O'Brien að ríki sem lögleiði hjónabönd samkynhneigðra ættu að skammast sín að ganga gegn lögmálum náttúrunnar og ættu ekki að líta aðgerðir sínar sem framþróun.
Hann segir að hjónabönd samkynhneigðra muni leiða til hnignunar samfélagsins og aukins siðleysis. Þetta sagði hann allt saman í viðtali við BBC Radio 4 sem var tekið í kjölfar greinar sem kardínálinn ritaði í sunnudagsútgáfu The Telegraph."
Má vera að við hrökkum í kút við svona samhengi en tilfellið er að þegar fjallað er um lögmál náttúrunnar þá á það við heilmikil rök að styðjast því aðeins hjá karli og konu verða börnin til. Þjóðfélög, fjölskyldur og skólar þrífast ekki nema aðeins um eina kynslóð, ef allir verða með sama kyni. Þá verður landauðn þar sem slíkt verður alsráðandi.
Er ekki verið að kalla okkur til að endurmeta gildin okkar?
Það er í höndum okkar foreldra og skóla að leiða börn og unglinga til farsæls lífs og hamingjusamrar útkomu.
Og Guð sagði :"Verið frjósöm, margfaldist og uppfyllið jörðina..." 1.Mós. 1:28
Snorri í Betel
Vill stöðva kynvæðingu skólastúlkna | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Trúmál og siðferði | Breytt s.d. kl. 23:32 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (18)
21.2.2012 | 18:30
Ríkið 666?
Tíminn er eins og vatnið. Vatnið fer eftir lögmálum náttúrunnar og fellur alltaf til sjávar, að lokum. Saga mannkynsins virðist einnig vera skráð og fellur alltaf í sama farveginn, "að lokum". Nú eiga Evrópubúar að kjósa sér sameiginlegan forseta. Hann á að verða höfuð eða andlit álfunnar. Barrosso var einnig að tala það út að Evrópa ætti að renna saman í enn meiri heild. Efnahagur álfunnar leyfði ekki svona sundurleit þing og reglur. Löndin þyrftu að láta af sjálfstæði til að Evrópa rísi upp sem sameinað afl, ríki þeirra sem mynda bandalagið. Þangað eru Íslendingar að sækja. Þessi hugsun fellur betur að vinstrimönnum en þeim hægrisinnuðu þar sem hægriöflin hafa byggt frekar á frumkvæði einstaklingsins og áræðis hins frjálsa framtaks en miðstýringu vinstri forræðishyggjunnar.
En það sem er forvitnilegt í þessu samhengi með ríki og mannkynssöguna er sagan í Daníelsbók Biblíunnar sem segir frá draum Nebúkadnesars konungs Babylóníu. Gyðingarnir voru hernumdir þangað 584 f.kr. og voru í herleiðingu í 70 ár. Sú herleiðing var árangur trúrofs gyðinga við Guð almáttugan, YHVH (jahve).
Nebúkadnesar lá í hvílu sinni og hugleiddi hvað verða mundi um ríki hans eftir hans dag. Þá nótt dreymdi hann draum þar sem hann sá mikið líkneski í mannsmynd. Höfuð þess var úr gulli og táknaði Babylóníuríkið. Hendur og brjóstkassi voru úr silfri. Tengist mjög vel við ríki Meda og Persa. Kviður og lendar voru úr eir. Það heimfærist uppá veldi Grikkja og tíma eftir Alexander mikla. Fæturnir voru sumpart úr járni og sumpart úr leir. Það getur fallið mjög vel að veldi Rómar sem varð aldrei sigrað heldur sofnaði og liðaðist i sundur. Það var eins og risi sem sofnaði. Margar tilraunir voru gerðar til að vekja þennan rista. Karl mikli (Karla Magnús) hóf endurreisn, þýska keisaraveldið - hið heilaga, Fasisminn og Nazisminn. Saga endurreisnarinnar er beisk og myrk.
Nú er runninn upp nýr tími þar sem ríki hefur risið upp af Rómarsáttmálanum sem grundvallaðist á Kola og járn samkomulaginu sem stofnað var til eftir seinna stríð. Þrún þessa ríkis hefur verið í nokkrum skrefum en þessi síðustu eru eftirtektarvverðust. Sameiginlegur gjaldmiðill, Evran og nú sameiginlegur þjóðhöfðingi.
Draumur Nebúkadnesar endaði þannig að að steinn losnaði og féll á fætur líkneskisins, braut fæturna, koparinn, silfrið og gullið.Vindurinn feykti smælkinu í burt svo þeirra sá engan stað en steinninn óx og náði yfir alla jörðina.
Auðvelt er að sjá að þessi draumur Nebúkadnesars teygir sig til okkar daga. Ríkið sem byggt er á leiri og járni (kolum og stáli) reis upp og er að fullmátast á okkar dögum. Höfðingi þessa ríkis gæti verið sá sem mun ætla sér Guðssætið í Musteri Gyðinga í Jerúsalem. Ekki er það enn risið en vert er að fylgjast með og sjá framvindu málsins. Þegar menn sjá svo ríkið fara að amast við málefnum gyðinganna þá skulu alir taka eftir að endurkoma Frelsarans er á næstu grösum.
Þjóðhöfðingi Evrópu verður guðlaus, trúlaus og siðlaus. Þess vegna kallar Biblían hann And-krist. Margir munu fagna honum sem lausnara og sameiningartákni (múslimar, gyðingar og sumir kristnir) en starfstími hans verður aðeins 7 ár og helming tímans 3 og hálft ár verður hann til friðs en seinni hlutann getur hann ekki flúið eðli sitt. Tortíming mun brjótast út og eyðing hans hlutskipti vegna þess að hann rís gegn Guði og hinum heilögu. Hann verður þroskaður avöxtur siðleysir og spillingar. Páll kallar hann "lögleysingjann" og Daníel greinir frá að hann muni koma á vængjum spillingarinnar. Þarf að efast um að tíminn er kominn?
Þetta er t.d gild ástæða til að segja nei við inngöngu í EB. Takið eftir því sem við "eigum að gera" til að "666" samþykki okkur. 1) Við eigum að þyggja 7% makrílkvóta, fisk sem er í okkar lögsögu og enginn á nema sá sem veiðir. Hafró getur alveg eins rannsakað og gefið út kvóta. Við verðum að varðveita sjálfstæði landsins og yfirráðarétt okkar yfir fiskimiðunum. vík burt Satan, var sagt áður fyrr en þyrfti jafnvel líka að standa Brüssel. 2). Fréttablaðið kynnir okkur reglur "666" um að fyrirbyggja kynþáttafordóma. a) að múslimar á Íslandi fái land og leyfi til að reisa moskur. b) ljúka lagasetningu um bann við mismunun vegna kynþáttar c) að í hegningarlög verði sett ákvæði um refsiþyngjandi dóma liggi kynþáttarfordómar að baki brotinu. Bent er á það í bókinni "Fórnarlambakúltúrinn" (höf. David Green, útg, Ugla) að tveir ungir menn voru myrtir í Englandi á árunum 2005 og 2006. Annað morðið var á læknastúdent og reyndist tilefnislaust. morðinginn náðist og fékk 15 ára fangelsi. Hitt morðið var að hommi var drepinn og þótti sannað að um hatursglæp hafi verið að ræða. Morðinginn náðist og sá fékk 28 ára fangelsi. Hvers vegna voru líf þessara ungu manna mis mikils virði? Hér komu Evrópureglurnar til skjalanna ("666") sem fara fram á "refsiþyngjandi" ákvæði. En kristnu sjónarmiðin eru eins og Biblían segir auga fyrir auga, tönn fyrir tönn, líf fyrir líf. Auðvita er rík ástæða til að taka mark á viðvörunarorðum Biblíunnar og gera Jesú að frelsara sínum, steininn sem losnaði án þess að mannshönd kæmi þar að og óx um alla jörð.
k.k.
Snorri
Íbúar Evrópu kjósi forseta | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
19.2.2012 | 13:12
Synd ?
Akureyrarbær og sóknarprestur Akureyrarkirkju eru sammála um að samkynhneigð sé ekki synd. Ég gerðist svo óskammfeilinn að halda hinu gagnstæða fram. Svo ofbauð ég öllum með að segja að "laun syndarinnar er dauði" og ég benti á að það væri "grafalvarlegt"! En mér til undrunar þá sé ég í umræðunni að mönnum er þetta atriði ekki ljóst. Skoðum þess vegna málið og nú ætla ég að nýta mér grundvallarrit kristinnar trúar til að færa rök fyrir málinu. Guð talaði við Kain og segir: "..ef þú gjörir ekki rétt þá liggur syndin við dyrnar og hefir hug á þér, en þú átt að drottna yfir henni". Orðið sem hebreskan notar hér yfir synd er "tjattah" (tekið úr Strong´s concordans og er númerað 2403). Þetta orð finnst víðar í Biblíunni, GT, og er allsstaðar þýtt eins eða synd. Þetta orð kemur t.d. fram í 3.Mós 4:22 þar sem sagt er: "Syndgi leiðtogi og fremji eitthvað af vangá sem Drottinn, Guð hans, hefur bannað í einhverju af boðum sínum verður hann sekur."
Af þessu má sjá að synd og sekt tengjast ævinlega. Ef annað er notað þá sjá menn hitt.
Orðið synd í íslensku er komið til okkar frá forn-ensku, af orðinu "synn" og sögninni "syngian" en forn-enskan tekur þetta orð líklega frá latneska orðinu "sons", og "sont" sem þýðir sekur!
Hvort sem því við tökum hebreskuna, forn-ensku eða latínu þá varðveitist tengingin synd og sekt í skilningi manna á þessum orðum, og það er frá upphafi vega.
Nýja-Testamentið er ritað á grísku og í því er orðið "hamarsio" notað yfir synd í merkingunni að missa marks, vera rangur eða yfirtroðsla. Ef menn fara yfir Biblíuþýðingar kynslóðanna kemur fram að þýðendur hafa greinilega komist að sömu niðurstöðu varðandi syndina hvort sem önnur menningarsvæði, tungumál eða tímabil eru rannsökuð.
Það er alveg ný nálgun í umræðunni þegar prestar og lektorar hafna orðum Biblíunnar sem rökum í þessum málaflokki og bendir það til þess að þeir eru komnir út af hinum postulega og spámannlega grunnikristinnar trúar.
Skoðum því eftirfarandi. Kristin trú hefur grundvöll sem Páll kynnir í Efesusarbréfinu 2.kafla og versi 20: "Þér eruð bygging sem hefur að grundvelli postulana og spámennina en Jesú Krist að hyrningarsteini." Þess vegna hefur kristin trú í 2000 ár vísað til boðunar þessara aðila og kallað kristna kenningu. Þess vegna er boðskap Jesú að finna í Jesaja, Móse, Jeremía, Páli postula, Pétri og öllum hinum. Þegar þessi "heild" fjallar um sömu atriðin þá eru þau Guðs Orð, ófrávíkjanlegar reglur til helgunar og eilífs lífs, fullkominn vilji Guðs.
Á þessum kristna grunni kemur fram að : "..bæði Gyðingum og Grikkjum var gefið að sök að þeir væru allir undir synd." Róm.3: 9 og enn fremur birtir Páll að vegna syndarinnar er dauðinn runninn til allra manna enda "Laun syndarinnar er dauði en náðargjöf Guðs er eilíft líf í Kristi Jesú, Drottni vorum." Róm 6:23
Enn fremur ber á það að líta að þessi kristni grunnur spámannanna leggur til okkar þekkingu sem Páll lýsir svo vel með þessum orðum: "Lögmál lífsins anda hefur í Kristi Jesú frelsað þig frá lögmáli syndar og dauða." Róm.8: 2; Ég hef þessi orð í huga þegar én nefni að syndin leiði til dauða.
Það sem veldur minni "afskiptasemi" af málefni kynvillunnar, samkynhneigðra er einmitt sú krafa Alþingis, bæjaryfirvalda, skóla og kirkju að segja hana ekki lengur vera synd. Nútíma lektorar gefa jafnvel í skyn að hópkynlíf, eiga kvennabúr eða hafa margar í takinu sé ekki synd ef allir eru jafningjar og samþykkja þátttökuna. Svona lifnaður er flokkaður sem synd og kallaður hórdómur, frillulífi eða í frumtextanum "porneia"!
Lygar og blekkingar eru líka synd- gera okkur sek við almættið. Blekkingar og undanbrögð eru nefnilega ekki persónueinkenni Jesú Krists og koma alls ekki frá Heilögum anda Guðs. Sá andi er kallaður Andi sannleikans sem "heimurinn getur ekki tekið á móti"!
Nemið staðar við vegina og litist um og spyrjið um gömlu göturnar hver sé hamingju leiðin og farið hana svo að þér finnið sálum yðar hvíld. Jer.6:16
Pistilinn skrifaði:
Snorri í Betel
15.2.2012 | 13:06
Úr Biblíu 21.aldar
Þessa kveðju fékk í áðan:
Ágæti bloggari.
Vegna endurtekinna kvartana hefur verið tekið fyrir að þú getir tengt bloggfærslur við fréttir á mbl.is.
Kveðja,
blog.is
Í ljósi þess að ekki má tengja frétti á mbl við bloggið þá er best að tengja bloggið við Biblíuna. Má vera að þá kvarti færri. En ég sagði ykkur einnig í blogginu frá 31.jan að líklega verða orð mín túlkuð sem hatursáróður sem svo sannarlega hefur komið fram bæði skólinn og mbl hafa vísað mér á dyr.
En skoðið þetta: Ég tek þennan texta úr "Speki Salómons, kafla 14 og spyr um leið. Á þessi 2000 ára gamli texti erindi inní umræðuna, tímann, kirkjuna, mbl., og bloggið? Dæmi hver fyrir sig, en Mbl. lýsti því yfir að þetta væri Biblía 21. aldar - kannski voru þeir ekki búnir að lesa bókina og ritskoða?
Afleiðing hjáguðadýrkunar.
v.22 "Ekki sat við það að þeir færu villir vegar um þekkinguna á Guði. Vanþekking þeirra leiddi af sér friðvana líferni en samt nefna þeir slíkt böl frið. Þegar þeir iðka barnamorð við helgihald og launhelgar eða halda tryllingslegar og annarlegar óhófsveislur, þá er hvorki líferni þeirra né hjúskapur framar óflekkaður. Hver myrðir annan með svikum og svívirðir hann með hjúskaparbroti.
Alls staðar veður uppi blóð og morð, þjófnaður og vélabrögð, spilling, sviksemi, róstur, meinsæri, áreitni við góða menn, vanþakklæti, saurgun sálna, kynvilla, hjónabandsriftingar, hórdómur og saurlífi. Dýrkun skurðgoða sem ekki eru nefnandi á nafn er upphaf alls ills, orsök og takmark."
Læt hér staðar numið með bæn um að Guð megi opna augu stórnenda Mbl. Íslendinga og presta sem vígðir eru til að boða mönnum allt Guðs ráð. Hjáguðadýrkunin og skurðgoðin skemma manninn.
k.k.
Snorri í Betel
9.2.2012 | 11:26
Jesús, besti vinur mannanna?
"Kjarninn í sjónarmiði evangelískra er sá að samkynhneigðin telst vera synd. Syndin erfir ekki Guðs ríkið og því óæskileg. Laun syndarinnar er dauði og því grafalvarleg."
Svona greindi ég frá málinu! Það er nefnilega búið að koma málum þannig fyrir að orðið kynvilla er bannorð í íslenskri umræðu. Menn hafa hótað lögsókn notkunar þess sem er talið meiðandi. Frekar var valið að koma með nýyrðið samkynhneigð yfir það sem áður i Biblíunni var orðið kynvilla. í Nýja-Testamenti Odds frá 1540 var sagt "sem skömm drýgja með karlmönnum". Sama hvaða orð Íslenskan notar þá eru þau þýðing á gríska orðinu "arsenóikitis" sem þýðir að "serða karlmann". Slíkur lífsmáti erfir ekki Guðs ríkið.Sú fullyrðing gefur ekki mér né öðrum rétt til að segja við hommann, haldu bara áfram Guð skapaði þig svona og hann elskar þig skilyrðislaust.
Jesús Kristur segir okkur að hjá mönnum eru engin ráð til að eignast eilíft líf. staða okkar er því þannig að við erum útilokuð frá Guði NEMA fyrir Jesú Krist! Hann er þessi stóra breyta í jöfnunni. Hann frelsar, umbreytir og endurgerir manninn þegar við tökum mark á hans orði. Vissulega hljóma mín orð eins og dómur fyrir þá sem ekki þýðast Guðs orð, en frelsun þeirra sem hlýða. Framhjá þessu verður ekki komist.
Menn sem vilja kalla sig kristna og hafa Jesú sem leiðtoga lífsins verða að samþykkja pakkann að hann einn leysir menn frá þessu ægivaldi syndar og dauða. Hann einn gerir manninn færan um að erfa Guðs ríkið fyrir trúna á hann.
Að flokka þessi orð hvort sem þau koma frá Páli postula eða mér sem hatursáróður er auðvitað hið sama og að kenna Veðurstofunni um vonda veðrið.
kær kveðja
Snorri
Æfir vegna skrifa um samkynhneigð | |
Tenging við þessa frétt hefur verið rofin vegna kvartana. |
2.2.2012 | 21:51
Evran og Íran, hvert er tilefnið?
Í sömu fornu spádómum er talað um viðskipti sem verða þannig að enginn geti keypt eða selt nema taka "merki dýrsins" á enni sér eða hægri hönd. Vitað er að eigendur Master-Cards hafa framleitt ógrynni af kísilflögum sem eru kallaðar "Verychips" og þær flögur hafa að geyma aðgang að bankareikningum, sjúkraskýrslum og fleirra nýtilegu sem þarf til að þekkja einn frá öðrum.
Í skýrlsu Jerome Corsi's Red Alert sem kom út nýlega kom fram að yfir 420 bankar í víðri veröld fóru framá að setja á laggirnar einn sameiginlegan gjaldmiðil. Þörfin á jafnvægi í peningamálum og flæði í peningakerfinu er mikil. Mér segir svo hugur um að allt verði reynt á þessu ári til að finna pólitískar leiðir í þessum sameiginlega vanda hagkerfisins. Ísland fær að fljóta með og mun sjálfsagt taka þátt því yfirvöld hafa ekki borið gæfu til að forðast krókana sem draga okkur inn í hildarleik hins sameiginlega stríðs.
Hvers vegna að ræða við Kínverjana um Íran? Jú þeir eru nokkuð stórir í taflinu. Nú eru Íranir með hástemmdar og hættulegar yfirlýsingar varðandi kjarnorkustríð og að eyða Ísrael. Kínverjar um leið stærstu olíukaupendur olíunnar frá Íran.
Obama hefur ekki veitt samþykki sitt fyrir að gera loftárás á Íran og stöðva kjarnorkuuppbygginguna í Íran. Þar koma Kínverjar og Rússar inní. Þessir aðilar eru nefnilega nefndir í forna spádóminum sem ég minntist á. Rússar kallaðir Góg, Rós, Mesek og Túbal. Kínverjar sem Drekinn og Evrópa sem Dýrið.
Tekst þessum ríkjum að finna sameiginlega lausn í fjármálum og að eyða óvissunni fyrir botni Miðjarðarhafs? Þessi ríki eru allavega farin að vinna að því. Lausnirnar koma er kemur öryggi og friður?
Eitt af því fyrsta sem fer út verður Kristindómurinn. Hann er nefnilega svo óþægilegur hann kallar á að menn séu sannir, elski sannleikann og sýni kærleikann í sannleika. Menn vilja gjarnan hafa kærleikann, meiningalausan og fullan af augnablikstækifærum. Kærleikurinn gleðst ekki yfir óréttvísinni en samgleðst sannleikanum.
Þessi öfluga lýsing segir okkur hvers vegna kristinni trú verður úthýst vegna þess að hún gleðst ekki yfir óréttvísinni t.d. þrælahaldinu í Kína.
Jarðvegurinn hefur skilað vínviðnum og þrúgunum tilbúnum til uppskeru. Komin er stundin að skorið verði upp að sáðlandi jarðarinnar.
Hvort ferð þú í kornhlöður himinsins eða vínþröng Guðs almáttugs? Þeir sem fara í kornhlöður himinsins leitast við að sættast við Guð og þeir ganga Jesú Kristi á hönd. Hinir berjast fyrir mannréttindum án Guðs.
Leiðin að lífinu er í Jesú Kristi.
Amen
Merkel í Kína | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Um bloggið
Snorri í Betel
Færsluflokkar
Bloggvinir
- trukona
- hvala
- zeriaph
- hognihilm64
- kiddikef
- sigurjonn
- baddinn
- gudni-is
- baenamaer
- birkire
- valgerdurhalldorsdottir
- pkristbjornsson
- ruth777
- jullibrjans
- goodster
- sirrycoach
- daystar
- ellasprella
- flower
- valdis-82
- valdivest
- thormar
- sigvardur
- levi
- malacai
- hafsteinnvidar
- davidorn
- heringi
- helgigunnars
- icekeiko
- kjartanvido
- gretaro
- stingi
- jenni-1001
- kafteinninn
- eyjann
- svala-svala
- predikarinn
- exilim
- sax
- truryni
- morgunstjarna
- coke
- siggith
- kristleifur
- antonia
- vor
- valur-arnarson
- deepjazz
- bjarkitryggva
- harhar33
- thjodarskutan
- balduro
- gudspekifelagid
- study
- h2o
- frettaauki
- nyja-testamentid
- nkosi
- gudnim
- genesis
- ea
- gullilitli
- gladius
- bryndiseva
- dunni
- arnihjortur
- arncarol
- gun
- gummih
- gattin
- johann
- olijoe
- vilhjalmurarnason
- nytthugarfar
- postdoc
- eyglohjaltalin
- hebron
- muggi69
- krist
- trumal
- pall
- talrasin
- angel77
- gessi
- ghordur
- baldher
- ragnarbjarkarson
- adalbjornleifsson
- bassinn
- skari
- kje
- benediktae
- nonnibiz
- bjargvaetturmanna
- doralara
- nafar
- contact
Myndaalbúm
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (24.11.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 24
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 21
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar